
Dómstólar

Umboðsmaður Alþingis sækir um hjá Hæstarétti
Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, er á meðal þeirra sem sótti um laust sæti dómara við Hæstarétt. Fjórir sóttu um embættið, sem var auglýst þann fyrsta mars síðastliðinn, en umsóknarfrestur rann út átjánda mars.

Tveir sóttu um embætti héraðsdómara
Þau Sindri M. Stephensen dósent við lagadeild HR og Sólveig Ingadóttir aðstoðarmaður héraðsdómara sóttu um embætti héraðsdómara.

Dómari þarf ekki að víkja þrátt fyrir að hafa lýst persónulegri skoðun sinni
Hlynur Jónsson, dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra, þarf ekki að víkja sæti í hoppukastalamálinu svokallaða. Landsréttur staðfesti í lok síðasta mánaðar úrskurð héraðsdóms, Hlyns sjálfs, þess efnis.

Aukin aðgæsluskylda ökumanna
Þrátt fyrir mikla aukningu hérlendis á umferð og fjölgun ökutækja þá hefur umtalsverður árangur náðst í baráttunni gegn umferðarslysum á undanförnum árum.

Ryðja allan Landsrétt í máli fyrrverandi dómsmálaráðherra
Allir dómarar Landsréttar þurfa að víkja þegar dómstóllinn tekur fyrir mál sem félagið Lyfjablóm höfðar gegn Þórði Má Jóhannessyni og Sólveigu Guðrúnu Pétursdóttur, sem var dóms- og kirkjumálaráðherra í kringum síðustu aldamót og síðar forseti Alþingis.

Landsréttur fimm ára: „Enginn vafi á því að þetta voru gríðarlegar réttarumbætur“
Landsréttur hefur nú starfað í fimm ár og Hæstiréttur þar með starfað með gjörbreyttu sniði í sama tíma. Forseti Hæstaréttar segir breytinguna á réttarkerfinu hafa verið mikla réttarbót.

Finnur Þór skipaður héraðsdómari
Dómsmálaráðherra hefur skipað Finn Þór Vilhjálmsson í embætti héraðsdómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur frá 14. febrúar 2024.

Rannsóknir lögreglu megi ekki dragast á langinn
Þingmenn fimm þingflokka hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um meðferð sakamála. Þar er lagt til að rannsókn lögreglu á sakamálum megi ekki standa yfir í meira en ár.

Ingveldur kveður Hæstarétt
Ingveldur Einarsdóttir hæstaréttardómari og varaforseti réttarins lætur af störfum sökum aldurs í ágúst. Staða dómara við réttinn verður auglýst.

Vafasamt að dómari meti hvenær barn gefi samþykki fyrir kynmökum
Umboðsmaður barna hefur sent Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra bréf varðandi kynferðisbrot gegn börnum. Þar er því haldið fram að vafasamt sé að dómari leggi mat á það hvenær barn veiti samþykki fyrir kynmökum.

Segist ekki vanhæf vegna „harla óvenjulegs“ tölvupósts Ómars
Sigríður Hjaltested, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, þarf ekki víkja úr sæti úr dómsmáli líkt og Ómar R. Valdimarsson lögmaður krafðist. Hann vildi að Sigríður tæki mögulegt vanhæfi sitt til skoðunar vegna fyrri samskipta þeirra á milli, sem tengjast sakamáli sem hefur verið kennt við skemmtistaðinn Bankastræti Club.

Þrír sóttu embætti héraðsdómara í Reykjavík
Þrír sóttu um embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur sem dómsmálaráðuneytið auglýsti laust til umsóknar um miðjan síðasta mánuð.

Dómarinn vann í Hæstarétti og ríkið situr í súpunni
Hæstiréttur hefur dæmt Ástríði Grímsdóttur héraðsdómara í vil í launadeilu hennar við íslenska ríkið. Hæstiréttur taldi að ríkið hafi ekki mátt krefja Ástríði, og um 260 æðstu embættismenn landsins, um endurgreiðslu launa. Meintar ofgreiðslur námu ríflega hundrað milljónum króna í heildina.

Creditinfo megi ekki fletta upp kennitölum sakfelldra
Persónuvernd hefur komist að þeirri niðurstöðu að Dómstólasýslu ríkisins sé ekki heimilt að veita Creditinfo Lánstrausti hf. rýmri rétt til leitar að persónuupplýsingum í dómsúrlausnum en almenningi er veittur með útgáfu dómsúrlausna á vefsíðum dómstólanna. Fyrirtækið hafði óskað eftir því að fá aðgang að kennitölum þeirra sem hafa hlotið refsidóma fyrir auðgunarbrot.

Ólafur Helgi, Stefanía Guðrún og Finnur Þór í dómarastól
Dómsmálaráðherra hefur skipað Ólaf Helga Árnason og Stefaníu Guðrúnu Sæmundsdóttir í embætti héraðsdómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur frá og með 18. desember 2023. Jafnframt hefur Finnur Þór Vilhjálmsson verið settur dómari við sama dómstól frá og með 18. desember 2023 til og með 28. febrúar 2029 vegna leyfis skipaðs héraðsdómara.

Segir bók Þorvaldar rugl frá upphafi til enda
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, mætti í Bítið í morgun til að ræða bók Þorvaldar Logasonar Eimreiðarelítuna – spillingarsögu. Jón Steinar sagði ekki eitt einasta atriði sem þar er um sig skrifað, í bók ef bók skyldi kalla, halda vatni.

Endurflytja ofbeldismál í héraði vegna seinagangs dómara
Landsréttur úrskurðaði í vikunni að endurflytja þurfi mál í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna þess að dómur var kveðinn upp meira en fjórum vikum eftir að málið var dómtekið þar.

Fimm nýir tóku sæti í Hæstarétti
Málflutningur í máli sem varðar laun dómara fór fram í Hæstarétti í dag. Eðli málsins samkvæmt eru allir embættisdómarar landsins vanhæfir til þess að dæma í málinu og því var dómarabekkurinn skipaður settum dómurum.

Deilur skuli útkljáðar fyrir dómstólum, ekki á vegslóða við Hólmsheiði
Formaður Lögmannafélags Íslands segir að þó einhverjum kunni að mislíka niðurstaða norskra dómstóla um að faðir barna Eddu Bjarkar Arnardóttur skuli fara með forsjá þeirra, þýði það ekki að borgararnir eigi að taka lögin í sínar hendur.

Gerir ekki upp á milli Finns, Sindra og Stefaníu
Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Hérðasdóm Reykjavíkur segir að Finnur Þór Vilhjálmsson, Sindri M. Stephensen og Stefanía G. Sæmundsdóttir séu hæfust umsækjendanna þriggja.

Málskostnaður, Réttlæti hins sterka
Sennilega voru málskostnaðargreiðslur í dómsmáli í upphafi hugsaðar sem skaðabætur fyrir sannanlega ómaklega lögsókn á hendur blásaklausu fólki. Nú eru þær notaðar, að því er virðist, sem tilviljanakenndar refsingar fyrir að tapa dómsmáli eða þætti þess. Þær eru greiddar gagnaðila í málinu.

Segir almennan lesskilning duga til að sjá að dómarinn sé ekki vanhæfur
Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður annars sakborningsins í hryðjuverkamálinu svokallaða, er hjartanlega ósammála niðurstöðu Landsréttar um að Daði Kristjánsson dómari sé vanhæfur. Dómaranum hefur verið gert að víkja frá málinu.

Dómara hryðjuverkamálsins gert að víkja vegna vanhæfis
Landsréttur hefur gert Daða Kristjánssyni, dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, að víkja frá hryðjuverkamálinu svokallaða vegna vanhæfis. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari málsins í samtali við Vísi.

Ólafur Helgi metinn hæfastur
Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur hefur skilað umsögn sinni og er það niðurstaða hennar að Ólafur Helgi Árnason sé hæfastur umsækjenda til að hljóta skipun í embætti.

Skrýtin uppákoma í Hæstarétti, réttlæti hins sterka
Ég lenti í dómsmáli sem ég rak sjálfur að miklu leyti. Þegar það var komið fyrir Hæstarétt fékk ég ábendingu um að ég gæti sótt um að málflutningur yrði skriflegur sem ég gerði. Mér fannst Hæstiréttur taka á því máli á mjög sérkennilegan hátt.

Átta sóttu um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur
Átta sóttu um stöðu héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur sem dómsmálaráðuneytið auglýsti lausa til umsóknar þann 29. september síðastliðinn.

Í fangelsi í sextán ár: Á endanum var það ástin sem bjargaði öllu
„Ég myndi ekki segja að það væri svona mikil klíkumyndun. Að öðru leyti myndi ég svara já; þetta er bara eins og fólk sér þar,“ svarar Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu, aðspurður um það hvort upplifunin af því að vera í fangelsi sé eitthvað sambærileg og við sjáum í erlendu sjónvarps- og kvikmyndaefni.

Hæstiréttur sneri við dómi sem hefur þegar verið afplánaður
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Ívar Guðjónssyni, fyrrverandi forstöðumanni eigin fjárfestinga Landsbankans, frá árinu 2014. Hæstiréttur hafði áður dæmt hann til tveggja ára fangelsisvistar en með umdeildri ákvörðun Endurupptökudóms var málið sent aftur til Hæstaréttar. Hann hefur þegar afplánað þann dóm og var því ekki dæmd refsing.

Tómas H. Heiðar nýr forseti Alþjóðlega hafréttardómsins
Tómas H. Heiðar var í dag kjörinn forseti Alþjóðlega hafréttardómsins í Hamborg til þriggja ára. Hann var tilnefndur sem frambjóðandi Norðurlandanna árið 2014 og hlaut í framhaldinu kjör sem dómari við dómstólinn til níu ára. Tómas var svo endurkjörinn fyrr á þessu ári til ársins 2032.

Orðsendingar milli dómara. Réttlæti hins sterka
Í dómsmáli sem ég lenti í fannst mér ég sjá vísbendingar um og sýndist ég jafnvel hafa sannanir fyrir því að dómari sendi rithandarsérfræðingi sem átti að sjá um greiningu undirritana í dómsmálinu og dómurum á efra dómstigi orðsendingar beinlínis til þess að hafa áhrif á að niðurstöðu þeirra með illa duldum ábendingum um hvernig þeir ættu að haga sínum úrskurðum og dómum. Ég hef fengið það staðfest með viðtölum við lögmenn að þetta sé vel þekkt fyrirbæri.