Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
31 32 33 34 35 36 37 38 39 … 334 ›
Gjörgæslusjúklingum fækkar Þeim fjölgar um tvo sem liggja inni á Landspítala með Covid-19 milli daga en fækkar á sama tíma um tvo sem liggja á gjörgæsludeild. 45 sjúklingar á spítalanum eru smitaðir. Innlent 15.1.2022 11:56
Tveggja ára stríðsrekstur Við erum í stríði, og höfum verið í stríði undanfarin 2 ár. Framlína þess stríðs fer fram á spítalanum, þó að mörg önnur svið samfélagsins hafi fundið verulega fyrir afleiddum áhrifum þessa faraldurs. Skoðun 15.1.2022 11:01
1.143 greindust innanlands í gær 1.143 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 57 á landamærum. Það gera 1.200 í heildina. Innlent 15.1.2022 10:42
Fyrri hugmyndir um Janssen löngu úreltar Allar hugmyndir um góða virkni eins skammts af bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni úreltust um leið og ný afbrigði veirunnar, delta og ómíkron, tóku yfir. Gegn þeim virkar Janssen alveg eins og hin bóluefnin; einn skammtur af Janssen verndar mun minna en tveir skammtar af öðrum efnum og því ákvað heilbrigðisráðuneytið að líta það sömu augum og hin bóluefnin þegar það breytti reglum um sóttkví þríbólusettra. Innlent 15.1.2022 08:52
Áfall að vera enn á þeim stað að loka börum Stjórnarmaður í Samtökum fyrirtækja í veitingarekstri segir hertar samkomutakmarkanir mikið áfall. Þrátt fyrir umfangsmiklar bólusetningar virtust Íslendingar á sama stað og áður. Innlent 14.1.2022 23:35
Ríkið ekki skaðabótaskylt vegna djammbanns Hið opinbera er ekki skaðabótaskylt vegna lokunar skemmtistaða og bara hér á landi sökum faraldurs kórónuveirunnar. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem opinberuð var í dag en í úrskurðinum segir meðal annars að smit þrjú þúsund þeirra sextán þúsund sem smituðust í fjórðu bylgjunni hafi mátt rekja til eins skemmtistaðar. Innlent 14.1.2022 22:42
Fjórðungur nemenda fjarverandi Skólastjórnendur hafa margir hverjir staðið í ströngu undanfarna daga við að rekja kórónuveirusmit innan skólanna. Skólastjóri Árbæjarskóla hefur fimm sinnum á einni viku þurft að fara í smitrakningu. Fjórðungur nemenda skólans var fjarverandi í dag þar sem margir voru í sóttkví og einangrun. Innlent 14.1.2022 22:00
Fékk drottninguna til að hlæja í tilefni dagsins: „Skal hundur heita ef ég læt kerlingu stjórna mér“ Fimmtíu ár eru liðin frá því að Margrét Þórhildur Danadrottning tók við krúnunni. Hátíðarhald var takmarkað vegna kórónuveirufaraldursins en þó var athöfn í danska þinghúsinu í tilefni dagsins. Forsætisráðherra Danmerkur minntist þess þegar landsmenn greiddu atkvæði um hvort kona mætti taka við krúnunni á sínum tíma. Erlent 14.1.2022 21:00
Kennarar ósáttir við Katrínu Stjórn Kennarasambands Íslands er gagnrýnin á ummæli Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, frá því í dag um skólastarf og konur í vinnu. Þá segir stjórnin ummæli Katrínar um að frá upphafi faraldurs kórónuveirunnar hafi alltaf staðið til að halda skólum opnum séu röng. Innlent 14.1.2022 20:17
Breyti engu ef fólk breyti ekki hegðun sinni Formaður farsóttanefndar Landspítalans bindur vonir við að hertar samkomutakmarkanir komi til með að skila árangri og draga úr álagi á spítalann. Þær muni þó engu breyta ef fólk breyti ekki hegðun sinni. Innlent 15.1.2022 14:51
Allt að tólf milljóna veitingastyrkur í boði Eigendur ákveðinna veitingastaða geta átt rétt að allt að tólf milljóna veitingastyrk til að mæta áhrifum sem samkomutakmarkanir hafa haft á rekstur þeirra. Viðskipti innlent 14.1.2022 15:26
Evra efast um covid, segir það pólítískt og að Bill Gates eigi þátt í faraldrinum Patrice Evra, fyrrverandi leikmaður Manchester United, Juventus og fleiri liða, fór mikinn í viðtali í frönskum sjónvarpsþætti þar sem hann opinberaði sig sem efasemdarmann um kórónuveirufaraldurinn. Fótbolti 14.1.2022 15:23
Heimavinnublús sem talinn var úr sögunni Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er einn af átta sem láta í sér heyra í laginu „Heimavinnublús“ sem sett hefur verið í birtingu á YouTube rúmu ári eftir upptöku. Forsprakki verkefnisins segist aldrei hafa átt von á því að tilefni yrði til að birta lagið. Lífið 14.1.2022 15:01
Lagði til að öllu yrði skellt í lás í tíu daga Til greina kemur að beita víðtækum lokunum í samfélaginu sem ná til fyrirtækja, stofnana og skóla í takmarkaðan tíma til að ná fjölda kórónuveirutilfella hratt niður, að mati sóttvarnalæknis. Gætu slíkar lokanir til að mynda staðið í tíu daga og í kjölfarið verið aflétt í skrefum. Innlent 14.1.2022 14:48
Segir veitingaaðilum létt með óbreyttum reglum og styrkjum Reglur hvað varða veitingastaði hér á landi eru nokkurn veginn óbreyttar. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir þetta mikinn létti fyrir veitingahúsaeigendur og hótelrekendur sem hafi verið farnir að reikna með enn harðarði takmörkunum. Viðskipti innlent 14.1.2022 14:18
Fá svigrúm til að greiða aukalega næstu fjórar vikurnar Ríkisstjórnin hefur ákveðið að tryggja Landspítala svigrúm sem gerir kleift að greiða starfsfólki sérstaklega fyrir viðbótarvinnuframlag næstu fjórar vikurnar. Talið er að þannig megi betur tryggja mönnun við erfiðar aðstæður meðan mesti þunginn í faraldrinum gengur yfir. Innlent 14.1.2022 13:44
Sóttvarnir Tíu manna samkomutakmarkanir taka gildi á miðnætti og hefur það áhrif á okkur flest. Nú eru að verða tvö ár af faraldrinum og langtímaafleiðingar farnar að segja til sín. Skoðun 14.1.2022 13:30
Mun algengara að konan sé heima með börnin þegar skólum er lokað Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að það sé bæði prinsipp- og jafnréttismál, að halda skólum opnum eins og hægt er, í gegnum kórónuveirufaraldurinn. Innlent 14.1.2022 13:08
Tíu mega koma saman Sóttvarnaraðgerðir verða hertar og taka þær gildi á miðnætti. Heilbrigðisráðherra segir að sóttvarnalæknir hafi lagt fram þrjár leiðir: Óbreyttar aðgerðir, færa samkomutakmarkanir úr tuttugu manns í tíu, eða lokun á samfélaginu í tíu daga. Ríkisstjórnin hafi valið leið tvö. Innlent 14.1.2022 12:03
Nýjar hæðir í sýnatökum Heilsugæslan er komin yfir þolmörk þegar kemur að sýnatöku vegna kórónuveirunnar að sögn framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Búist er við miklu álagi á morgun þegar yfir 900 börn mæta í sýnatöku en til skoðunar er að lengja opnunartíma. Innlent 14.1.2022 11:54
Níu íbúar á Eir hjúkrunarheimili með Covid-19 Níu íbúar á Eir hjúkrunarheimili í Grafarvogi hafa greinst með Covid-19. Íbúarnir eru sagðir vera með lítil eða engin einkenni en flestir þeirra hafa verið þríbólusettir. Innlent 14.1.2022 11:34
Svar til stjórnar Persónuverndar Íslenskri erfðagreiningu (ÍE) barst bréf frá ykkur þann 13. janúar 2022 þar sem þið mótmælið þeirri staðhæfingu minni að þið hafið ákvarðað að ÍE hafi brotið lög við skimun eftir mótefnum gegn SARS—CoV-2 veirunni í apríl 2020. Skoðun 14.1.2022 10:47
1.133 greindust innanlands 1.133 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 88 á landamærum. Innlent 14.1.2022 10:32
Ríkisstjórnarfundi lokið: Tilkynnt um hertar aðgerðir Ríkisstjórnarfundur hófst klukkan 9.30 en en á dagskrá fundarins er meðal annars nýtt minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Ráða má í yfirlýsingar Þórólfs í vikunni að hann leggi til hertar sóttvarnaaðgerðir. Innlent 14.1.2022 10:15
42 sjúklingar nú á Landspítala með Covid-19 42 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19. Átta eru á gjörgæslu, fjórir þeirra í öndunarvél. Meðalaldur innlagðra er 64 ár. Innlent 14.1.2022 10:03
Forsætisráðherra Svíþjóðar með Covid-19 Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur greinst með Covid-19. Erlent 14.1.2022 08:58
Enn uppljóstrað um djamm í Downingsstræti Starfsmenn Downingsstrætis 10, skrifstofu forsætisráðherra Breta hafa nú enn og aftur verið sakaðir um veisluhöld á sama tíma og almenningi var gert að fara eftir ströngum sóttvarnareglum sem bönnuðu allt slíkt. Erlent 14.1.2022 06:57
Ríkisstjórnin ræðir nýjar tillögur sóttvarnalæknis Ríkisstjórnin mun funda fyrir hádegi í dag og meðal annars ræða minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Þórólfur hefur skilað nýju minnisblaði til heilbrigðisráðherra en hefur ekki viljað gefa upp efni þess. Innlent 14.1.2022 06:45
„Spáin núna ætti eiginlega að heita vondur, verri, verstur“ Bjartsýnasta spá Landspítala um innlagnir á legudeild vegna Covid-19 virðist nú vera að rætast. Verkefnastjóri hjá farsóttanefnd Landspítala segir orðalagið um bjartsýna spá villandi og telur nauðsynlegt að herða takmarkanir. Innlent 13.1.2022 20:32
„Náum þessu niður áður en við göngum af heilbrigðiskerfinu dauðu“ Formaður Læknafélags Íslands og formaður Félags hjúkrunarfræðinga kalla eftir því að stjórnvöld bregðist við því mikla álagi sem sé á heilbrigðisstarfsfólk, til dæmis með tímabundnum álagsgreiðslum í faraldrinum. Ekki sé hægt að leggja það á fólk árum og mánuðum saman að einangra sig og vinni ítrekað langt um fram eðlilega vinnuskyldu. Innlent 13.1.2022 19:16