Seðlabankinn
26 27 28 29 30 31 32 33 34 … 48 ›
Tímaspursmál hvenær erlendir sjóðir koma inn á skuldabréfamarkaðinn Hverfandi hlutdeild erlendra fjárfestingarsjóða á íslenskum skuldabréfamarkaði, sem hefur sjaldan eða aldrei verið minni í sögunni, er „óheppileg“ að mati seðlabankastjóra. Langtímavaxtamunur Íslands við Bandaríkin hefur lítið hækkað þrátt fyrir að ávöxtunarkrafa lengri ríkisbréfa hafi rokið upp síðustu misseri og sé í dag nálægt sex prósentum. Innherji 25.8.2022 14:43
Ætlar að ná niður verðbólgunni svo það verði um „eitthvað að semja“ Skýr teikn eru á lofti um að það sé að myndast ofþensla í þjóðarbúskapnum. Það birtist í blússandi gangi í einkaneyslu, sem jókst um 14 prósent á milli ára á öðrum fjórðungi, skorti á starfsfólki og hækkandi verðbólgu sem gæti nálgast 11 prósent í árslok. Verði samið um launahækkanir í komandi kjarasamningum nálægt núverandi verðbólgu mun Seðlabankinn ekki geta setið aðgerðalaus hjá. Innherji 24.8.2022 20:52
„Veltur mjög mikið á því hvernig verður samið“ Þróun verðbólgunnar til lengri tíma litið veltur að miklu leyti á komandi kjaraviðræðum að sögn seðlabankastjóra. Gert er ráð fyrir að hún haldi áfram að aukast og nái tveggja stafa tölu síðar á árinu. Innlent 24.8.2022 18:31
Ásgeir: Krónan töluð niður ef hún sveiflaðist jafnmikið og evran Ef gengi íslensku krónunnar sveiflaðist jafn mikið og gengi evru gagnvart Bandaríkjadal hefur gert yrði eflaust skrifað um það í íslenskum fjölmiðlum og bent á hversu slæmur gjaldmiðill krónan væri. Þetta kom fram í máli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra á kynningarfundi peningastefnunefndar í morgun. Innherji 24.8.2022 16:02
Segir Seðlabankann refsa með svipu í aðdraganda kjarasamninga Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir stýrivaxtahækkanir Seðlabankans með öllu glórulausar. Innlent 24.8.2022 14:54
„Svört verðbólguspá“ SÍ fór öfugt ofan í markaðinn Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur lækkað um rúmlega eitt prósent í dag og ávöxtunarkrafan á styttri óverðtryggð ríkisbréf hefur rokið upp eftir að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands birti ákvörðun sína um að hækka vexti um 75 punkta. Lítilleg hækkun á Marel, sem vegur þungt í vísitölunni, hefur vegið upp á móti töluverðum lækkunum hjá öðrum skráðum félögum. Innherji 24.8.2022 13:18
Koma í veg fyrir „æsing í kerfinu“ Stýrivextir voru hækkaðir í morgun til þess að koma í veg fyrir ofþenslu og æsing í kerfinu að sögn seðlabankastjóra. Fólk eigi að taka minna af lánum, fyrirtæki síður að ráðast í fjárfestingar og stjórnvöld að halda að sér höndum. Vextirnir voru hækkaðir um 75 punkta og hafa ekki verið hærri í sex ár Viðskipti innlent 24.8.2022 12:03
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður 75 punkta hækkun Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,75 prósentustig. Viðskipti innlent 24.8.2022 09:00
Seðlabankinn hækkar stýrivexti í 5,5 prósent, ekki verið hærri í sex ár Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,75 prósentur. Meginvextir bankans verða því 5,5 prósent. Verðbólguhorfur hafa versnað samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans og er gert ráð fyrir að verðbólgan nái hámarki undir lok ársins og verði þá tæplega 11 prósent. Innherji 24.8.2022 08:32
Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0,75 prósentur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,75 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 4,75 prósent í 5,5 prósent. Þetta er áttunda stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð. Viðskipti innlent 24.8.2022 08:30
Útlánavöxtur í hæstu hæðum, sýnir að hagkerfið „þolir hærra vaxtastig“ Mikið útlánaskrið hjá bönkunum, einkum drifið áfram af nýjum lánum til fyrirtækja síðustu mánuði, er til marks um mikinn þrótt í hagkerfinu og ætti að treysta þá skoðun peningastefnunefndar að vextirnir þurfi að hækka enn meira, að mati hagfræðinga. Innherji 23.8.2022 15:27
Skörp vaxtahækkun liggur í loftinu Meirihluti markaðsaðila gerir ráð fyrir því, samkvæmt könnun Innherja, að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 75 punkta eða meira á næsta vaxtaákvörðunarfundi bankans á miðvikudaginn. Skiptar skoðanir eru á því hvort Seðlabankinn vilji eiga inni vaxtahækkanir fyrir komandi kjaraviðræður eða senda skýr skilaboð áður en viðræðurnar hefjast. Innherji 22.8.2022 11:04
Ásgeir eini seðlabankastjórinn sem fékk hæstu einkunn Global Finance Fjármálatímaritið Global Finance hefur gefið Ásgeiri Jónssyni hæstu mögulegu einkunn fyrir frammistöðu sína sem seðlabankastjóri. Ásgeir er eini seðlabankastjórinn á heimsvísu sem fékk einkunnina A+ samkvæmt mati Global Finance sem tímaritið hefur birt árlega frá árinu 1994. Innherji 18.8.2022 16:02
Starfsmenn hins opinbera fá milljónir í vasann Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, er sá starfsmaður fyrirtækja í eigu íslenska ríkisins eða borgarinnar sem var með hæstu tekjurnar árið 2021 samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Hörður var með tæpar fjórar milljónir í mánaðarlaun. Innlent 18.8.2022 14:51
Íbúðaverð aldrei hærra í samanburði við laun, áhyggjuefni segir hagfræðingur Fasteignaverð í hlutfalli við laun landsmanna hefur aldrei mælst hærra og er nú komið á sama stað og hámarkið frá því í október árið 2007. Hagfræðingar segja þetta vísbendingu um að toppnum í frekari hækkunum á raunverði fasteigna verði líklega náð á næstunni. Innherji 18.8.2022 09:05
Mögulega minna eftir af vaxtahækkunarferli Seðlabankans en var áður óttast Vísbendingar um að mjög sé að hægja á verðhækkunum á íbúðamarkaði eru fyrstu merki þess aðgerðir Seðlabankans séu farnar að bíta fast sem gæti þýtt að verðbólgan, sem mælist núna 9,9 prósent, muni taka að hjaðna nokkuð í kjölfarið, að mati hagfræðinga. Innherji 17.8.2022 18:14
Spá 0,75 prósenta hækkun stýrivaxta Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að stýrivextir hækki um 0,75 þann 24. ágúst næstkomandi þegar peningastefnunefnd Seðlabankans fundar. Stýrivextir fara þá í 5,5 prósent en vextirnir hafa ekki verið hærri síðan árið 2016. Viðskipti innlent 17.8.2022 11:19
Aðgerðir Seðlabankans farnar að hafa áhrif Hækkun vísitölu íbúðaverðs í fjölbýli hækkaði um 0,5 prósent milli mánaða en í sérbýli um 3,7 prósent. Hagfræðideild Landsbankans telur þetta vera merki um að aðgerðir Seðlabankans til þess að bæta fasteignamarkaðinn séu að virka. Viðskipti innlent 17.8.2022 10:49
Vænta hærri verðbólgu og hún verði 5,8 prósent eftir eitt ár Markaðsaðilar búast við því að verðbólgan, sem mælist núna 9,9 prósent, muni ná hámarki á þriðja ársfjórðungi þessa árs og hún verði þá að meðaltali tíu prósent. Þá telja þeir að verðbólgan muni taka að hjaðna í kjölfarið og verði 5,8 prósent að ári liðnu og fjögur prósent eftir tvö ár. Innherji 17.8.2022 09:27
„Þurfum að undirgangast viðurkennd lögmál hagfræðinnar,“ segir Bjarni Það er ekki hægt að flýja verðbólguna og Seðlabankinn mun ekki lækka vexti bara af því að gerð eru hróp að honum, segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Innlent 10.8.2022 07:10
Býst við lækkunum á húsnæðisverði þar sem eitthvað þurfi að láta undan Aðalhagfræðingur sjóðsstýringarfyrirtækisins Stefnis telur nokkuð líklegt að húsnæðisverð komi til með að lækka hérlendis á næstunni og jafna sig eftir miklar hækkanir undanfarin misseri. Ljóst sé að eitthvað þurfi að gefa eftir. Viðskipti innlent 9.8.2022 16:30
Taka á margbrotnu framsali valds og lagskiptri stjórnsýslu fjármálaeftirlitsins Forsætisráðuneytið hefur tilkynnt um áform um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands sem fela í sér að seðlabankastjóri verði formaður fjármálaeftirlitsnefndar bankans og að nefndin taki aðeins ákvarðanir í málum sem teljast meiri háttar. Þetta kemur fram í samráðsgátt stjórnvalda. Innherji 5.8.2022 11:26
Með „töluvert bolmagn til fjárfestinga“ eftir að innlánin ruku upp í faraldrinum Stór hluti fyrirtækja virðist hafa komið út úr faraldrinum með afar sterka lausafjárstöðu eftir að hafa haldið að sér höndum í lántökum og fjárfestingu vegna óvissu í hagkerfinu á sama tíma og það varð mikil aukning í veltu í nær öllum atvinnugreinum. Innherji 4.8.2022 07:01
Ekki megi falla í freistni og lofa meiru en Ísland geti staðið undir Verðbólga einkennir nú öll hagkerfi heimsins og er Ísland þar engin undantekning að sögn prófessors í hagfræði. Seðlabankastjóri hefur boðað aðgerðir en verkalýðshreyfingin stendur föst á sínu fyrir komandi kjaraviðræður. Vernda þurfi viðkvæmasta hópinn en þó sé ekki mikið svigrúm fyrir launahækkanir í óvissunni sem fram undan er. Viðskipti innlent 3.8.2022 21:35
Seðlabankinn fóðrar fjármálahýenurnar Enn og aftur kemur Seðlabankinn og hótar launafólki illilega vegna komandi kjarasamninga en rétt er að geta þess að einungis 12 vikur eru þar til kjarasamningar á hinum almenna vinnumarkaði renna út. Skoðun 3.8.2022 13:00
Gunnar Smári hellir sér yfir seðlabankastjóra Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að ef komandi kjarasamningar muni reynast „óraunhæfir“ og kyndi undir verðbólgu, þá muni Seðlabankinn bregðast við því. Innlent 3.8.2022 10:38
Ný útlán til fyrirtækja hafa aldrei verið meiri frá upphafi mælinga Útlán banka til atvinnufyrirtækja námu ríflega 38 milljörðum króna og hafa aldrei verið meiri í einum mánuði frá því að Seðlabanki Íslands byrjaði að halda utan um tölurnar í byrjun árs 2013. Innherji 29.7.2022 13:36
Stórfelld losun fastra vaxta gæti ýtt heimilum aftur í verðtryggð lán Viðbúið er að stór hluti íbúðalána á föstum vöxtum komi til endurskoðunar á árunum 2024 og 2025 enda jukust vinsældir fastvaxtalána, sér í lagi óverðtryggðra lána með föstum vöxtum, verulega á seinni hluta síðasta árs. Horfur eru á því að vaxtastig verði talsvert hærra en það var þegar vextir á lánunum voru festir og því gæti endurskoðun leitt til tilfærslu yfir í verðtryggð lán sem bera minni greiðslubyrði. Innherji 29.7.2022 07:55
Verðbólgan að hluta til afleiðing áratuga stefnuleysis í húsnæðismálum Þingmaður Samfylkingarinnar kallar eftir því að stjórnvöld grípi til aðgerða vegna hækkandi verðbólgu, sem mælist nú tæplega tíu prósent. Framundan sé erfitt haust vegna kjaraviðræðna. Innlent 23.7.2022 12:10
Spá því að verðbólga aukist áfram og stýrivextir verði hækkaðir Verðbólgan mældist tæplega tíu prósent í júlí og var langt umfram spár viðskiptabankanna. Forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans segir að gera megi ráð fyrir frekari stýrivaxtahækkunum frá Seðlabankanum í ljósi stöðunnar. Hagfræðiprófessor segir að það taki tíma fyrir aðgerðir stjórnvalda til að bíta, með tilheyrandi aðhaldi og óvissu. Viðskipti innlent 22.7.2022 15:39