„Betra liðið tapaði” Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, var afar svekktur eftir að lið hans tapaði 0-1 fyrir Þrótti á Hlíðarenda í kvöld. Þrátt fyrir tapið taldi hann að Valskonur hefðu átt meira skilið úr leiknum. 29.5.2026 22:55
„Ég er rígmontinn af þeim” Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, var afar stoltur af sínum leikmönnum eftir 1-0 sigur á Val á Hlíðarenda í kvöld 29.5.2026 22:51
Gordon mættur til Börsunga Barcelona tilkynnti í kvöld að Anthony Gordon sé nýr leikmaður félagsins. Gordon, sem er fyrrverandi leikmaður Newcastle, skrifar undir samning hjá spænska félaginu til 2031. 29.5.2026 22:46
Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Monza tryggði sér sæti í efstu deild Ítalíu í fótbolta þrátt fyrir tap í umspili á móti Catanzaro. Þeir voru aðeins eitt tímabil í næstefstu deildinni. 29.5.2026 21:44
Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Tryggvi Snær Hlinason átti frábæran leik fyrir Bilbao Basket í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Með sigrinum tryggði liðið sig í úrslitakeppni deildarinnar. 29.5.2026 21:00
Hörkuleikur í Ungverjalandi Lið Bjarka Más Stefánssonar og Janusar Daða Smárasonar mættust í fyrsta úrslitaleik ungversku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Þeir eru leikmenn Vezprem og Pick Szeged. 29.5.2026 20:24
Kristianstad er sænskur meistari Einar Bragi Aðalsteinsson er sænskur meistari í handbolta eftir að hafa unnið Malmö 41-38. Þetta var fjórði leikur liðanna í úrslitaleik úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar. 29.5.2026 19:36
Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Atletico Madrid deildi á samfélagsmiðlum sínum að félagið hafi gert tilboð í þrjá leikmenn Barcelona. Leikmennirnir voru settir í treyjur Atletico Madrid og undir myndinni stóð textinn „Here we go“ sem er setning sem félagaskiptafréttamaðurinn Fabrizio Romano er þekktur fyrir. 29.5.2026 18:49
Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Lið San Pablo rétt sigraði botnlið Granada í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Íslendingurinn Jón Axel Guðmundsson er í liði San Pablo. 29.5.2026 18:15
Alcaraz fann til með Sinner Carlos Alcaraz fann til með Jannik Sinner þegar hann tapaði í annarri umferð Opna franska mótsins í tennis. Jannik Sinner fékk hitaslag og féll úr keppni en fyrir mótið var hann sigurstranglegastur. Alcaraz, sem er hans aðalkeppinautur, er meiddur og ekki með á mótinu. 29.5.2026 17:33