
Of Monsters and Men

Tuttugu ára afmæli Aldrei fór ég suður: Of Monsters and Men meðal hljómsveita
Of Monsters and Men verður á meðal þeirra hljómsveita sem munu koma fram á vestfirsku tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem fram fer um páskana á Ísafirði. Hátíðin fagnar tuttugu ára afmæli í ár og verður blásið í herlúða að sögn skipuleggjanda.

Ástin blómstrar hjá Nönnu og Ragnari í OMAM
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir og Ragnar Þórhallsson, söngvarar hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, hafa verið par í nokkurn tíma en lítið látið á því bera opinberlega.

Einveran í æsku kveikjan að farsælum tónlistarferli
„Ætli ég sé ekki svolítið prívat manneskja. Það er þó ekki meðvitað hjá mér að vera svona prívat heldur er það bara algjörlega út frá einhverjum svona þægindaramma. Mér finnst athygli stundum óþægileg nema þegar að ég fer upp á svið með tónlistina, þá líður mér vel,“ segir tónlistarkonan Nanna Bryndís Hilmarsdóttir. Blaðamaður hitti hana í kaffi og ræddi við hana um listina, lífið og nýtt sóló efni.

„Gaman að taka upp í rými sem veitir mikinn innblástur“
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir gefur út lagið Disaster Master í dag. Lagið er samið af Nönnu og pródúserað af Josh Kauffman. Um er að ræða lag sem verður á væntanlegri sóló plötu hennar. Platan kemur út þann fimmta maí næstkomandi.

„Ég lá á gólfinu, spilandi á gítarinn í einhverjum mínus“
Síðastliðinn miðvikudag gaf tónlistarkonan Nanna Bryndís Hilmarsdóttir út sitt annað sólólag. Laginu fylgir tónlistarmyndband sem leikstýrt er af Þóru Hilmarsdóttur.

Nanna Bryndís sóló á Airwaves
Tuttugu og tveir listamenn sem koma fram á Iceland Airwaves hátíðinni hafa nú verið tilkynntir. Meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni er Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söngkona Of Monsters and Men. Þetta verður í fyrsta skipti sem hún kemur fram undir nafni sólóverkefnis síns, Nanna, hér á landi.

Rappaði fyrir átrúnaðargoðið: „Ég verð bara eins og kleina í svona aðstæðum“
Tónlistarkonan Nanna Bryndís Hilmarsdóttir var viðmælandi í fyrsta þætti af glænýrri þáttaröð af Tónlistarmönnunum okkar sem hóf göngu sína á Stöð 2 í gær.

Nanna úr Of Monsters and Men gefur út sitt fyrsta sóló lag
Tónlistarkonan Nanna Bryndís Hilmarsdóttir gaf í dag út sitt fyrsta sóló lag, Godzilla. Nanna hefur gert garðinn frægan með hljómsveitinni Of Monsters and Men en fetar nú nýjar slóðir með þessu verkefni.

Of Monsters and Men myndin Tíu verður Íslandsfrumsýnd á RIFF
Heimildamyndin Tíu, um hljómsveitina Of Monsters And Men, verður frumsýnd á Íslandi á RIFF í haust. Hátíðin fer fram 29. september til 6. október.

Of Monsters and Men með nýtt lag og myndband
Hljómsveitin Of Monsters and Men hefur gefið út lagið This Happiness. Lagið er hluti af EP plötunni TÍU sem er gefin út samhliða samnefndri heimildarmynd sem var tekin upp hér á landi á síðasta ári.

Stórkostlegir þjónar, grímulöggur og sveit full af sjarma
Klukkan er farin að ganga sex á miðvikudegi. Kominn tími til að loka tölvunni. Vinnudegi lokið. En ekki deginum. Ó nei. Fram undan er rokk í Reykjavík. Wine, dine og tónleikar með einni vinsælustu hljómsveit Íslands fyrr og síðar.

Banastuð hjá Of Monsters and Men í Gamla bíói
Óhætt er að segja að stuð hafi verið í Gamla bíó í gærkvöldi á fyrstu af fernum tónleikum Of Monsters and Men í vikunni. Gestir báru grímur en það virtist ekki hafa áhrif á stemmninguna.

CBS elti OMAM til Íslands
Útsendari bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CBS heimsótti íslensku sveitina Of Monsters and Men hér á landi á dögunum og ræddi við meðlimi bandsins.

Mugison, Lay Low, Salóme Katrín og Supersport hita upp fyrir OMAM
Of Monsters and Men halda upp á 10 ára afmæli fyrstu plötu þeirra My Head is an Animal 9. 10., 11. og 12. nóvember. Þau hafa boðið til sín góðum vinum til að halda upp á áfangann með þeim í Gamla Bíó í miðbæ Reykjavíkur.

Gefa út afmælisútgáfu af fyrstu plötunni með tveimur aukalögum
Það eru liðin tíu ár síðan Of Monsters and Men sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu, My Head Is an Animal. Af því tilefni er komin út sérstök afmælisútgáfa af plötunni.

OMAM fagnar 10 ára afmæli My Head Is An Animal
Fagnaðu 10 ára afmæli plötunnar My Head Is An Animal með OMAM í Gamla bíói.

Of Monsters and Men heldur afmælistónleika á Íslandi
Hljómsveitin Of Monsters and Men mun fagna 10 ára afmæli plötunnar My Head is an Animal með tónleikum í Gamla bíó í næsta mánuði. Þá mun hljómsveitin einnig gefa út sérstaka afmælisútgáfu plötunnar.

Daði fær silfurplötu í Bretlandi
Daði Freyr hefur fengið silfurplötu í Bretlandi fyrir lagið Think About Things. Um er að ræða söluviðurkenningu sem vottar að lagið seldist í 200 þúsund eintökum þar í landi.

Tóku upp atriði í Iðnó fyrir Jimmy Fallon
Of Monsters and Men frumfluttu nýja lagið sitt, Visitor, í lok spjallþáttar hins bandaríska Jimmy Fallon í nótt.

Of Monsters and Men frumsýnir nýtt lag og myndband
Íslenska stórsveitin Of Monsters and Men frumsýndi rétt í þessu nýtt myndband við nýtt lag sem ber heitið Vistor.

Meðlimur OMAM fluttur á spítala í Bangkok
Íslenska sveitin Of Monsters and Men hefur þurft að afboða tónleika í Bangkok, Hong Kong, Tævan og Singapúr.

OMAM flytur ábreiðu af lagi Post Malone í vinsælum þætti í Ástralíu
Meðlimir Of Monsters and Men hafa verið á tónleikaferðalagi um allan heim síðustu mánuði og komu til að mynda fram á tónleikum í Ástralíu.

Of Monsters and Men sendir frá sér teiknimynd við lagið Wars
Í dag sendi sveitin Of Monsters and Men frá sér myndband við lagið Wars og er um að ræða teiknimynd.

Söngelskir Íslendingar gerðu þýska konu gráhærða á mögnuðum tónleikum OMAM í Berlín
Of Monsters and Men kom fram á tónleikum í Huxleys Neue Welt í Berlín á miðvikudaginn síðasta og var blaðamaður Vísis gestur á tónleikunum.

Nanna dansar á vatni í nýju myndbandi OMAM
Íslenska sveitin Of Monsters And Men gaf í gær út nýtt myndband við lagið Wild Roses. Nanna Bryndís Hilmarsdóttir fer sjálf á kostum í myndbandinu sem tekið er upp í Sundhöllinni í Hafnarfirði.

Of Monsters and Men slógu í gegn hjá Ellen
Of Monsters and Men er nú á tónleikaferðalagi um Bandaríkin og hafa komið víða við. Sveitin tróð upp í Las Vegas um helgina en er nú komin til Kaliforníu og kom fram í San Fransisco í gær.

Slösuðust þegar myndavél féll á þær á tónleikum Of Monsters and Men
Slysið varð þegar sveitin kom fram á tónlistarhátíðinni Life is Beautiful í Las Vegas um helgina.

Of Monsters and Men spila lag af nýrri plötu hjá Kimmel
Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men spilaði lag af nýjustu plötu sinni, Fever Dream, í spjallþætti Jimmy Kimmel á miðvikudaginn var.

Þriðja plata Of Monsters and Men komin út
Hljómsveitin úr Garðabænum, Of Monsters and Men, sem sigraði Músiktilraunir árið 2010 og hefur síðan gert góða hluti erlendis jafnt sem hér heima, hefur gefið út sína þriðju breiðskífu.

Tónlistarmyndband OMAM tekið upp á Hótel Holti
Hljómsveitin Of Monsters and Men hefur sent frá sér tónlistarmyndband við lagið Alligator.