Trausti vill snúa aftur Trausti Hjaltason vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í næstu sveitarstjórnarkosningunum. Hann var bæjarfulltrúi flokksins í tvö kjörtímabil og hefur áður verið varaþingmaður fyrir Suðurkjördæmi. Prófkjör flokksins fer fram 13. mars. Innlent 25. febrúar 2026 20:56
Ellefu í framboði í prófkjöri Pírata Ellefu eru í framboði í prófkjöri Pírata í Reykjavík. Prófkjör fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor hefst á morgun. Tveir sækjast eftir fyrsta sæti, fjórir eftir öðru til fimmta sæti og fjöldi eftir neðri sætum. Innlent 25. febrúar 2026 10:06
Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur á aðalfundi fulltrúaráðs flokksins í gærkvöldi. Tillaga kjörnefndar var þar lögð fram og hún samþykkt. Innlent 25. febrúar 2026 07:31
Guðmundur Ingi í formlegar viðræður við Vor til vinstri Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Rósarinnar og Afstöðu, segist hafa átt í samtölum við fulltrúa Vors til vinstri um mögulegt samstarf samstarf í komandi sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík. Innlent 24. febrúar 2026 15:11
Miklar hreinsanir fyrirhugaðar í borgarstjórnarliði xD Brynjar Níelsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, er á leið í borgarstjórn. Hann ætlar að gefa kost á sér og mun væntanlega skipa þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Morgunblaðið boðar miklar hreinsanir á núverandi borgarstjórnarfulltrúum. Innlent 23. febrúar 2026 12:00
Framboðið heitir Vinstrið og Finnur verður í sjötta sæti Sameiginlegt framboð Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og Vors til vinstri í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum heitir Vinstrið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vori til vinstri. Innlent 23. febrúar 2026 11:10
Líf bar sigur úr býtum Líf Magneudóttir, núverandi oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, sigraði í forvali flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún mun vera í öðru sæti á sameiginlegum lista VG og Vors til Vinstri. Sanna Magdalena Mörtudóttir mun hins vegar leiða listann. Innlent 22. febrúar 2026 17:29
Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð samþykkti framboðslistann fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Ragnar Sigurðsson formaður bæjarráðs verður áfram oddviti listans. Innlent 21. febrúar 2026 14:09
Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið Forval Vinstri grænna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor stendur nú yfir og lýkur klukkan fimm á morgun. Í morgun höfðu 27 prósent á kjörskrá greitt atkvæði en fjölgað hefur töluvert í flokknum undanfarnar vikur. Innlent 21. febrúar 2026 11:51
„Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Tveir frambjóðendur vilja oddvitasætið í forvali Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Sitjandi oddviti segir vinstrið þurfa á reynslu að halda en mótframbjóðandinn boðar meiri róttækni í húsnæðis- og samgöngumálum. Innlent 20. febrúar 2026 20:26
Regína lætur staðar numið í Mosó Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri í Mosfellsbæ hefur ákveðið að hætta störfum að loknum sveitarstjórnarkosningum í vor hver sem útkomin verði. Ákvörðunin sé ekki léttvæg en hún vilji að framboð viti að hverju þau gangi nú þegar kosningabaráttan fer í hönd. Innlent 20. febrúar 2026 12:29
Bráðabirgðaákvæði um kosningar í Grindavík samþykkt á þingi Alþingi hefur samþykkt bráðabirgðaákvæði í lögum um sveitarstjórnarkosningar vegna kosninga í Grindavík. Lögin gera það að verkum að þeir Grindvíkingar, sem fluttu lögheimili sín í kjölfar rýmingar þann 10. nóvember 2023, geta nú valið hvort þeir kjósi í nýju sveitarfélagi í kosningum í vor eða í Grindavík. Innlent 19. febrúar 2026 16:50
Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, segir Björk Vilhelmsdóttur, formann uppstillingarnefndar í borginni, hafa farið með ósannindi í samtali við blaðamann. Guðmundur Ingi er nú í viðræðum við önnur framboð í borginni. Innlent 19. febrúar 2026 15:17
Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Leikskólar í Ölfusi verða gjaldfrjálsir frá og með næstu mánaðamótum. Á fundi bæjarráðs í dag var samþykkt að öllum börnum verði boðin 36 tíma vistun á viku án endurgjalds, óháð tekjum foreldra. Með þessu fellur tekjutenging niður og sama fyrirkomulag gildir um öll börn. Innlent 19. febrúar 2026 14:20
Guðmundi Inga hafnað Björk Vilhelmsdóttir formaður uppstillinganefndar Samfylkingarinnar segir að ekki hafi tekist að myndast traust milli flokksins og Guðmundar Inga Þóroddssonar frambjóðanda. Innlent 19. febrúar 2026 13:10
Annað hvort í pólitíkina eða á eftirlaun Brynjar Níelsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur dregið umsókn sína um embætti héraðsdómara til baka. Hann segist ekki frágengið hvað taki við. Innlent 17. febrúar 2026 16:00
Fyrrverandi markvörður vill fram fyrir Miðflokk Beitir Ólafsson, fyrrverandi markvörður KR og HK, hefur óskað eftir sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningum í vor. Í tilkynningu frá Beiti segir hann að flokkurinn hafi skapað sér sess með orðræðu sem hann tengi við. Innlent 17. febrúar 2026 14:41
Körfuboltastjarna íhugar framboð í Garðabæ Hlynur Bæringsson, sem setti körfuboltaskóna á hilluna eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Stjörnunni síðasta vor, segist ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hann gefi kost á sér fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Innlent 17. febrúar 2026 11:11
Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, mun áfram leiða lista Sjálfstæðisflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Næstu sæti skipa Björg Fenger, formaður bæjarráðs, og Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar. Innlent 16. febrúar 2026 20:30
Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi og eigandi Extraloppunnar, vill áfram leiða lista Framsóknar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún var oddviti flokksins í kosningunum 2022 og tók í kjölfarið sæti í bæjarstjórn. Innlent 16. febrúar 2026 15:59
Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Ellefu einstaklingar vilja vera á lista Pírata í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Fram kom í fyrr í dag að Kristinn Jón Ólafsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, sækist eftir því að leiða listann ásamt Alexöndru Briem borgarfulltrúa. Innlent 16. febrúar 2026 15:26
Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Kristinn Jón Ólafsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, gefur kost á sér til þess að leiða lista flokksins í komandi kosningum. Til þessa hefur Alexandra Briem ein gefið kost á sér en prófkjör Pírata í Reykjavík fer fram rafrænt dagana 26. febrúar til 6. mars. Innlent 16. febrúar 2026 12:24
Stillir sér upp á miðjunni Nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins segist ekki hafa áhuga á að færa flokkinn til hægri líkt og hann telur klofningsflokkinn Miðflokkinn hafa gert. Hann segist ætla að efla flokkinn á miðjunni þar sem hann hafi sögulega verið. Innlent 16. febrúar 2026 09:22
„Eins og knattspyrnuþjálfari sem er á bekknum“ Lilja Alfreðsdóttir, nýr formaður, Framsóknarflokksins segist ætla að vinna náið með þingflokknum þrátt fyrir að eiga ekki sæti þar sjálf. Hún líkir því að vera knattspyrnuþjálfari. Þingflokksformaðurinn laut í lægra haldi í formannskjörinu. Innlent 15. febrúar 2026 17:11
Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Landsmálafélagið Rósin hefur sagt sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar í Reykjavík. Varaformaður segir er ósáttur við að formanni félagsins hafi ekki fengið sæti á lista. Innlent 14. febrúar 2026 17:01
Ánægja með bæjarstjórann en Sjálfstæðismenn með mest fylgi Tæplega 70 prósent Vestmannaeyinga segjast ánægðir með störf Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra en þó hyggjast talsvert fleiri kjósa Sjálfstæðisflokkinn en H-listann samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Innlent 14. febrúar 2026 12:23
Óðinn Svan leiðir L-listann Fréttamaðurinn Óðinn Svan Óðinsson mun leiða L-listann í komandi bæjarstjórnarkosningum á Akureyri. Innlent 13. febrúar 2026 17:40
VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Framboðið Vor til vinstri auglýsir nú eftir fólki sem hefur áhuga á að gefa kost á sér í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Sanna Magdalena Mörtudóttir fer fyrir framboðslistanum sem ætlar að bjóða fram í bandalagi við Vinstri græn í borginni í vor. Þá hefur félögum í Vinstri grænum í Reykjavík fjölgað um tæplega tuttugu prósent á síðustu vikum en VG heldur forval um efstu sæti sem falla í hlut VG á sameiginlegum lista flokkanna. Innlent 13. febrúar 2026 12:12
Íhugar að bjóða fram til varaformanns Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, íhugar nú að bjóða sig fram til varaformanns Framsóknarflokksins. Stefán Vagn Stefánsson þingmaður flokksins er sá eini sem hefur gefið kost á sér til embættisins en tvær hafa boðið fram til formanns. Innlent 12. febrúar 2026 16:09
Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns? Lífið 12. febrúar 2026 07:01