Svipta hulunni af þema Met Gala Óhætt er að segja að hinn árlegi Met Gala viðburður sé einn stærsti tískuviðburður ársins. Á hverju ári er valið sérstakt þema fyrir viðburðinn sem skærustu stjörnur heims klæða sig eftir. Það hafa því eflaust margir beðið spenntir eftir því að fá að vita hvaða þema verður fyrir valinu fyrir þennan stórviðburð á næsta ári. Lífið 30. september 2022 18:00
Orrifinn hannar bleiku slaufuna í ár Söfnunarátakið Bleika slaufan er farið af stað en í ár var slaufan hönnuð af þeim Helgu Friðriksdóttur og Orra Finnbogasyni hjá Orrifinn Skartgripum. Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins, tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Lífið 30. september 2022 12:01
Segir fótleggi eiginkonu fyrrverandi vera flottasta Fatamerki Kim Kardashian, Skims hefur nú bætt brjóstahöldurum við vöruúrvalið sitt. Í auglýsingaherferð fyrir undirfötin má sjá fyrirsætuna og leikkonuna, Brooke Shields. Í auglýsingunni fer Shields fögrum orðum um fótleggi konu fyrrverandi eiginmanns síns. Tíska og hönnun 28. september 2022 15:33
Áslaug Magnúsdóttir gerð að góðgerðarsendiherra tísku Athafnakonan Áslaug Magnúsdóttir var gerð að góðgerðarsendiherra tísku hjá samtökunum Fashion 4 Development. Vistvæna tískuvörumerkið Katla, sem hún stofnaði, hlaut einnig verðlaun fyrir störf sín í þágu umhverfismála en hún er forstjóri fyrirtækisins. Lífið 28. september 2022 15:30
Það heitasta í haust að mati Gumma kíró Gummi kíró fór yfir hausttískuna í Brennslunni á FM957 í dag. Kírópraktorinn er orðinn þekktur fyrir dýran fatasmekk, en hann spáir einstaklega mikið í fötum og því helsta sem er að gerast í tískuheiminum. Tíska og hönnun 28. september 2022 14:01
Mætti óvænt og fagnaði nýju línunni Fyrirsætan Cara Delevingne mætti á tískuvikuna í París í gær þar sem línunni Cara Loves Carl var fagnað. Óvissa var með hvort hún myndi mæta á viðburðinn, en hún lét ekki sjá sig í partýinu sem var haldið þegar línan fór í sölu fyrr í mánuðinum. Lífið 28. september 2022 12:00
„Enginn veit neitt og allir eru bara að gera sitt besta“ „Það er alveg hreint ótrúlegt að við séum að fara af stað í sjötta sinn. Litla verkefnið sem hefur sprungið svo fallega út og gefið svo mikið af sér,“ segir Elísabet Gunnarsdóttir ein af konunum á bak við verkefnið Konur eru konum bestar. Tíska og hönnun 25. september 2022 13:31
„Mér finnst fötin ekki skapa manninn heldur öfugt“ Það má með sanni segja að tískan einkenni líf og tilveru fatahönnuðarins Sædísar Ýrar en hún hefur vakið athygli fyrir litadýrð, glans og gleði í fatalínu sinni By Sædís Ýr. Hún hvetur fólk til að vera óhrætt við að finna sinn eigin stíl og fylgja sínu en það sem hún elskar mest við tískuna er hvað hún er fjölbreytt. Sædís Ýr er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 25. september 2022 07:00
Logi Pedro hannar fyrir 66°Norður og Plastplan „Ég hef alltaf notið mín mjög vel að gera skapandi hluti í tæknilegu umhverfi,“ segir Logi Pedro. Listamaðurinn fjölhæfi tók þátt í að hanna nýjustu vöru 66°Norður og Plastplan. Tíska og hönnun 23. september 2022 09:15
Segir kórkápu biskups algjört listaverk og þvílíkan heiður að fá að bera hana Forláta biskupskápa Hólastiftis, eftirgerð kórkápu Jóns Arasonar, hefur núna skipt um herðar, með vígslu nýs Hólabiskups. Solveig Lára Guðmundsdóttir, fráfarandi vígslubiskup, segir það hafa verið mikinn heiður að fá að bera kórkápuna enda sé hún algjört listaverk. Innlent 21. september 2022 22:11
Nýjasta stórstjarna Hollywood fer sínar eigin leiðir Leikkonan Florence Pugh fer með aðalhlutverk í umtöluðu kvikmyndinni Don't Worry Darling sem frumsýnd verður á föstudaginn næsta í kvikmyndahúsum um allan heim. Florence, sem er 26 ára gömul, hefur vakið mikla athygli að undanförnu fyrir glæsilegan stíl sinn, yfirvegað viðhorf og einlæga, sjarmerandi nærveru. Blaðamaður ákvað að fara yfir feril Florence og fá nánari innsýn í líf þessarar rísandi stórstjörnu. Lífið 21. september 2022 11:30
Með nælu og hatt til heiðurs langömmu Mæðgurnar Katrín prinsessa af Wales og Karlotta heiðruðu minningu Elísabetar II Bretadrottningar við útför hennar í dag með skartgripavali sínu. Útförin fór fram í Westminster Abbey í Lundúnum og var henni streymt hér á Vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi. Lífið 19. september 2022 16:40
„Ég held við séum öll föst í að vera við sjálf“ „Sagan af Öskubusku er kannski besta dæmið. Um konu sem er í mjög slæmri stöðu en með nýjum kjól þá getur hún blekkt og orðið „önnur“ og nær sér í prinsinn og kemst út úr ósanngjörnum aðstæðum og bætir líf sitt stórkostlega,“ segir Linda Björg Árnadóttir doktorsnemi í félagsfræði við Háskóla Íslands þar sem hún er að rannsaka félagsfræði tísku. Atvinnulíf 19. september 2022 07:01
„Finnst lítið spennandi að fara í jakkaföt og skyrtu“ Förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason hefur starfað innan tískuheimsins í langan tíma og farðað hinar ýmsu stórstjörnur, á borð við Íslandsvinkonuna Katy Perry og Dua Lipa. Hann elskar hvað tískan er breytileg og hefur farið í gegnum ólík tímabil í klæðaburði en hallast núna að andro stíl og hefur alltaf verið hrifinn af litum og munstrum. Ísak Freyr er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 18. september 2022 07:02
Náðu fram heitasta naglatrendinu með vörum sem þú átt nú þegar til í snyrtibuddunni Þeir sem fylgjast vel með í heimi tísku og förðunar hafa varla látið hinar vinsælu Hailey Bieber-neglur framhjá sér fara. Ekkert lát virðist vera á vinsældum þessa trends og því vel við hæfi að fara yfir fara yfir það hvernig hægt er að ná fram þessu lúkki heima, með vörum sem ættu að vera til í flestum snyrtibuddum. Lífið 17. september 2022 07:00
Fyrstur manna á forsíðu breska Vogue Leikarinn Timothée Chalamet fékk þann heiður að vera fyrstur manna til þess að sitja einn á forsíðu tímaritsins breska Vogue. Þar fetar hann í fótspor söngvarans Harry Styles, sem var fyrsti maðurinn til þess að gera slíkt hið sama hjá ameríska Vogue árið 2020. Lífið 16. september 2022 16:31
Eigandi Patagonia gefur fyrirtækið til góðgerðarsjóðs Bandaríski auðmaðurinn Yvon Chouinard, sem er stofnandi og eigandi útivistarfataframleiðandans Patagonia, segir að hann hafi gefið fyrirtækið til góðgerðarsjóðs. Viðskipti erlent 15. september 2022 07:41
„Eins og að vera í íslensku felulitunum“ 66°Norður gefur út Dyngju úlpuna í sérstakri útgáfu með jöklaprenti. Úlpan ber mynd sem ljósmyndarinn Benjamin Hardman tók af íslenskum jöklum. Hann hefur síðustu misseri vakið mikla athygli fyrir myndir sínar af íslenskri náttúru. Lífið 14. september 2022 09:10
Litagleði á setningu Alþingis 153. setning Alþingis fór fram fyrr í dag. Eins og fjallað var um hér á Vísi flutti Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, ávarp fyrir alþingismenn. Tíska og hönnun 13. september 2022 17:37
Tískan á Emmy verðlaununum: Fjólubláar pallíettur og ljósblá jakkaföt Emmy-verðlaunahátíðin fór fram í 74. skiptið í gær og skörtuðu stjörnurnar sínu fegursta á gyllta dreglinum. Hvít jakkaföt, bláir kjólar og fjólubláar dragtir fönguðu meðal annars athyglina. Tíska og hönnun 13. september 2022 16:30
Tískudívur landsins sameinuðust í afmæli Andrá Tískuverskuverslunin Andrá Reykjavík varð 1 árs laugardaginn 3. september. Í tilefni af afmælinu sló Andrá til veislu. Tíska og hönnun 12. september 2022 14:32
„Rokkstjörnustælar og bling“ Litagleði, gelluvíbrur og rokkstjörnu stælar einkenna Júlíu Grönvaldt, sem starfar sem listrænn stjórnandi og stílisti við fjölbreytt verkefni tengd tísku, menningu og listum. Hún lærði tískumiðlun í Flórens á Ítalíu en flutti heim eftir námið til að vinna sem sjálfstætt starfandi og elskar að geta notað ástríðu sína á tísku í starfi. Júlía er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 11. september 2022 07:01
Ratajkowski segir skilið við eiginmann sinn Fyrirsætan, leikkonan og rithöfundurinn Emily Ratajkowski er sögð hafa sótt um skilnað frá eiginmanni sínum til fjögurra ára en eiginmaðurinn Sebastian Bear-McClard, er sakaður um að hafa haldið framhjá Ratajkowski. Lífið 9. september 2022 21:45
Ný innsetning íslenskra húsgagna og hönnunar í suðurstofu Bessastaða Formleg opnun nýrrar innsetningar íslenskra húsgagna og hönnunar í suðurstofu Bessastaða fór fram í gær að viðstöddum forseta Íslands, fulltrúum Samtaka iðnaðarins, hönnuðum og framleiðendum. Lífið 8. september 2022 16:31
Hugsa eigi um vörumerki eins og litla svarta kjólinn Það getur ýmislegt mælt með því að breyta útliti rótgróins vörumerki en það er engin ástæða til að gera það ef markmiðið er bara að gera breytingar breytinga vegna. Hugsa á um vörumerki eins og litla klassíska svarta kjólinn í fataskápnum sem passar alltaf og fer líklega aldrei úr tísku. Viðskipti innlent 8. september 2022 09:00
Auglýsingaherferð undirfatafyrirtækis breytti klæðaburði Clinton Stjórnmálakonan Hillary Clinton hefur nú útskýrt hvers vegna hún gangi aðeins í buxnadrögtum en dragtirnar hafa orðið að einskonar einkennisklæðnaði Clinton. Lífið 7. september 2022 19:56
Tanja Ýr leggur augnhárin á hilluna Frumkvöðullinn og samfélagsmiðlastjarnan Tanja Ýr Ástþórsdóttir hefur ákveðið að hætta með augnháramerki sitt Tanja Ýr Cosmetics. Ætlar hún að einbeita sér að öðrum verkefnum. Tíska og hönnun 7. september 2022 15:30
„Við vildum gera skó sem vekja athygli“ Á fimmtudaginn mun danska skómerkið JoDis kynna nýja skólínu sem hönnuð er í samstarfi með Dóru Júlíu Agnarsdóttur. Dóra Júlía er plötusnúður, þáttastjórnandi, útvarpskona og blaðamaður hér á Vísi. Tíska og hönnun 7. september 2022 13:02
Biðinni eftir Björk lokið Björk Guðmundsdóttir var að senda frá sér tónlistarmyndband við lagið „atopos“ og er um að ræða fyrsta lagið af væntanlegri plötu, „fossora“. Tónlist 6. september 2022 14:31
Liz Truss stelur stíl Védísar tíu árum síðar Védís Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Landsbankanum, rak upp stór augu þegar hún sá mynd af verðandi forsætisráðherra Bretlands í nákvæmlega sama kjól og hún átti. Tíska og hönnun 6. september 2022 11:20