Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði Tuttugu prósent þeirra sem eru á kjörskrá hafa greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Kjörsóknin er sú mesta sem sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafi séð hingað til. Innlent 28. ágúst 2026 12:01
Þorgerður beygði af í Bítinu Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hafa borist alvarlegar hótanir síðustu vikur og átti erfitt með að ræða þær í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún segir þær til skoðunar hjá lögreglu. Hún segist þó telja sig örugga. Hún sagðist berjast fyrir bættum lífskjörum Íslendinga og að atkvæðagreiðslan á morgun snúist um það, og breytta stöðu alþjóðlega. Innlent 28. ágúst 2026 08:52
Segir Katrínu sparka í konuna sína Eiginmanni framkvæmdastjóra Evrópuhreyfingarinnar blöskrar að Katrín Jakobsdóttir skuli stilla sér kyrfilega upp með peningavaldinu og sparka í konuna hans í leiðinni. Katrín ávarpaði samkomu Áfram Ísland á Austurvelli í gær og sagðist myndu kjósa nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun. Innlent 28. ágúst 2026 08:05
Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Tveir ungir vinstrimenn tókust á í Vísi að viðræðum um það hvort Ísland ætti að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ungur VG-liði hefur áhyggjur af réttindum verkafólks innan sambandsins en ungur jafnaðarmaður segir ESB hafa gert margt til að tryggja réttindi vinnandi fólks. Þeir segjast þó bera virðingu fyrir sjónarmiðum hvor annars; enginn sé að vinna fjallkonunni nokkurt mein. Innlent 28. ágúst 2026 08:00
Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Það gæti orðið minni munur á milli Já og Nei þegar talið verður upp úr kjörkössunum á laugardaginn heldur en skoðanakannanir benda til núna, að mati stjórnmálafræðings. Skoðanakannanir benda til þess að úrslitin verði hnífjöfn, svo jöfn að örfá atkvæði gætu skilið að. Dæmi frá Bretlandi og Bandaríkjunum sýni að fylgi annarrar hliðar geti verið vanmetin. Innlent 28. ágúst 2026 07:01
Hvað kýs fræga fólkið? Kosið verður á morgun um það hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Fjöldi fólks hefur gefið upp afstöðu sína í málinu og hefur Vísir tekið saman tuttugu fræga einstaklinga sem ætla ýmist að kjósa já eða nei, af ýmsum ástæðum. Við sögu koma athafnamenn, listafólk, fólk úr íþróttaheiminum og fleiri góðir. Lífið 28. ágúst 2026 07:01
„Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Katrín Jakobsdóttir segist vera ósammála túlkun ríkisstjórnarinnar um að þjóðaratkvæðagreiðslan um helgina sé einungis til þess að skoða möguleikana. Afstaða hennar gagnvart aðildar að Evrópusambandinu sé breytt frá því að síðast var haldið í þá vegferð. Innlent 28. ágúst 2026 06:00
Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ Í Vísi að viðræðum tekst ungt fólk sem staðsetur sig hægra megin í stjórnmálum á um það hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. Ungur viðreisnarmaður segir stöðugleika felast í upptöku evru en ungur sjálfstæðismaður segir það á dýru verði keypt „að missa stjórn á okkar peningamálum“. Nei-sinninn segir að hátt í 99 prósent af því sem felist í aðild að Evrópusambandinu liggi fyrir en já-sinninn telur ljóst að það sé „fullt sem hægt er um að semja“. Innlent 27. ágúst 2026 23:12
Segja ESB hvorki geta tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Sérfræðingur í Evrópurétti og einn höfunda álitsgerðar telur Íslendinga ekki þurfa að óttast að Evrópusambandið taki yfir vatns- eða orkuauðlindir landsins. Sama gildi um lagningu sæstrengs til Íslands. Ný auglýsing þar sem raunveruleg hætta er sögð á því að íslensk orka myndi streyma úr landi hefur vakið athygli. Innlent 27. ágúst 2026 20:59
EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Norðmenn fylgjast grannt með atkvæðagreiðslunni á Íslandi 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið, ekki síst sjávarútvegsmenn. Snorre Rein, norskur stjórnmálaáhrifavaldur úr röðum sósíaldemókrata, er viðmælandi dagsins í Vísi að viðræðum. Innlent 27. ágúst 2026 18:50
Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Aðeins fleiri segjast ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Breyting er þar á þar sem fyrri kannanir hafa sýnt fram á meiri stuðning við já-hliðina. Innlent 27. ágúst 2026 18:13
„Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra ávarpaði gesti útifundar samtakanna Áfram Ísland á Austurvelli. Samtökin hvetja landsmenn til þess að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn. Reynslan hafi sýnt Katrínu að betra væri að Ísland stæði áfram utan Evrópusambandsins. Innlent 27. ágúst 2026 18:10
Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Það vakti undrun einhverra að slökkviðliðsfólki úr röðum Brunavarna Suðurnesja skyldi bregða fyrir í auglýsingu nei-hreyfingarinnar Áfram Ísland á dögunum. Slökkviliðsstjóri segir að í beiðni sem honum barst um að taka upp kynningarefni hafa hvergi verið minnst á að það væri fyrir auglýsingu hreyfingarinnar. Áfram Ísland segir slökkviliðsmennina ekki mótfallna því að vera í auglýsingunni. Innlent 27. ágúst 2026 16:45
Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Nei-hreyfingin hefur efnt til útifundar á Austurvelli klukkan 17:00 í dag en í aðdraganda fundarins hafa símaskilaboð borist fjölda fólks þar sem því er boðið að mæta til að stilla saman strengi fyrir laugardaginn. Meðal ræðumanna eru Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fyrrverandi þingmaður og ráðherra. Hægt er að fylgjast með streymi á Vísi. Innlent 27. ágúst 2026 16:29
Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá SJÁ, hreyfing þeirra sem vilja segja „Já til að sjá“, heldur opinn viðburð í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Fundurinn fer fram klukkan 17:00 í dag í Tónabíói, Skipholti 33, og er öllum boðið að kíkja við en einnig verður hægt að fylgjast með streymi á Vísi. Innlent 27. ágúst 2026 16:27
„Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Þau Þórhildur Þorkelsdóttir ráðgjafi og hlaðvarpsstjórnandi, Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjórnandi og Lilja Katrín Gunnarsdóttir útvarpskona mættu í fjórða og síðasta Pallborð Vísis fyrir laugardaginn 29. ágúst. Þar voru þau einróma um að þjóðin hefði gott af umræðunni sem hafi skapast í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Innlent 27. ágúst 2026 16:04
Almenningur hafi aldrei átt séns Í fjórða og síðasta Pallborði Vísis í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag mættu fyrst stjórnmálafræðingarnir og þáttastjórnendur Skuggavaldsins þau Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir. Þau snertu á upplýsingaóreiðu og hafði Eiríkur á orði að almenningur hafi aldrei „átt séns.“ Umræðan sé farin að minna ískyggilega mikið á Brexit umræðu í Bretlandi á sínum tíma. Innlent 27. ágúst 2026 14:38
Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Hafsteinn Birgir Einarsson stjórnmálafræðingur segir erfitt að spá fyrir um hvernig ungt fólk og óákveðnir muni kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Óákveðnir séu almennt taldir halla að minni breytingum en Brexit-kosningin sýni að sú regla haldi ekki alltaf. Innlent 27. ágúst 2026 13:21
Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Farið verður yfir samsæriskenningar og fleiri fullyrðingar sem tæplega standast skoðun í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag í fjórða og síðasta Pallborði Vísis fyrir kosningar. Auk þess verður kosningabaráttan hingað til gerð upp af álitsgjöfum. Innlent 27. ágúst 2026 12:40
„Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Formaður Starfsgreinasambandsins segir það slá sig illa að forsendur kjarasamninga hafi brostið í morgun, þegar verðbólgumæling ágústmánaðar var birt, þó að það hafi legið í loftinu. Hann telur að erfitt verði að byggja upp traust milli verkalýðshreyfingarinnar og atvinnulífsins á ný. Viðskipti innlent 27. ágúst 2026 10:52
Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Víða hafa verið haldnir fundir, pallborð og kappræður nú þegar þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um áframhaldandi viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu nálgast óðfluga. Félag fólks með þroskahömlun stóð fyrir einum slíkum í dag, þann 26. ágúst, og leit fréttamaður Sýnar þar við. Innlent 26. ágúst 2026 23:21
Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti ávarp, söngkonan Bríet tók lagið og uppistandarinn Bergur Ebbi Benediktsson leiddi samtal við salinn í svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ í Austurbæ í Reykjavík sem fram fór fyrr í dag vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardaginn. Innlent 26. ágúst 2026 21:00
Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Forsætisráðherra ávarpaði gesti á svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ en þar lagði hún mikla áherslu á að það ætti að treysta því að þjóðin viti sínu viti. Undanfarið hafi málflutningur tengdur slagorðinu Já til að sjá snúist um að það sé markaðsbrella en það, líkt og annar málflutningur nei-ara, byggi á sömu forsendunni: um að þjóðin geti bara ekki skilið þetta mál — og geti bara ekki verið fær um að taka svona ákvörðun með þjóðaratkvæði. Innlent 26. ágúst 2026 18:59
Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Rétt rúmur helmingur ber mikið eða fremur mikið traust til umfjöllunar Ríkisútvarpsins um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Aðeins sex prósent bera mikið eða fremur mikið traust til DV í sömu umfjöllun. Þá segist einn af hverjum fimm bera ekkert traust til Morgunblaðsins í umræðunni. Innlent 26. ágúst 2026 15:11
Hvað gerist ef það verður jafnt? Jöfn niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag myndi hvorki kalla á aðra atkvæðagreiðslu né hlutkesti. Engin regla kveður heldur á um sjálfkrafa endurtalningu þótt aðeins eitt atkvæði skilji að já og nei. Innlent 26. ágúst 2026 14:44
Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum „Við sjáum ekki undir hvaða kringumstæðum hægt er að fá ítarlegri sérlausn en Finnar,“ segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamataka, í nýjasta þætti Vísis að viðræðum. Hún telur einu leiðina til þess að íslenskir bændur geti fengið eitthvað fyrir sinn snúð innan Evrópusambandsins sé með undanþágu frá allri landbúnaðarstefnu ESB, sem sé vægast sagt hæpið. Innlent 26. ágúst 2026 14:41
Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Landsmenn ganga að kjörborðinu á laugardaginn og greiða atkvæði um hvort að Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Aðeins eru þrír dagar í að kjörstaðir um land allt opni en flestir þeirra opna klukkan níu og verður lokað klukkan 22. Vísir hefur tekið saman nokkur helstu atriðin varðandi atkvæðagreiðsluna og framkvæmd hennar. Innlent 26. ágúst 2026 14:01
Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Erlendir fjölmiðlar beina nú sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. AFP segir mjótt á munum en breska dagblaðið Telegraph fjallar um kosningarnar í samhengi við þorskastríðin og langvarandi baráttu Íslendinga fyrir yfirráðum yfir fiskimiðunum. Erlent 26. ágúst 2026 11:38
Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Líklegt er að fyrstu tölur sem birtar verða úr þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn muni sýna fleiri nei. Tölurnar munu líklega fyrst koma af landsbyggðinni þar sem fleiri ætla að segja nei, samkvæmt könnunum. Reykvíkingar eru líklegastir til að segja já. Innlent 26. ágúst 2026 08:54
Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er handan við hornið og hefur tekið yfir alla umræðu í landinu. Nóg hefur verið rætt og ritað um málið og margir farið óhefðbundnar leiðir í nálgun sinni. Vísir hefur tekið saman kjánalegustu augnablikin úr umræðunni síðustu vikurnar. Menning 26. ágúst 2026 07:02