Meirihluti getur vel hugsað sér fjarvinnu eftir faraldurinn Tæp 40% Íslendinga hafa áhuga á að vinna að hluta til áfram í fjarvinnu eftir að heimsfaraldrinum lýkur. Atvinnurekendur gætu séð sér hag í að senda fólk heim frekar en að borga fyrir atvinnuhúsnæði. 24.1.2022 21:23
„Þarna er ekki verið að flytja boðskap sem ég tek undir“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Arnar Þór Jónsson varaþingmann flokksins ekki vera að tala fyrir stefnu flokksins í starfi sínu fyrir samtökin Ábyrgð og frelsi. Arnar Þór hefur meðal annars lýst miklum efasemdum um að börn séu sprautuð með því sem hann kallar tilraunaefni. 24.1.2022 11:33
Forsendur harðra takmarkana séu brostnar Fjármálaráðherra telur forsendur fyrir hörðum samkomutakmörkunum brostnar. Í vikunni verði unnið að útfærslu afléttingaráætlunar. 23.1.2022 20:11
Skólasund verður valfag Skólasund verður frá og með næsta skólaári að valfagi á unglingastigi grunnskóla í Reykjavík, gegn því að nemendur standist hæfnispróf fyrir tíunda bekk. Þá geta þeir valið að fara í aðrar greinar í stað sunds. 23.1.2022 14:00
Blasir við að stefni í afléttingar Heilbrigðisráðherra kveðst hafa allar mögulegar afléttingar á samkomutakmörkunum til skoðunar. Forstjóri Landspítalans segir að ef farið verði í afléttingar þurfi að gera það í fáum en öruggum skrefum. Ástandið hefur batnað á spítalanum að sögn yfirlæknis. 23.1.2022 11:51
Öll rök og tölfræði segi okkur að aflétta takmörkunum „Ég er þeirrar skoðunar að við ættum að fara að huga að því að létta af þessum takmörkunum með einhverjum hætti,“ segir þingmaður Viðreisnar og bendir á að sérfræðingar innan Landspítala séu á sama máli. 22.1.2022 23:46
Færeyskur Íslandsvinur útskýrir hvað við þurfum að gera Hvergi í heiminum smitast eins margir af kórónuveirunni daglega og í Færeyjum, en enginn er á sjúkrahúsi. Þess vegna ætla stjórnvöld þar í landi að aflétta öllum samkomutakmörkunum í næsta mánuði - það var ekkert annað í stöðunni, segir færeyskur Íslandsvinur. 22.1.2022 22:02
Var með félaga sínum og má búast við mörghundruð þúsund króna sekt Ökumaður sem átti að vera í einangrun vegna Covid-19 en var stöðvaður í bifreið sinni af lögreglu í gær má eiga von á sekt upp á 150-500 þúsund krónur. 22.1.2022 13:01
„Augljóslega er þetta ekki gott“ Forsætisráðherra segir stefnt að því að stækka ákveðnar virkjanir sem þegar eru starfandi á Íslandi. Innviðaráðherra segir svíða að orkubú Vestfjarða sé að kaupa olíu til kyndingar fyrir fleiri hundruð milljónir þar sem endurnýjanleg orka hefur verið skert. 22.1.2022 12:19
Aðgerðum gegn fjölmiðlum á Íslandi fari fjölgandi Vefurinn Mannlíf.is lá niðri fram á miðjan dag eftir að brotist var inn á skrifstofur miðilsins í nótt og öllu eytt út af síðunni. Formaður Blaðamannafélags Íslands segir innbrotið eitt alvarlegasta dæmið um atlögu gegn fjölmiðlum hér á landi um nokkra hríð. 21.1.2022 20:45