
Rangárþing ytra

Notuðu hestamennsku sem yfirvarp fyrir kannabisræktun
Fjórir karlmenn eru ákærðir fyrir mjög umfangsmikla kannabisræktun á bóndabæ á Suðurlandi. Samkvæmt vitnisburði lögreglunnar átti húsráðandi, sem ekkert vit hafði á kannabisræktun, samskipti við annan höfuðpaur ræktunarinnar með hestamennskudulmáli.

Engin vindmylla eftir í Þykkvabæ
Eftirstandandi vindmyllan í Þykkvabæ var felld í dag, níu mánuðum eftir að fyrri myllan var sprengd niður. Verkið gekk mun hraðar fyrir sig en síðast enda ákveðið að hvíla sprengjurnar í þetta skiptið.

Tjakkurinn gerði gæfumuninn þegar seinni vindmyllan var felld
Seinni vindmyllan í Þykkvabæ féll til jarðar á fjórða tímanum í dag eftir að sérfræðingar Hringrásar skáru hana í sundur. Tjakkur gerði gæfumuninn í þetta skipti.

Hin vindmyllan í Þykkvabæ felld: „Við eigum von á að það gangi betur en síðast“
Vindmylla í Þykkvabæ verður felld í dag í heilu lagi. Einn þeirra sem mun sjá um niðurskurð hennar segir að í þetta sinn verði myllan felld á réttan hátt, ekki eins og þegar hin vindmyllan í Þykkvabæ var felld í vetur með miklum vandræðum.

Ullarvika á Suðurlandi fyrstu vikuna í október
Tröllabandaprjón, handlitun í potti, ullarútsaumur, peysuprjón, sokkaprjón og spuni á rokk verður meðal þess, sem verður í boði á Ullarviku Suðurlands, sem stendur yfir fyrstu vikuna í október.

Fimmtíu til hundrað ný störf í Rangárþingi ytra
Um fimmtíu til hundrað ný störf gætu orðið til með nýjum Grænum iðngarði í Rangárþingi ytra, en nú er unnið að kortlagningu á heppilegri atvinnustarfsemi og viðskiptatækifærum sem gætu átt heima innan iðngarðsins.

Vilja leggja hjólastíg milli Hellu og Hvolsvallar
Sveitarstjórn Rangárþings ytra kannar nú möguleikann á því að leggja göngu- og hjólastíg milli Hellu og Hvolsvallar. Leiðin er rúmur tólf og hálfur kílómetri og áætlað er að verkið muni kosta 587 milljónir króna.

Bjóða fólki heim til sín að tína hamp
Hjónin á bænum Hrúti í Ásahreppi hafa tekið upp á þeirri nýjung að bjóða fólki að koma heim til sín og tína sinn eigin hamp, sem hægt er að nýta í te, olíur og margt fleira.

Mokveiði á maðkinn í Ytri Rangá
Maðkveiðihófst í byrjun september í Ytri Rangá og það var alveg vitað að veiðin yrði rosaleg því það er mikið af laxi í ánni.

Þykkvabæjarfranskar heyra sögunni til eftir 36 ára framleiðslu
Matvöruframleiðandinn Þykkvabæjar tilkynnti í morgun að eftir 36 ára framleiðslu sé fyrirtækið hætt að framleiða franskar kartöflur. Rekstrarstjóri segir bilun í tækjabúnaði hafa leitt til þessarar ákvörðunar.

Stórlaxarnir farnir að taka í Ytri Rangá
Það er farið að bera meira á stórlöxum í Ytri Rangá en vanir veiðimenn eiga að venjast en við erum ekki að nefna neitt sem er undir 90 sm.

Ytri Rangá ennþá á toppnum
Í nýjum vikulegum tölum frá Landssambandi Veiðifélaga bera Rangárnar höfuð og herðar yfir næst ár á listanum en Ytri Rangá er þó ennþá hæst.

Enginn spenntur fyrir umfangsmiklum vikurflutningum um þjóðveginn
Þungaflutningar yrðu mun tíðari um Suðurlandsveginn ef áform þýsks fyrirtækis ganga eftir. Vörubíll mun keyra í gegn um helstu bæi svæðisins á kortersfresti. Sveitarfélögum á svæðinu líst ekki á blikuna og setja sig upp á móti flutningunum.

Fjórtán og fimmtán ára börn skáru niður regnbogafánana á Hellu
Við rannsókn lögreglu á eignaspjöllum sem framin voru á Hellu aðfaranótt mánudags kom í ljós að það voru fjórtán og fimmtán ára börn sem báru ábyrgð á verknaðnum. Málið telst vera upplýst að sögn lögreglu.

100 laxa dagur í Ytri Rangá í gær
Ytri Rangá er komin á fullt skrið og göngur í ána eru með allra besta móti en það sást greinilega á veiðitölum í gær.

Fín veiði í Veiðivötnum
Veiðin í Veiðivötnum er búin að vera fín í sumar og flest það veiðifólk sem fer upp eftir er að koma heim vel hlaðið af fallegum silung.

Sveitarstjóri Rangárþings ytra með 1,7 milljón króna á mánuði
Byggðarráð Rangárþings ytra samþykkti ráðningarsamning við Jón G. Valgeirsson, nýjan sveitarstjóra, á mánudag. Föst heildarlaun Jóns munu vera 1,7 milljón króna á mánuði en auk þess fær hann farsíma, spjaldtölvu og fartölvu til eignar á kostnað sveitarfélagsins.

Laugavegshlaupið fer fram á laugardag: 650 manns hlaupa 55 kílómetra
Eitt sinn þótti það afrek að hlaupa maraþon en nú eru 650 manns skráð til leiks í Laugavegshlaupið en þar er hlaupið yfir fjöll og firnindi. Fer hlaupið fram í 26. skipti.

Gestabók á afgreiðsluhúsi hellanna á Hellu
Ein stærsta gestabók landsins, ef ekki sú stærsta er utan á húsi á Hellu.

Björgunarsveitarfólk sótti slasaðan göngumann á hálendið
Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út klukkan tólf í dag þegar tilkynning barst frá slösuðum göngumanni á hálendinu.

Siggi Sig sigurvegari og Landsmóti lokið
Fjöldi gesta af Lansdsmóti hestamanna hélt heim á leið í gærkvöldi eftir glæsileg tilþrif í A-flokki gæðinga þar sem Kolskeggur frá Kjarnholtum og Sigurður Sigurðarson fóru með sigur af hólmi.

Bein útsending: Lokakvöld Landsmótsins á Hellu
Vísir sýnir beint frá Landsmóti hestamanna sem fram fer á Gaddstaðaflötum á Hellu.

Flugvél flýgur í fyrsta sinn í sögunni á íslenskri raforku
Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi nú síðdegis frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem flugvél flaug á íslenskri orku en ekki innfluttu jarðefnaeldsneyti.

Vellirnir á floti og dagskrá Landsmóts frestað
Fresta þarf dagskrá vegna veðurs á Landsmóti hestamanna sem nú stendur yfir á Gaddstaðaflötum á Hellu. Leiðindaveður er á svæðinu, rok og rigning. Pollar eru á keppnisvöllunum og aðstæður til sýningarhalds afleitar.

Glúmur og Karl Gauti sækja einnig um í Rangárþingi ytra
Tuttugu og fimm sóttu um stöðu sveitarstjóra Rangárþings ytra. Fimm þeirra sem sóttu um drógu umsóknir sínar þó til baka.

Keppti í 32 ára gömlum jakka af pabba sínum
Yngsti keppandinn á Landsmóti hestamanna, sem nú stendur yfir á Gaddstaðaflötum á Hellu, er á tíunda aldursári, eða því sem aldurstakmörk miða við á mótinu. Anna Sigríður Erlendsdóttir er yngst allra, eftir því sem fréttastofa kemst næst.

Mokveiði í Frostastaðavatni
Hálendisveiðin er komin í fullan gang og veiðimenn fjölmenna við vötnin á hálendinu og það er ekki annað að heyra en að veiðin sé góð.

Bein útsending: Forkeppni í tölti á Landsmóti
Vísir sýnir beint frá Landsmóti hestamanna sem fram fer á Gaddstaðaflötum á Hellu.

Hestur Kára einn sá elsti sem hefur keppt á Landsmóti
„Mér þykir mjög vænt um þennan hest en var hræddur um að hann hefði ekki nægan kraft. Guði sé lof að ég hafði rangt fyrir mér. Ég var mjög stressaður,“ sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og hrossaræktandi, eftir óvenjulega sýningu Stakks frá Halldórsstöðum, hests í hans eigu, og knapa hans Sigurbjörns Bárðarsonar í sérstakri forkeppni í A-flokki á Landsmóti hestamanna á Hellu í gær.

Gera ráð fyrir átta til tíu þúsund mótsgestum
Von er á þúsundum gesta á Landsmót hestamanna sem fram fer á Gaddstaðaflötum á Hellu. „Stemningin er frábær nú þegar,“ segir Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri LM2022 en mótið stendur yfir alla vikuna.