

Samkvæmislífið
Fréttir af fólki að gera sér glaðan dag við hin ýmsu tilefni.

Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað
Fullt var út úr dyrum Kolaportsins síðastliðinn föstudag þegar umboðsaðili Red Bull á Íslandi breytti húsinu í risa skemmtistað.

Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag
Starfsfólk fjárfestingabankans Fossa gerði sér glaðan dag liðna helgi þegar starfsmenn ásamt mökum flugu til tékknesku höfuðborgarinnar Prag. Íslensk fyrirtæki hafa undanfarin ár í auknum mæli haldið árshátíðarferðir erlendis.

Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal
Það var líf og fjör í Ásmundarsal síðastliðið föstudagskvöld þegar píanóleikarinn Magnús Jóhann Ragnarsson og saxófónleikarinn Óskar Guðjónsson fögnuðu nýrri plötu með góðum vinum.

Kátir tískukarlar hjá Kölska
Stórglæsilegir gæjar komu saman föstudaginn þréttanda september þegar Kölski hélt heljarinnar veislu í tilefni af því að liðin eru sex ár frá stofnun merkisins.

Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi
Sólin skein á kaffiþyrsta gesti í opnun verslunarinnar Sjöstrand á Íslandi við Borgartún í Reykjavík síðastliðinn föstudag. Rýmið er fallega hannað í anda merkisins í stílhreinum ljósum og skandinavískum stíl.

Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu
Árshátíð flugfélagsins Play var haldin með glæsibrag í Silfurbergi í Hörpu síðastliðinn laugardag. Um 400 manns mættu í sínu fínasta pússi þar sem þema kvöldsins var glimmer.

Ráðgjafi Bandaríkjaforseta í Hörpu
Húsfyllir var á Haustráðstefnu Advania, sem haldin var í 30. skipti í Hörpu á dögunum. Aðalfyrirlesarinn í ár var gervigreindarstjarnan Nina Schick en hún hefur síðustu misseri verið ráðgjafi fyrir Bandaríkjaforseta, NATO og marga fleiri í málefnum gervigreindar.

Ljósavinir fögnuðu í Sjálandi
Tilfinningarnar voru við völd þegar nýju Ljósavinaverkefni var ýtt úr vör með pompi og prakt á Sjálandi í vikunni. Fjöldi fólks mætti á viðburðinn sem einkenndist af ljúfum tónum og fjölbreyttri dagskrá.

„Upp með pelana og fjörið“
Smölun er nú að ljúka eftir níu daga rekstur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Vísir var að sjálfsögðu á staðnum og náði tali af hinum knáa fjallkóngi Guðmundi Árnasyni, sem hafði reyndar takmarkaðan tíma til að spjalla við blaðamann.

Halla á Hellisheiði með viðskiptakonum
Metþátttaka var á opnunarviðburði FKA sem fór fram hjá Carbfix á Hellisheiði á dögunum. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands var heiðursgestur viðburðarins. Líkt og alþjóð veit hefur forsetinn verið öflug í atvinnulífinu og þekkir hún vel til starfa FKA. Hún stofnaði meðal annars LeiðtogaAuði, deild innan FKA á sínum tíma.

Tískan við þingsetningu: Hverjir voru í hverju?
Á hverju hausti mæta þingmenn landsins í sínu fínasta pússi til þingsetningar og var dagurinn í dag engin undantekning þar á. Tískuunnendur bíða gjarnan spenntir eftir því að sjá hvaða klæðnað embættismenn velja fyrir tilefnið.

Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest
Það var rafmögnuð orka á Októberfest SHÍ síðastliðna helgi þar sem fjöldi úrvals tónlistarmanna steig á stokk fyrir stútfullum sal af stúdentum.

Skvísupartý í skartgripaverslun
„Mig langaði að fagna þessum áfanga með konum sem ég hef kynnst í gegnum tíðina,“ segir gullsmiðurinn Edda Bergsteinsdóttir sem fagnaði nýrri skartgripalínu sinni með pomp og prakt í versluninni Prakt á Laugaveginum á dögunum.

Myndaveisla: Húrrandi fjör í stórafmæli Húrra
„Á stórafmælum er mikilvægt að fagna vel og það gerðum við svo sannarlega,“ segja Jón Davíð Davíðsson og Sindri Jensson eigendur Húrra. Tískuverslunin fagnaði tíu ára afmæli um helgina með pomp og prakt.

Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni
Hljómsveitirnar Dikta og Jeff Who leiða saman hesta sína í Gamla bíó í kvöld og halda tvöfalda tónleika. Tíu ár eru síðan hljómsveitirnar spiluðu síðast saman á tónleikum.

Hlátur og grátur á Ljósvíkingum
Kvikmyndin Ljósvíkingar eftir Snævar Sölvason var frumsýnd í Smárabíó í gær. Þangað lögðu rúmlega átta hundruð manns leið sína til að berja myndina augum í þremur sölum.

Sjóðheitir á húðvöru herrakvöldi
Síðastliðinn fimmtudag bauð Blue Lagoon Skincare glæsilegum herrum landsins í einstakan herraviðburð í verslun sinni á Laugavegi. Fjölbreyttur hópur mætti til að fræðast um húðvörur og eiga góða stund.

Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi
Rapparinn Árni Páll, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör, hélt tvenna útgáfutónleika í Gamla Bíói um helgina og fagnaði 28 ára afmæli sínu í gær. Þrátt fyrir að vera almennt lítið fyrir afmæli tóku áhorfendur sig til og sungu afmælissönginn fyrir hann á laugardagskvöld.

Rándýr frumsýning hjá LXS skvísum í Sjálandi
Það var mikið um dýrðir þegar þriðja sería raunveruleikaþáttanna LXS var frumsýnd í Sjálandi síðastliðið fimmtudagskvöld. Fyrsti þáttur fer í loftið á Stöð 2 og Stöð 2+ á miðvikudagskvöld.

Myndaveisla: Tímamótapartý í miðborginni
Húsfyllir og góð stemning var í opnunar- og 25 ára afmælisteiti skartgripaverslunarinnar Aurum síðastliðinn fimmtudag. Í tilefni tímamótanna var verslunin stækkuð og hulunni svipt af nýrri skartgripalínu sem ber heitið Alvör.

Bangsar bjóða alla velkomna
Árleg hátíð Bangsafélagsins Reykjavík Bear hefst á morgun og stendur til sunnudags. Um 125 bangsar víðsvegar úr heiminum mæta á hátíðina sem fer ört stækkandi.

Myndaveisla: Rauður dregill og troðfullt hús á Ljósbroti
Það var líf og fjör í Egilshöllinni í gærkvöldi þegar kvikmyndin Ljósbrot var frumsýnd. Rauður dregill tók á móti gestum, margt var um manninn og fólk úr menningarlífi landsins lét sig ekki vanta.

Ríflega þúsund manns skemmtu sér í bílakjallara
Það var gríðarlegt fjör í bílakjallara Grósku á Menningarnótt á viðburðinum Rvk X. Samanlagt mættu um 1100 gestir.

Myndaveisla: Suðræn stemning og hlátrasköll
Íslenska gamanþáttaröðin Flamingo bar var frumsýnd í Bíó Paradís í gærkvöldi. Húsfyllir var á frumsýningunni og góð stemning meðal gesta sem voru hvattir til að mæta í sumarlegum klæðnaði.

Myndaveisla: Sexí upplifun í miðbænum
Fjölmennt var á koteilabarnum Tipsý á dögunum þegar Samuel Page, yfirbarþjónn veitingastaðarins Sexy Fish í London, tók yfir barinn og bauð gestum upp að smakka á nokkra af þeirra frægustu kokteilum.

Guggur og gúmmíbátur hjá Guggu í gúmmíbát
„Þetta var án efa besti dagur lífs míns,“ segir áhrifavaldurinn Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát, sem fagnaði 21 árs afmæli sínu með stæl um helgina á skemmtistaðnum Hax. Patrik, Issi, HubbaBubba og DJ Bjarni K voru meðal tónlistaratriða og að sjálfsögðu var gúmmíbátur á svæðinu.

Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar
Fimmtudaginn 15. ágúst hélt Tónlistarmiðstöð athöfn til að heiðra styrkhafa seinni úthlutunar Tónlistarsjóðs 2024 en þetta er í fyrsta sinn sem úthlutað er úr öllum deildum nýs Tónlistarsjóðs. Margt var um manninn og ýmis þekkt andlit létu sjá sig.

Harðfiskís, laxaís og beikonís í stærsta ísteiti ársins
Kjörísdagurinn stóri var haldinn hátíðlegur í Hveragerði síðastliðinn laugardag í fimmtánda skipti en hátíðin er liður í blómstrandi dögum í Hveragerði. Gefnir voru um 200 þúsund skammtar af ís og er áætlað að um 22 þúsund manns hafi látið sjá sig.

Gunnar Nelson mætti á golfbíl
Frábær þátttaka og mikil gleði var á golfmóti Dineout Open sem fór fram í blíðskaparveðri á Hlíðarvelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar síðastliðinn laugardag. Mótið var haldið í fjórða sinn þegar um 230 keppendur mættu til leiks en færri komust að en vildu eins og síðustu ár.

„Það var eiginlega ég sem bað hann um að giftast mér, held ég“
Rithöfundurinn, þúsundþjalasmiðurinn og athafnakonan Silja Björk og Ísak Vilhjálmsson, deildarstjóri hjá Klettabæ, fögnuðu ástinni með pomp og prakt þegar þau gengu í hjónaband síðastliðna helgi. Brúðkaupið fór fram í sveitasælu og segjast þau enn vera að ná sér niður eftir hinn fullkomna dag. Lífið á Vísi ræddi við hjúin um ástina og stóra daginn.