Klopp: Hélt að þetta met félli aldrei Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, er stoltur af að liðið hafi jafnað met Manchester City yfir flesta sigurleiki í röð í ensku úrvalsdeildinni. Hann segist ekki hafa fundið fyrir stressi, 2-1 undir gegn West Ham í kvöld. 24.2.2020 22:45
Seinni bylgjan: Hún er sú sem að mótherjar Vals hræðast mest Henry Birgir Gunnarsson og sérfræðingar Seinni bylgjunnar fóru yfir stöðuna í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld nú þegar sautján umferðum er lokið. 24.2.2020 21:47
Liverpool enn nær titlinum með aðstoð Fabianski Liverpool er komið með 22 stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-2 sigur gegn West Ham á Anfield í kvöld. West Ham var yfir þegar 25 mínútur voru til leiksloka. 24.2.2020 21:45
Rakel með tvö er Blikar unnu Íslandsmeistarana Breiðablik vann í kvöld 3-2 sigur gegn Íslandsmeisturum Vals í Lengjubikarnum, í uppgjöri liðanna sem börðust um Íslandsmeistaratitilinn allt síðasta sumar án þess að tapa leik. 24.2.2020 21:27
Sportpakkinn: Reed nýtti sér skelfingardag Thomas "Þetta er frábær tilfinning og ég get ekki beðið eftir að komast heim og fagna titlinum með börnunum og eiginkonu minni,“ sagði Bandaríkjamaðurinn Patrick Reed eftir að hafa unnið sigur á mexíkóska meistaramótinu á PGA-mótaröðinni í golfi. 24.2.2020 20:30
Draumabyrjun Arons á tímabilinu | Matthías skoraði á Spáni Aron Jóhannsson fékk óskabyrjun á nýrri leiktíð með Hammarby í Svíþjóð í dag þegar hann skoraði tvö mörk í 5-1 sigri gegn Varberg í sænsku bikarkeppninni. 24.2.2020 20:00
Sportpakkinn: Tryggvi mun fara mikið hærra "Þetta var nánast fullkominn leikur hjá honum,“ sagði Benedikt Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari Tryggva Snæs Hlinasonar, eftir stórleik Tryggva í sigrinum gegn Slóvakíu í Laugardalshöll í gær. Benedikt segir drauminn að Tryggvi gangi í raðir eins af risaliðum Evrópu á næstu þremur árum. 24.2.2020 19:00
Fury stýrði fjöldasöng eftir sjö lotu bardaga Tyson Fury hefur á sínum ferli unnið alla stóru titlana í þungavigt eftir að hann vann WBC-titilinn af Deontay Wilder í Las Vegas um helgina með tæknilegu rothöggi í sjöundu lotu. 24.2.2020 07:00
Í beinni í dag: Handboltinn á sviðið Það verður mikið handboltafjör á Stöð 2 Sport í kvöld en þá er einn leikur í beinni útsendingu auk þess sem málin verða í kjölfarið rædd frá ýmsum hliðum í tveimur þáttum af Seinni bylgjunni. 24.2.2020 06:00
„Rasisminn hefur unnið“ „Þetta er skelfilegt. Ég varð pabbi síðasta fimmtudag og maður hugsar með sér að samfélagið sé ekki komið nógu langt í baráttunni gegn kynþáttaníði og að það muni bitna á börnunum mínum líka,“ segir Antonio Rüdiger, leikmaður Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 23.2.2020 23:30