HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku

Topparnir í tölfræðinni á móti Brasilíu: Í mínus þrettán í mörkum úr uppsettum sóknum
Íslenska liðið gerði vel í hröðum upphlaupum og seinni bylgju á móti Brasilíu en fær falleinkunn fyrir uppsettan sóknarleik.

Óli Gústafs: Erum að spila undir getu
"Við hefðum allir viljað enda á sigri. Við reyndum að gíra okkur upp því við vildum enda í topp tíu á þessu móti,“ sagði Ólafur Gústafsson landsliðsfyrirliði eftir tapið gegn Brössum í dag.

Leik lokið: Brasilía - Ísland 32-29 | Slæmt tap í síðasta leik
Ísland tapaði fyrir Brasilíu í lokaleik sínum á HM í handbolta. Strákarnir náðu sér illa á strik og komust aldrei yfir í leiknum.

Óli Guðmunds: Ekki nóg á tankinum fyrir sigri
Ólafur Andrés Guðmundsson var að vonum svekktur eftir tapið gegn Brasilíu í Þýskalandi í dag.

Arnar Freyr: Allt of dýrt í svona leik
Arnar Freyr Arnarsson sagði að strákarnir okkar hefðu ekki átt góðan dag á HM í handbolta.

Pirringur í fólki á Twitter: Góð skita
Stuðningsmenn íslenska handboltalandsliðsins voru ekki yfir sig hrifnir af frammistöðu íslenska liðsins í dag. Skiljanlega.

Króatar bjuggu til myndband með dómaramistökum Dananna
Króatar eru enn öskureiðir yfir dómgæslunni í leik þeirra gegn Þjóðverjum. Þeir segjast hafa verið flautaðir úr mótinu.

Svekktir eftir töpin en hungrið mikið að klára HM með sigri
Bjarki Már Elísson vill vinna Brasilíu í síðasta leiknum á HM í dag.

Þetta þarf að gerast í dag svo Ísland eigi mann í undanúrslitunum á HM í handbolta
Lokaumferð milliriðlanna á heimsmeistaramótinu í handbolta fer fram í dag og það er mikil spenna í öðrum riðlinum. Í okkar riðli eru undanúrslitaliðin aftur á móti klár.

Teitur: Man eftir þegar að ég hitti Karabatic
Teitur Örn Einarsson lýkur leik á HM 2019 í dag með strákunum okkar.

Óvinur þjóðarinnar sem hjálpaði Gísla að flytja fær að sjá tístin
Gísli Þorgeir Kristjánsson spilar með línumanninnum Patrick Wiencek sem fór illa með íslenska liðið.

Nýliðarnir lært margt á HM: Miklu meiri hraði en heima í Val
Ýmir Örn Gíslason viðurkennir að hann á margt eftir ólært en nýtir hverja mínútu á HM.

Guðmundur: Þetta er algjörlega glórulaust
Landsliðsþjálfarinn skilur ekki hvernig er verið að fara með leikmennina á HM.

Aron Pálmars búinn að koma okkur oftast yfir á HM 2019
Aron Pálmarsson er sá leikmaður sem hefur komið íslenska handboltalandsliðinu oftast í forystu á HM í handbolta í Þýskalandi og Danmörku.

Ísland er eina liðið á HM þar sem markverðir verja best í vítum
Íslensku markverðirnir á HM í handbolta 2019 skera sig algjörlega úr meðal markvarða hjá tólf bestu þjóðunum á þessu heimsmeistaramóti þegar kemur að því hvar þeir eru að verja hlutfallslega best.

Kallar dómarana áhugamenn og segir Króata hafa verið rænda um hábjartan dag
Lino Cerver hélt yfirvegaða eldræðu á blaðamannafundi eftir tapið gegn Þýskalandi í gær.

Elvar Örn bestur af nýliðunum á HM
Selfyssingurinn er með hæstu einkunn stórmótanýliðanna á HB Statz eftir sjö leiki.

Álagið á HM að öllu leyti óásættanlegt og eitthvað sem verður að bæta úr
Guðmundur Guðmundsson hefur engan húmor fyrir leikjaprógramminu á HM í handbolta.

Karabatic: Ísland getur barist um titla á næstu árum
Leikmaður heimsmeistara Frakka hrífst af ungu íslensku liði.

Karabatic hitti Teit tíu árum seinna og nú inn á vellinum
Nicola Karabatic deildi pósti móður íslenska landsliðsmannsins með aðdáendum sínum.

Þýskaland og Frakkland í undanúrslitin en Danir skrefi nær
Þýskaland og Frakkland eru komin áfram í undanúrslitin á HM í handbolta eftir að Þýskaland vann eins marks sigur á Króatíu í kvöld, 22-21.

Haukur sló við mörgum af bestu handboltamönnum Íslands
Haukur Þrastarson varð í gær yngsti leikmaður í sögu íslenska landsliðsins til að skora mark á stórmóti er hann skoraði eitt marka Íslands í tapi gegn Frökkum á HM í handbolta í gær.

Rafmögnuð spenna fyrir lokaumferðina eftir sigur Noregs gegn Svíþjóð
Allt er upp í loft í riðli milliriðli tvö á HM í handbolta.

Rúrik og Nathalia fóru saman á landsleikinn
Eins og greint var frá í síðustu viku er að knattspyrnukappinn Rúrik Gíslason er genginn út, beint í faðm brasilísku fyrirsætunnar Nathaliu Soliani.

Spánverjar sendu Sterbik strax aftur heim
Arpad Sterbik spilaði aðeins einn leik með spænska landsliðinu á HM í handbolta í Þýskalandi og Danmörku en spænska landsliðið hefur nú kallað aftur á Rodrigo Corrales inn í hópinn

Erfiður skóli en ungt lið Íslands mun njóta góðs af reynslunni
Ungt lið Íslands náði að standa í ríkjandi heimsmeisturum Frakklands í leik liðanna á HM í handbolta í gær. Franska liðið tók fótinn aldrei af bensíngjöfinni og vann að lokum níu marka sigur.

Einkunnir strákanna okkar á móti Frakklandi í kvöld: Elvar Örn bestur
Vísir fer yfir frammistöðu strákanna í tapleiknum á móti heimsmeisturum Frakka en þar fengu ungir framtíðarmenn liðsins alvöru mínútur í djúpu lauginni.

Aron um fyrsta mark Hauks: Maður fékk gæsahúð
Fyrirliðinn var stoltur af ungu guttunum í kvöld og fékk gæshaúð við fyrsta mark Hauks.

Ólafur: Við getum ekki bara litið framhjá þessu
Var stoltur af því að bera bandið.

Haukur: Þetta er bara handbolti
Selfyssingurinn Haukur Þrastarson lék sinn fyrsta leik á stórmóti fyrir íslenska landsliðið í kvöld. Hann kom inn af krafti, skoraði tvö mörk og sýndi að hann er framtíðarmaður í liðinu.