Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar skorar á íslenska ríkið að setja í forgang að útbúa námsefni fyrir öll fög og alla bekki í samræmi við endurskoðun á aðalnámskrá grunnskóla sem tók gildi haustið 2024. Jafnframt er skorað á ríkið að tryggja nægt fjármagn til kaupa á námsefni svo að nemendur og kennarar hafi aðgang að vönduðu námsefni. 25.6.2026 06:31
Hiti á fyrsta fundi: „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki“ Áheyrnarfulltrúar starfsmanna og stjórnenda í leikskólum og foreldra leikskólabarna gagnrýna þá breytingu að meirihlutinn hafi aðskilið grunn- og leikskólastigið í tveimur nýjum ráðum. Þá gagnrýna fulltrúar starfsmanna og stjórnenda það harðlega að meirihlutinn ætli í samtal við ráðherra um styttingu leikskólakennaranámsins. 24.6.2026 20:41
Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Ekki stendur til að taka upp gjaldskyldu á bílastæði við Kringluna líkt og ákveðið hefur verið að gera við verslunarmiðstöðina Smáralind. Markaðsstjóri Kringlunnar segir meiri aðsókn í verslunarmiðstöðina en bílastæðaskortur sé ekki sérstakt vandamál. 24.6.2026 15:49
Kölluð út vegna aflvana báts við Hellisey Klukkan tíu í morgun var áhöfn björgunarskipsins Þórs í Vestmannaeyjum kölluð út vegna aflvana fiskibáts. Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að einn skipverji hafi verið um borð og taldi hann enga yfirvofandi hættu á ferðum fyrir utan aflleysið. 24.6.2026 15:18
Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Stjórnvöld leggja samkvæmt nýjum samningi 630 milljónir í nýtt samstarfsverkefni um markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað. 24.6.2026 13:37
Konum sem beita heimilisofbeldi fjölgar Ný gögn ríkislögreglustjóra fyrir fyrsta ársfjórðung 2026, janúar til mars, sýna að konur beittu ofbeldi í rúmlega fjórðungi heimilisofbeldismála, eða 27 prósent þeirra. Það er fjölgun frá síðustu árum. Konur eru þolendur í flestum tilvikum, eða í tæpum 70 prósentum tilfella sama til hvaða flokks er litið. 24.6.2026 11:27
Kosti um tvo milljarða að laga verstu gangstéttirnar í borginni Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, segir þörf á gangstéttarviðgerðum í Reykjavík fyrir allt að tvo milljarða. Það séu aðeins þær gangstéttir sem verst farnar eru. 24.6.2026 10:32
Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, segir þurfa að finna Kaffistofu Samhjálpar nýjan stað þar sem meiri sátt er við nágrenni og samfélag. Þjónustan sé samfélagslega mikilvæg en við flutning hennar hefði mátt vinna málið betur. 24.6.2026 08:40
Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ Þjóðgarðsvörður segir tónleikahátíðina Bergmál hafa gengið nokkuð vel fyrir sig um helgina og grasflatirnar komi vel undan viðburði. Stór rýnifundur verði haldinn á morgun og svo rýni þjóðgarðsnefnd það í sumar og haust hvort tilefni sé til að halda fleiri viðburði í garðinum. 23.6.2026 20:02
Opna nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum í Reykjanesbæ Nýtt hjúkrunarheimili fyrir 90 íbúa verður opnað við Keilisbraut í Reykjanesbæ. Ráðist verður í gagngerar breytingar og endurbætur á húsnæði við Keilisbraut 753 og 754 og eru aðgerðir vegna uppbyggingarinnar þegar hafnar. Áætlað er að nýja hjúkrunarheimilið verði tekið í notkun vorið 2028. 23.6.2026 15:58