

Vistaskipti
Fréttir af vistaskiptum fólks innan fyrirtækja, stofnana og ýmissa samtaka.

Forstjóri OR hyggst láta af störfum
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hyggst láta af störfum frá og með 1. mars á næsta ári. Ný stjórn tekur senn við taumunum hjá Orkuveitunni.

Þórunn Oddný nýr skrifstofustjóri hjá forstjóra Landspítala
Þórunn Oddný Steinsdóttir tekur við af Önnu Sigrúnu Baldursdóttur sem skrifstofustjóri á skrifstofu forstjóra hjá Landspítalanum. Þórunn er lögfræðingur og hefur starfað sem staðgengill skrifstofustjóra og settur skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu.

Hjörtur frá Amazon til Lucinity
Hjörtur Líndal Stefánsson hefur verið ráðinn yfirmaður tækni- og hugbúnaðarþróunar (CTO) hjá sprotafyrirtækinu Lucinity. Hann snýr nú aftur til Íslands eftir að hafa starfað í Bandaríkjunum hjá tæknirisanum Amazon síðustu átta ár.

Árni Pétur til 50skills
Árni Pétur Gunnsteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá hugbúnaðarfyrirtækinu 50skills.

Þorsteinn metinn hæfastur umsækjenda um stöður héraðsdómara
Dómnefnd hefur metið Þorstein Magnússon, lögmann og framkvæmdastjóra óbyggðanefndar, hæfastan umsækjenda um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjaness annars vegar og Héraðsdóm Reykjavíkur hins vegar.

Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum
Daníel Friðriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum ehf.

Halla hættir sem framkvæmdastjóri ASÍ: „Síðustu ár hafa einkennst af hatrammri valdabaráttu og niðurrifi“
Halla Gunnarsdóttir hefur tilkynnt að hún muni ekki snúa til baka til starfa sem framkvæmdastjóri ASÍ eftir afsögn Drífu Snædal. Hún segir að um skemmtilegt og lærdómsríkt ferli hafi verið að ræða en síðustu ár hafi einkennst af hatrammri valdabaráttu og niðurrifi og vinnuskilyrðin hafi oft verið óbærileg. Vonandi takist að leysa einhverja hnúta og komast að samkomulagi fyrir veturinn.

Eiríkur Björn og Rannveig nýir sviðsstjórar hjá borginni
Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðarbæjar hefur verið ráðin nýr sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Eiríkur Björn Björgvinsson, fyrrverandi bæjarstjóri Akureyrar, hefur verið ráðinn í stöðu sviðsstjóra nýs sameinaðs sviðs menningar, íþrótta- og tómstunda.

Jón fjárfestir í HPP Solutions og verður stjórnarformaður
Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Össurar, hefur tekið við sem stjórnarformaður HPP Solutions ehf. samhliða kaupum á eignarhlut í félaginu. Jón lét af störfum hjá stoðtækjaframleiðandanum Össuri þann 1. apríl á þessu ári eftir 26 ár sem forstjóri.

Segir kórkápu biskups algjört listaverk og þvílíkan heiður að fá að bera hana
Forláta biskupskápa Hólastiftis, eftirgerð kórkápu Jóns Arasonar, hefur núna skipt um herðar, með vígslu nýs Hólabiskups. Solveig Lára Guðmundsdóttir, fráfarandi vígslubiskup, segir það hafa verið mikinn heiður að fá að bera kórkápuna enda sé hún algjört listaverk.

Taka við störfum vöruflokkastjóra og fræðslustjóra Hagkaups
Ólöf Sara Árnadóttir hefur verið ráðin nýr vöruflokkastjóri Hagkaups og Ingibjörg Karlsdóttir nýr fræðslustjóri.

Katrín Olga ráðin framkvæmdastjóri nýs dótturfélags Landsnets
Katrín Olga Jóhannesdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri nýs dótturfélags Landsnets sem hefur það hlutverk að setja á fót og reka heildsölumarkað raforku á Íslandi. Katrín Olga mun hefja störf um mánaðamótin.

Ráðin í störf rekstrarstjóra og markaðsstjóra Running Tide
Running Tide hefur ráðið Örnu Hlín Daníelsdóttur í starf rekstrarstjóra fyrirtækisins á Íslandi og Mikko Koskinen í starf markaðsstjóra.

Ásgeir nýr framkvæmdastjóri Procura
Ásgeir Þór Ásgeirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Procura fasteignasölu. Ásgeir mun stýra daglegum rekstri fyrirtækisins ásamt því að sinna sölu fasteigna.

Sex sóttu um stöðu lögreglustjórans á Vestfjörðum
Karl Ingi Vilbergsson fyrrverandi lögreglustjóri á Vestfjörðum lét af störfum í ágúst síðastliðnum. Sex einstaklingar sóttu um stöðu lögreglustjórans sem auglýst var af dómsmálaráðuneytinu.

Ingvar kemur í stað Teits
Ingvar S. Birgisson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Hann kemur í stað Teits Björn Einarssonar sem er nýorðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar.

Þau sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Loftslagsráðs
Alls sóttu 25 um stöðu framkvæmdastjóra Loftslagsráðs sem auglýst var laus til umsóknar í júlí síðastliðinn. Í hópi umsækjenda eru meðal annars fyrrverandi þingmaður og sveitarstjórar.

Róbert ráðinn fjármála- og rekstrarstjóri KAPP
Róbert Gíslason hefur verið ráðinn rekstrar- og fjármálastjóri þjónustufyrirtækisins KAPP ehf. og mun sjá um daglegan rekstur félagsins. Róbert kemur til KAPP frá Greiðslumiðlun Íslands.

María tekur við sem fjármálastjóri HPP Solutions
María Jónsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri HPP Solutions ehf. Hún var áður fjármálastjóri Héðins, sem HPP var hluti af fram til síðustu áramóta.

Bjarki nýr inn í lykilstjórnendahóp N1
Bjarki Már Flosason hefur verið ráðinn forstöðumaður stafrænnar þróunar hjá N1 og verður þar með hluti af forstöðumannahóp félagsins. Bjarki sinnti áður starfi þróunarstjóra stafrænna lausna hjá N1.

Emilía nýr verkefnastjóri hjá Húsasmiðjunni
Emilía Borgþórsdóttir hefur verið ráðin í stöðu verkefnastjóra umhverfis- og samfélagsmála hjá Húsasmiðjunni. Hún hefur nú þegar hafið störf.

Andrea nýr forstöðumaður hjá Fossum
Andrea Björnsdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns á skrifstofu forstjóra Fossa fjárfestingarbanka. Hún hefur störf í dag.

Guðrún Edda, Stefanía og Vigdís Perla til liðs við Aton.JL
Aton.JL hefur ráðið þær Guðrúnu Eddu Guðmundsdóttur, Stefaníu Reynisdóttur og Vigdísi Perlu Maack til starfa. Allar hafa þær þegar hafið störf. Guðrún Edda og Stefanía starfa sem ráðgjafar og Vigdís sem verkefnastjóri.

Lóa Fatou nýr framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Good Good
Lóa Fatou Einarsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri rekstrarsviðs (COO) í höfuðstöðvum matvælafyrirtækisins Good Good í Reykjavík. Hún mun sem slíkur leiða uppsetningu og rekstur á starfsemi fyrirtækisins í Evrópu og Norður-Ameríku.

Hörn ráðin til Transition Labs
Hörn Halldóru- og Heiðarsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá Transition Labs þar sem hún mun gegna stöðu verkefnastjóra.

Kemur til 50skills frá CreditInfo
Kristín Helga Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá fyrirtækinu 50skills sem sérhæfir sig í hugbúnaðargerð á sviði ráðninga. Hún starfaði áður hjá Creditinfo Lánstrausti þar sem hún gegndi stöðu forstöðumanns vöru- og verkefnastýringar.

Halla nýr forstjóri Sóltúns heilbrigðisþjónustu
Halla Thoroddsen er nýr forstjóri Sóltúns heilbrigðisþjónustu ehf. (SH). Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Sóltúns.

Kemur ný inn í eigenda hóp Réttar
Védís Eva Guðmundsdóttir hefur bæst í hóp eigenda hjá hjá lögmannsstofunni Rétti – Aðalsteinsson & Partners. Hún hefur sérhæft sig í mannréttindamálum og Evrópurétti og hefur starfað á stofunni frá 2020.

Ráðinn framkvæmdastjóri markaðsmála og vaxtar hjá Arctic Adventures
Sindri Snær Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri markaðsmála og vaxtar hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventure.

Nýr framkvæmdastjóri hjá Kerecis
Dr. Dan Mooradian hefur tekið við sem framkvæmdastjóri rannsóknar- og þróunarmála hjá Kerecis. Klara Sveinsdóttir sem var áður framkvæmdastjóri rannsóknar-, þróunar-, gæða- og skráningarmála mun nú einbeita sér einungis að gæða- og skráningarmálum.