Subway-deild karla

Subway-deild karla

Leikirnir




    Fréttamynd

    Keflvíkingar semja við Úkraínumann

    Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur gengið frá samningi við 21 árs gamlan Úkraínumann að nafni Denis Ikovlev um að leika með liðinu í Express deildinni næsta vetur. Ikovlev lék með liði Nevada-Reno í háskólaboltanum í Bandaríkjunum í fyrra og ku vera góður skotmaður. Þetta kemur fram á vef Keflavíkur í dag.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Fjölnir og ÍBH Landsmótsmeistarar í körfubolta

    Karlalið Fjölnis og kvennalið ÍBH urðu í dag Landsmótsmeistarar í körfubolta í fyrsta skipti eftir sigra í úrslitaleikjum gegn liðum Keflavíkur. Kvennalið ÍBH vann öruggan sigur í sínum úrslitaleik, en framlengja þurfti karlaleikinn.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Leikmaður Grindavíkur féll á lyfjaprófi

    Eftur viðureign Grindavíkur og Skallagríms þann 16. mars síðastliðinn í úrslitum Íslandsmótsins voru tekin lyfjapróf af fjórum leikmönnum liðanna. Einn þeirra, Sigurður F. Gunnarsson, leikmaður Grindavíkur, féll á lyfjaprófinu en hann viðurkenndi að hafa reykt kannabis sex dögum fyrir umræddan leik.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Zdravevski semur við KR

    Íslandsmeistarar KR í körfubolta hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin næsta vetur en félagið hefur náð samkomulagi við Makedóníumanninn Jovan Zdravevski hjá Skallagrími um að leika með liðinu næsta vetur. Í dag framlengdu KR-ingar svo samninga þeirra Fannars Ólafssonar og Pálma Sigurgeirssonar um þrjú ár.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Verð áfram í Keflavík

    Magnús Þór Gunnarsson hefur samið við Keflavík til eins árs en hann skoðaði það einnig vandlega að ganga til liðs við Snæfell. „Ætli Keflavíkurhjartað hafi ekki slegið hraðar en Snæfellshjartað að þessu sinni,“ sagði Magnús við Fréttablaðið.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Skrifaði undir hjá Blikum

    Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær þá hefur Breiðablik ráðið Einar Árna Jóhannsson, fyrrum þjálfara Njarðvíkur, sem þjálfara hjá sér. Einar Árni skrifaði undir samning við Blika í gær en hann mun þjálfa meistaraflokk félagsins ásamt að vera yfirþjálfari unglingaflokka hjá félaginu.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Arnar Freyr og Jón Norðdal framlengja við Keflavík

    Leikstjórnandinn Arnar Freyr Jónsson hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild Keflavíkur en hann hefur leikið með liðinu síðan árið 2000. Félagi hans Jón Norðdal Hafsteinsson hefur einnig framlengt við Keflvíkinga. Þetta kom fram á vef Keflavíkur í dag.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Teitur Örlygsson tekur við Njarðvík

    Teitur Örlygsson verður næsti þjálfari Njarðvíkinga í körfubolta. Teitur tekur við af Einari Árna Jóhannssyni sem hafði verið með liðið síðustu þrjú ár. Teitur skrifar undir tveggja ára samning við Njarðvíkinga á næstu dögum og sagðist í samtali við Víkurfréttir vera mjög spenntur fyrir verkefninu.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Mikill halli á rekstri KKÍ

    Fjármálastaða körfuknattleikssambands Íslands er fjarri því að vera í lagi sagði formaður sambandsins á ársþingi þess sem nú stendur yfir á Flúðum. Rekstrarhalli sambandsins á síðasta ári voru 14 milljónir króna.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Ég er opinn fyrir öllu

    Landsliðsfyrirliðinn og fyrirliði Keflavíkur, Magnús Þór Gunnarsson, segir ekki víst að hann verði áfram í herbúðum Keflvíkinga næsta vetur en Magnús er samningslaus.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Einar Árni hættur að þjálfa Njarðvík

    Nýkjörinn þjálfari ársins, Einar Árni Jóhannsson hjá Njarðvík, sagði starfi sínu lausu hjá félaginu í gær. Einar hefur þjálfað Njarðvíkinga í þrjú ár og gerði þá að Íslandsmeisturum í fyrra.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Stjarnan í úrslit

    Stjarnan tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum deildarbikarsins í handbolta með því að leggja Íslandsmeistara Vals 31-17 í öðrum leik liðanna. Framarar knúðu fram oddaleik gegn HK með 36-24 sigri í kvöld. Þau mætast í oddaleik í Digranesi á sunnudaginn.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Sigurður væntanlega áfram með Keflavík

    Þjálfaramál Keflvíkinga í körfuboltanum ráðst í kvöld eða fyrramálið. Sigurður Ingimundarsson verður væntanlega áfram þjálfari liðsins. Ný stjórn tók við á aðalfundi deildarinnar í gærkvöldi. Birgir Már Bragason tók við formennsku. Birgir staðfesti í samtali við Vísi að körfuknattleiksdeildin ætti í viðræðum við Sigurð.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Ítarleg úttekt á tölfræðinni í IE deildinni

    Síðustu daga hefur verið að safnast inn á heimasíðu Körfuknattleikssambandsins ítarleg úttekt á efstu mönnum í öllum tölfræðiþáttum í Iceland Express deildinni í vetur. Þar kemur fram að Damon Baley frá Þór Þorlákshöfn var stigahæsti leikmaður deildarinnar með rúm 24 stig að meðaltali í leik. Stigahæsti Íslendingurinn var Páll Axel Vilbergsson hjá Grindavík með rúm 22 stig að meðaltali.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Lykilmenn Grindavíkur framlengja samninga

    Nafnarnir Páll Axel Vilbergsson og Páll Kristinsson, landsliðsmenn í körfubolta, hafa skrifað undir nýja samninga við lið Grindavíkur í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Páll Axel samdi til þriggja ára en Páll Kristinsson skrifaði undir tveggja ára samning. Þá er ljóst að Friðrik Ragnarsson verður áfram þjálfari liðsins á næstu leiktíð.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Ummæli leikmanna KR eftir sigurinn á Njarðvík

    Leikmenn KR voru að vonum hátt stefndir eftir að þeir höfðu tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í kvöld. Flestir töluðu þeir um að áhorfendur og karakterinn í liðinu hefði skilað því sigrinum. KR-ingur númer eitt, Einar Bollason, skrifaði sigurinn að mestu á Benedikt Guðmundsson þjálfara og sagði hann þann besta á landinu.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Benedikt þakkaði stuðningsmönnunum

    "Þetta var auðvitað magnaður leikur og sama uppskrift og í síðustu leikjum þar sem við erum að elta allan tímann en komum svo sterkir inn í lokin. Það gildir að vera yfir þegar flautað er af," sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari KR eftir að hans menn lönduðu Íslandsmeistaratitlinum í kvöld.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    KR-ingar Íslandsmeistarar

    KR tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta eftir dramatískan 83-81 sigur á Njarðvík í framlengdum fjórða leik liðanna í vesturbænum . KR hafði aldrei forystu í venjulegum leiktíma, en hafði betur frá fyrstu mínútu í framlengingunni og vann því einvígið 3-1. Tyson Patterson hjá KR var kosinn verðmætasti leikmaðurinn í úrslitaeinvíginu.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Framlengt í vesturbænum

    Leikur KR og Njarðvíkur hefur verið framlengdur eftir að Jeremiah Sola jafnaði fyrir KR 73-73 um leið og lokaflautið gall. KR-ingar höfðu aldrei forystu í leiknum en náðu að knýja framlengingu eftir að Njarðvíkingar höfðu verið yfir allan leikinn.

    Sport
    Fréttamynd

    Njarðvík leiðir enn

    Njarðvíkingar hafa enn yfir gegn KR 59-53 þegar þriðja leikhluta er lokið í fjórða leik liðanna í úrslitarimmunni í Iceland Express deildinni. Igor Beljanski er kominn með 21 stig í liði Njarðvíkur en Pálmi Sigurgeirsson og Jeremiah Sola 13 hvor hjá KR. Það lið sem hefur verið undir eftir þrjá leikhluta hefur farið með sigur af hólmi í fyrstu þremur leikjunum og samkvæmt þeirri hefð ættu KR-ingar að vinna sigur í kvöld.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Njarðvík yfir í hálfleik

    Njarðvíkingar mæta grimmir til leiks gegn KR í fjórða leik liðanna í úrslitum Iceland Express deildarinnar í körfubolta og hafa fimm stiga forystu í hálfleik 44-39. Leikurinn er sýndur beint á Sýn.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Njarðvík leiðir eftir fyrsta leikhluta

    Njarðvíkingar mæta mjög grimmir til leiks í fjórða leiknum gegn KR í lokaúrslitum Iceland Express deildarinnar í vesturbænum. Njarðvík leiðir 24-15 og hafa bæði lið sýnt frábær tilþrif í byrjun leiks.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Verða KR-ingar Íslandsmeistarar í kvöld?

    Fjórði leikur KR og Njarðvíkur í úrslitarimmunni í Iceland Express deildinni fer fram í DHL-höllinni í vesturbænum í kvöld. KR getur hirt Íslandsmeistaratitilinn af Njarðvíkingum með sigri í kvöld og þurfa þeir sem ekki komast að í húsinu í kvöld ekki að örvænta, því leikurinn er sýndur beint á Sýn klukkan 20.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Einar Árni: Það verður erfitt að fara í vesturbæinn

    "Það var sárt að tapa þessum leik, ég verð bara að segja það, en ég hef trú á því að mínir menn mæti enn grimmari í næsta leik. Ballið er rétt að byrja og við erum búnir að tapa núna tveimur leikjum þar sem við vorum í góðri stöðu og við verðum greinilega að fara að klára þessa leiki betur" sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Benedikt Guðmunds: Svakalegur leikur

    "Þetta er einn svakalegasti leikur sem ég hef takið þátt í. Rafmögnuð spenna, frábært andrúmsloft, hraði og harka. Þetta er bara eins og þetta gerist best. Við vorum aðeins að föndra með varnarafbrigði í þessum leik og það skilaði sér ágætlega í restina. Við höfum verið að vinna á alla leikina og náum að toppa á síðustu mínútunum," sagði Benedikt Guðmundsson eftir sigur KR í Njarðvík í dag.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Magnaður sigur KR í Njarðvík

    KR-ingar hafa tekið 2-1 forystu gegn Njarðvík í úrslitaeinvíginu í Iceland Express deild karla í körfubolta eftir frækinn 96-92 sigur í Njarðvík í dag. KR-ingar höfðu nauma forystu í hálfleik en heimamenn höfðu góð tök á leiknum þangað til í lokin þegar KR-ingar sigu framúr og tryggðu sér sigur á lokamínútunum eins og í síðasta leik.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Njarðvík yfir eftir þrjá leikhluta

    Njarðvíkingar hafa tekið forystuna gegn KR 75-68 eftir þrjá leikhluta eftir að hafa verið undir í hálfleik. KR-ingar skoruðu ekki stig í rúmar þrjár mínútur í upphafi síðari hálfleiks og heimamenn gengu á lagið og náðu mest um 10 stiga forystu. Þetta er þriðji leikur liðanna í úrslitum Iceland Express deildarinnar.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    KR yfir í hálfleik

    KR-ingar hafa enn yfir þegar flautað hefur verið til hálfleiks í þriðja leik liðsins gegn Njarðvík í úrslitum Iceland Express deildarinnar. Brenton Birmingham er stigahæstur Njarðvíkinga með 16 stig en Tyson Patterson er kominn með 18 stig hjá KR. Leikurinn er í beinni á Sýn.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    KR yfir eftir fyrsta leikhluta

    KR-ingar hafa yfir 22-20 eftir fyrsta leikhluta í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi Iceland Express deildarinnar, en leikið er í Njarðvík. Leikurinn hefur verið mjög harður og hátt spennustig einkennir leik beggja. Tyson Patterson hefur verið maður leiksins til þessa og er kominn með 12 stig hjá KR.

    Körfubolti