Suðvestanátt með skúrum í dag Víðáttumikil lægð suðvestur í hafi beinir til landsins sunnan- og suðvestanátt með skúrum í dag. Hiti verður á bilinu 7 til 15 stig í dag en hlýjast á Austfjörðum. 24.5.2026 08:59
Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa nafngreint meintan byssumann sem var felldur af öryggissveitum Bandaríkjaforseta í gær eftir að hafa hleypt af skotum við Hvíta húsið. Lögreglan hefur oft áður haft afskipti af honum fyrir utan Hvíta húsið en hann er talinn hafa átt við geðræn vandamál að stríða. 24.5.2026 08:32
Skjálftahrina úti af Reykjanesi Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg í gærkvöldi og hefur stærsti skjálftinn mælst 3,5 að stærð. Ekki mælist órói á svæðinu, að sögn Veðurstofu. 24.5.2026 07:55
Maðurinn er fundinn Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gærkvöldi er fundinn. 24.5.2026 07:50
Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Dregið gæti til tíðinda í friðarviðræðum Bandaríkjamanna og Írans á næstu klukkustundum eða næstu dögum, að sögn utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Pakistanskir milligöngumenn segja að árangur hafi náðst í samræðum sínum við Írana í dag. 23.5.2026 15:13
Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sérsveitarmenn flugu með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Ísafjörð á fimmtudagskvöld til þess aðstoða lögregluna í útkalli vegna vopnaðs manns í andlegu ójafnvægi í heimahúsi. Aðgerðin gekk vel, að sögn yfirlögregluþjóns, sem bætir við að taka þurfi á geðheilbrigðismálum fastari tökum. 23.5.2026 14:43
„Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Ný skýrsla um eignarhald íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja sýnir aðeins „toppinn á ísjakanum“ að sögn þingmanns Samfylkingarinnar, sem hyggst fara fram á ítarlegri upplýsingar. Tuttugu stærstu sjávarútvegsfélög landsins eiga samtals um 400 milljarða í öðrum félögum en í skýrsluna vantar eignir upp á milljarða þar sem notast var við rúma túlkun á því sem telst tengdir aðilar. 23.5.2026 14:08
Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Mette Frederikssen, formaður danska Sósíaldemókrataflokksins, hefur fengið stjórnarmyndunarumboð á ný og hyggst mynda miðjuvinstri stjórn með Sósíaliska þjóðflokknum (SF) auk miðjuflokkanna Radikale venstre og Moderaterne. 23.5.2026 12:31
Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Tuttugu stærstu fiskiútgerðir Íslands eiga yfir 400 milljarða króna í öðrum félögum, aðallega í öðrum útgerðum en einnig í íslenskum og erlendum fyrirtækjum sem ekki tengjast sjávarútvegi. 23.5.2026 10:38
Austanátt og úrkomulítið Í dag er spáð austlægri vindátt, yfirleitt 3-10 m/s og dálítilli rigningu suðaustantil. Annars á að vera úrkomulítið. Hiti verður um 6 til 14 stig. 23.5.2026 08:03