Heimir með kórónuveiruna Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, hefur greinst með kórónuveiruna. 18.2.2021 15:30
Vall kominn í Val Knattspyrnudeild Vals staðfesti í dag að félagið hefði samið við Svíann Johannes Vall um að spila með liðinu. Vall er 28 ára gamall, örvfættur varnarmaður sem síðast lék í næstefstu deild Svíþjóðar með Ljungskile. 18.2.2021 15:22
Gut-Behrami heimsmeistari og tvær íslenskar meðal 35 efstu Akureyringurinn Katla Björg Dagbjartsdóttir náði bestum árangri íslensku skíðakvennanna í stórsvigi á HM í alpagreinum á Ítalíu í dag. 18.2.2021 14:45
Fá táningarnir tveir að spila fyrir Man. Utd í kvöld? Ole Gunnar Solskjær hefur gefið í skyn að tveir táningar gætu þreytt frumraun sína fyrir Manchester United í dag þegar liðið mætir Adnan Januzaj og félögum í Real Sociedad, í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. 18.2.2021 14:01
Geta komið sér á næsta stig í Kósovó í dag Íslenska karlalandsliðið í körfubolta má ekki misstíga sig illa í leikjunum við Slóvakíu í dag og við Lúxemborg á laugardag. Annars tekur við lengra frí en menn kæra sig um. 18.2.2021 10:32
Lögmæti framboðs Orra dregið í efa Samkvæmt minnisblaði lögfræðings er framboð Orra Hlöðverssonar til formanns Íslensks toppfótbolta ólöglegt. Miðað við það virðist formannsstóllinn blasa við eina mótframbjóðanda Orra, Geir Þorsteinssyni, en ekki eru öll kurl komin til grafar. 17.2.2021 14:01
Geir gæti snúið aftur í stjórn KSÍ Geir Þorsteinsson, fyrrverandi formaður og framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, er annar tveggja frambjóðenda til formanns Íslensks toppfótbolta, hagsmunasamtaka félaga í efstu deildum. Formaður ÍTF situr stjórnarfundi KSÍ. 17.2.2021 12:01
Telja Hjálmar samningsbundinn og ætla að kæra ef þess þarf „Okkar túlkun er sú að hann sé samningsbundinn Haukum. Þetta fer bara sína leið í héraðsdómi ef að þess þarf,“ segir Bragi Hinrik Magnússon, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, um mál landsliðsmannsins Hjálmars Stefánssonar. 17.2.2021 08:31
Lukibra-málinu ekki lokið fyrir risaleikinn á Ítalíu Romelu Lukaku segir Zlatan Ibrahimovic ekki hafa verið með kynþáttaníð í sinn garð þegar að þeir rifust harkalega í bikarslag Mílanóliðanna í síðasta mánuði. Þeir ættu að geta mæst í stórleiknum í ítölsku A-deildinni í fótbolta um helgina. 16.2.2021 17:46
Segir Valsmenn í djúpum andlegum dal Sérfræðingar Seinni bylgjunnar segja Valsmenn ekki eiga sér neinar málsbætur eftir tapið slæma gegn Stjörnunni í gær, í Olís-deild karla í handbolta. Valur hefur nú tapað gegn Fram, Selfossi og Stjörnunni eftir að keppni hófst að nýju undir lok janúar, en unnið Þór Akureyri og Gróttu. 16.2.2021 17:00