Kjartan er kominn heim til Íslands Kjartan Guðmundsson er kominn heim til Íslands rúmum átta vikum eftir að hann lenti í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku. Móðir hans og dóttir létust í slysinu. Hann flaug í sjúkraflugvél ásamt bróður sínum og ferðalagið tók hátt í sólarhring. Innlent 14.2.2026 13:54
Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Kjartan Guðmundsson er nú á leið til Íslands í sjúkraflugi rúmum átta vikum eftir að hann lenti í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku. Móðir hans og dóttir létust í slysinu. Innlent 13.2.2026 12:54
Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Áætluð verklok á meðferðarheimilinu Lækjarbakka í Gunnarsholti á Rangárvöllum eru um næstu mánaðamót, janúar/febrúar, og er gert ráð fyrir að húsið verði afhent Barna- og fjölskyldustofu á þeim tíma. Stefnt er að því að taka á móti fyrsta skjólstæðingi í lok febrúar 2026. Pláss er fyrir sex drengi og kynsegin á meðferðarheimilinu. Innlent 27.1.2026 06:32
„Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Viðbrögð við söfnun fyrir fjölskyldu íslensku stúlkunnar, sem lést í bílslysi í Suður-Afríku á miðvikudag, hafa verið góð. Skipuleggjandi söfnunarinnar segir harminn ólýsanlegan og hvetur fólk til að leggja hönd á plóg til að létta undir með móðurinni. Innlent 22. desember 2025 11:21
Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir fjölskyldu íslensku stúlkunnar sem lést í bílslysi í Suður-Afríku á miðvikudag. Vinkona móður stúlkunnar, sem og bróður hennar hvern hún var að heimsækja, stendur fyrir söfnuninni. Innlent 21. desember 2025 23:29
Níu skotnir til bana á krá Níu voru skotnir til bana og tíu særðir þegar hópur manna á tveimur bílum hóf skothríð á gesti krár í bæ nærri Johannesburg í Suður-Afríku í gærkvöldi. Mennirnir eru sagðir hafa skotið fjölda skota að gestum krárinnar og svo á fólk af handahófi þegar þeir keyrðu á brott. Erlent 21. desember 2025 10:10
Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Íslendingarnir sem létust í umferðarslysi í Suður-Afríku í vikunni voru þar til að heimsækja íslenskan dreng í fíknimeðferð. Systir drengsins og föðuramma létust í slysinu, en faðir hans liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Innlent 20. desember 2025 17:18
Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Táningsstúlka og eldri kona frá Íslandi létust í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku á miðvikudag. Karlmaður slasaðist lífshættulega í slysinu og liggur á sjúkrahúsi ytra. Innlent 19. desember 2025 18:30
Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Bústaðakirkja hefur ákveðið að opna kirkjuna vegna alvarlegs bílslyss sem Íslendingar lentu í í Suður-Afríku á miðvikudag. Sigríður Kristín Helgadóttir, prestur í Bústaðakirkju, segir það gert í samráði við fjölskylduna. Kirkjan verður opin frá og með klukkan 14 í dag. Innlent 19. desember 2025 12:18
Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Íslensk fjölskylda lenti í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku á miðvikudaginn. Fjölskyldan er búsett á Íslandi en á ferðalagi ytra. Málið er á borði borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. Innlent 19. desember 2025 10:08
Fjólubláar prófílmyndir Fyrir tæpum mánuði síðan hópuðust konur og kvár saman til að fagna 50 ára afmæli kvennafrídagsins. Samstaða, von og hvetjandi andi vöktu athygli út fyrir landsteinana þar sem samfélagsmiðlar báru fréttir hratt milli ólíkra staða og heimshorna. Skoðun 20. nóvember 2025 09:32
„Ég hef aldrei grátið af gleði áður en ég gerði það í gær“ Ingibjörg Einarsdóttir segist enn í spennufalli eftir að hún fékk loks að tala við son sinn í gær um mánuði eftir að hún fylgdi honum í meðferð í Suður-Afríku. Sonur hennar hafði verið á stöðugri ferð í gegnum meðferðarkerfið á Íslandi í um sjö mánuði, með engum árangri, áður en hún ákvað að fara með hann út á meðferðarheimilið Healing Wings. Þrír íslenskir drengir eru þar í meðferð eins og er. Innlent 12. nóvember 2025 15:02
Erfitt að skilja drengina eftir í Suður-Afríku en jákvætt að þeir séu loks edrú Þrjár mæður sem eiga syni á meðferðarheimilinu Healing Wings í Suður-Afríku segja það hafa verið mikinn létti að koma sonum sínum í meðferðina. Þær eru allar sammála um að þetta hafi verið síðasta úrræði en eru sannfærðar um að þeir fái aðstoð þarna. Einn drengurinn, sonur Maríu Eiríksdóttur, er búinn að vera í þrjá mánuði og hefur beðið um að fá að vera í tólf. Synir Jóhönnu Eivinsdóttur og Ingibjargar Einarsdóttur eru búnir að vera í um mánuð og þær fá að tala við þá í fyrsta sinn síðar í dag. Innlent 11. nóvember 2025 08:56
Þurftu að aflýsa 24 þúsund manna maraþonhlaupi Ekkert varð af maraþonhlaupinu vinsæla í Höfðaborg sem átti að fara fram í gær. 32. útgáfu Sanlam Cape Town-maraþonsins var nefnilega aflýst „af öryggisástæðum“. Sport 20. október 2025 23:31
„Þessi málaflokkur er bara í drasli“ Mummi Týr Þórarinsson, fyrrverandi forstöðurmaður Götusmiðjunnar, segist hafa verið sorgmæddur að heyra af því að foreldrar barna með vímuefnavanda þurfi nú að fara með þau til Suður-Afríku til að fá meðferð sem virkar. Innlent 15. október 2025 08:58
Kynntust í Keflavík og gista saman í villu í Kenýa „Við höfum meðal annars spilað golf á hrikalega flottum PGA golfvelli, farið í geggjað tveggja daga Safari, hitt ættbálka, farið á ströndina, farið á Jet Ski, borðað út um allt á frábærum veitingastöðum og notið lífsins þess á milli í villunni,“ segir Arnar Dór sem er staddur í sannkölluðu ævintýri í Kenýa um þessar mundir. Ferðalög 7. október 2025 20:00
Ekki áfellisdómur yfir kerfinu að farið sé með börn í meðferð í Suður-Afríku Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, segir það ekki áfellisdóm yfir íslensku barnaverndar- og meðferðarkerfi að foreldrar leiti til Suður-Afríku með börn sín í meðferð vegna vímuefnavanda þeirra. Hann segir meðferðina í Suður-Afríku til skoðunar í ráðuneytinu. Innlent 7. október 2025 13:33
Á leið til Suður-Afríku með syni sína í meðferð vegna úrræðaleysis Mæður tveggja fjórtán ára drengja undirbúa nú að fara með þá til Suður-Afríku í meðferð vegna alvarlegs vímuefnavanda. Þær segja úrræðaleysið algjört á Íslandi og úrræðin sem séu í boði „skrípaleik og leikrit“. Börnin gangi inn og út úr meðferðarúrræðum til að ná sér í vímuefni. Þegar hafa fjögur önnur börn farið í sama meðferðarúrræði í Suður-Afríku. Innlent 7. október 2025 09:26
Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Sendiherra Suður-Afríku í Frakklandi fannst látinn nálægt fjögurra stjörnu hóteli í París. Hans var leitað af lögreglu að beiðni eiginkonu hans. Erlent 30. september 2025 20:45
Errol Musk sakaður um að misnota börn sín Errol Musk faðir milljarðamæringsins Elon Musk hefur verið sakaður um að hafa kynferðislega misnotað fimm barna sinna auk stjúpbarna frá árinu 1993. Sjálfur þvertekur hann fyrir brotin. Erlent 23. september 2025 15:50
Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Kólumbíska poppsöngkonan Shakira og framleiðandi hennar eru sögð hafa hirt stóran hluta af ágóða HM-lagsins „Waka Waka“ þrátt fyrir að Alþjóðaknattspyrnusambandið hafi sagt að hann rynni allur til góðgerðarmála. Engin svör hafi fengist frá sambandinu um afdrif peninganna. Erlent 19. ágúst 2025 11:11
Lífstíðarfangelsi fyrir að selja dóttur sína Kona frá Suður-Afríku hefur verið úrskurðuð í lífstíðarfangelsi fyrir að selja sex ára dóttur sína. Dóttirin er enn ekki fundin. Erlent 29. maí 2025 22:39
Sat fyrir forseta Suður-Afríku með ásökunum um þjóðarmorð á hvítum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, missti stjórn á skapi sínu á átakasömum blaðamannafundi með Cyril Ramaphosa, forseta Suður-Afríku í Hvíta húsinu í dag. Þar hélt Trump því fram að verið væri að myrða hvíta bændur í massavís og að morðingjarnir kæmust upp með það og lét kollega sinn horfa á myndband sem átti að styðja við falskar yfirlýsingar hans. Erlent 21. maí 2025 19:01
Fótboltamaður lést í upphitun Suður-afríski fótboltamaðurinn Sinamandla Zondi lést eftir að hafa hnigið niður rétt fyrir deildarleik í Suður Afríku. Fótbolti 26. apríl 2025 08:32