Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

Með „krónískan kökk í hálsinum“ að forgangsraða fólki til að bjarga undan sprengjuregni í Rafah
Fjölskyldan sem þrjár íslenskar konur björguðu frá Gasa á dögunum hafa fengið grænt ljós frá Alþjóðafólksflutningastofnun Sameinuðu þjóðanna (IOM) um að ferðast.

Tókust á um útlendingamálin í Pallborðinu
Útlendingamálin og staðan sem upp er komin varðandi einstaklinga sem fastir eru á Gasa en komnir með dvalarleyfi á Íslandi verða til umræðu í Pallborðinu á Vísi klukkan 14 í dag.

Katrín uggandi yfir stöðunni á Suðurnesjum
Forsætisráðherra er uggandi yfir stöðunni á Suðurnesjum, þar sem hraun rennur hratt í átt að heitavatnslögn. Ef allt fari á versta veg gætu Suðurnesin verið án heits vatns í tvo til þrjá daga.

Seðlabankinn hækkar raunvexti
Seðlabankinn tók meðvitaða ákvörðun um það í morgun að hækka raunvexti með því að halda meginvöxtum sínum óbreyttum á sama tíma og verðbólga er að minnka. Seðlabankastjóri segir þetta til marks um að aðgerðir hans gegn verðbólgu hafi skilað árangri.

Dr. Bjarki Þór ráðinn aðstoðarmaður Guðmundar Inga
Dr. Bjarki Þór Grönfeldt hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Ætla að sækja fleiri fjölskyldur frá Gasa
Þrjár íslenskar konur sem sóttu í gær fjölskyldu, með dvalarleyfi á Íslandi, og fluttu frá Gasasvæðinu og yfir til Egyptalands ætla að halda áfram að bjarga börnum af svæðinu á meðan íslensk stjórnvöld funda um ástandið. Solaris samtökin hafa efnt til söfnunar til að koma fólki frá svæðinu.

Vill selja Póstinn og segir ÁTVR tímaskekkju
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra segir nauðsynlegt að fækka stofnunum ríkisins. Við sameiningu stofnana megi ekki einblína á að vernda störf. Þá vill hún selja Íslandspóst og brjóta upp ÁTVR.

Ætla að safna fimmtíu milljónum til að koma fólkinu sjálf frá Gasa
Efnt hefur verið til söfnunar til að standa að kostnaði við að flytja 128 Palestínumönnum frá Gasa. Þrjár íslenskar konur sem blöskraði aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar hafa sótt konu og þrjú börn til Gasa og komið til Egyptalands í öruggt skjól.

Íslenskar konur sóttu fjölskyldu frá Gasa: „Drengirnir voru þreyttir og sögðu lítið“
„Þetta er ekki svona flókið, og ef þetta er svona flókið, hvernig fórum við þá að þessu? Þetta er enginn ómöguleiki,“ segir rithöfundurinn Bergþóra Snæbjörnsdóttir, sem er nú stödd í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, þar sem hún tók á móti fjögurra manna fjölskyldu frá Gasa í dag.

„Getum einfaldlega ekki haldið áfram í einhverri blindni“
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir dagaspursmál um að ráðherranefndin og ríkisstjórnin komist til botns í umræðu sinni um málefni hælisleitenda og geti því myndað sér nýja stefnu í málaflokknum. Hann segir að það gæti gerst innan skamms að Ísland fari að bjarga fólki, en segist óttast að innviðir landsins springi.

Frumvarp vegna húsnæðis í Grindavík væntanlegt síðar í vikunni
Forsætisráðherra væntir þess að frumvarp um uppgjör á íbúðarhúsnæði í Grindavík verði kynnt síðar í vikunni. Hún segir frumvarpið lúta að því að fólki verði gert kleift að koma sér fyrir á nýjum stað, óháð því hvort hús þeirra hafi verið metin sem tjónuð af Náttúruhamfaratryggingu eða ekki.

Nauðsynlegt að hækka lán og breyta skilyrðum um námsframvindu
Landssamtök íslenskra stúdenta, LÍS, telja áríðandi að lögum um Menntasjóð námsmanna verði breytt til að tryggja skilvirkni og betra aðgengi nemenda að lánum og styrkjum. Samtökin fóru á fund allsherjar- og menntamálanefndar fyrir hádegi í dag.

Fjölskyldusameiningar strandi á Bjarna: „Ég trúi á mennskuna í fólki“
Félagsmálaráðherra segir allt klárt í sínu ráðuneyti hvað varðar fjölskyldusameiningar Palestínubúa. Þær strandi nú á utanríkisráðherra. Hann segist trúa á mennskuna í ríkisstjórninni og vonar að Palestínumönnum verði komið til landsins sem allra fyrst.

„Þetta er mitt barn og börnin á Gasa eru líka mín börn“
Forsætisráðherra segir að það sé mikilvægt að það liggi fyrir sem fyrst hvað hægt sé að gera til að aðstoða dvalarleyfishafa við að komast út af Gasa. Tilfinningarík og kraftmikil mótmæli fóru fram við Alþingi í dag.

Ásmundur Einar: „Formleg yfirlýsing um pólitískan stuðning“
Stjórnvöld hafa lýst yfir stuðningi sínum við umsókn sameiginlegs framboðs Íslands, Danmerkur og Noregs um að halda HM í handbolta karla 2029 eða 2031.

Jafn margir og búa í Árborg sótt um vernd á síðustu tveimur árum
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra telur ástæðu til að taka reglur um fjölskyldusameiningar flóttafólks til endurskoðunar.

Stjórnvöld leggja HSÍ til þrjár milljónir vegna HM-umsóknar
Stjórnvöld hafa lýst yfir stuðningi sínum við umsókn sameiginlegs framboðs Íslands, Danmerkur og Noregs um að halda HM í handbolta karla 2029 eða 2031.

Segir ljóst að stjórnvöld skorti pólitískan vilja til að hjálpa
Íslenskur lögfræðingur segir að það sé mikil synd að íslensk stjórnvöld sjái sér ekki fært að aðstoða dvalarleyfishafa að komast út úr Gasa og gagnrýnir misvísandi upplýsingar ráðamanna í málinu sem hann segir að hafi ekki pólitískan vilja til að hjálpa. Í dag hafa hundruð boðað komu sína á mótmæli við Alþingishúsið.

Áskorun til dómsmálaráðherra
Umræða um heildarstefnu á sviði fangelsismála á Íslandi hefur verið áberandi á undanförnum vikum og mánuðum og sú aukna athygli sem málaflokkurinn hefur fengið er löngu tímabær og þörf.

Eins og hundrað kílóum léttari eftir að hafa tæmt húsið
Fjöldi Grindvíkinga tæmdi hús sín í dag, þegar íbúar fengu rýmri aðgang að bænum en áður. Einhverjir vonast til að geta snúið aftur á meðan aðrir kvöddu bæinn fyrir fullt og allt í dag.

Skoða þurfi ástæðu fjölgunar banaslysa strax
Innviðaráðherra segir að skoða verði ástæðu fjölda banaslysa í umferðinni í byrjun árs sem fyrst. Hann segir stöðuna algjörlega óviðunandi.

Sammála um áframhaldandi stuðning við UNRWA
Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar, Orri Páll Jóhannsson þingmaður Vinstri grænna og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður Framsóknar eru sammála um það að íslenska ríkið eigi ekki að fresta áframhaldandi greiðslum til UNRWA, Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Palestínu.

Hafa enn ekki tekið afstöðu til þess hvort fólkið verði sótt
Stjórnvöld hafa ekki tekið afstöðu til þess hvort dvalarleyfishafar á Gasasvæðinu fái aðstoð við að komast til landsins. Dómsmálaráðherra segist standa við fullyrðingar um að Ísland fari að fordæmi Norðurlandanna.

Mótmæla við Alþingi á mánudag vegna fjölskyldusameininga
Boðað hefur verið til mótmæla við Alþingi á mánudag þar sem á að krefjast þess að ráðamenn geri meira til að tryggja að fólk sem hefur fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar á Gasa komist til landsins.

Ákall frá mastrinu
Það eru komnir fimm mánuðir síðan við Anahita Babaei tókum þá afdrifaríku ákvörðun að stöðva för Kristjáns Loftssonar á hvalveiðar með því að koma okkur fyrir í möstrum hvalveiðibátanna í Reykjavíkurhöfn.

Ráðherrar stjórnist af tilfinningum og ótta
Dómsmálaráðherra segir fullyrðingar í frétt Ríkisútvarpsins um að hún hafi farið með rangt mál hvað varðar fjölskyldusameiningar úr lausu lofti gripnar. Þingmaður Pírata segir stjórnvöld skorta allan vilja til þess að koma dvalarleyfishöfum af Gazasvæðinu.

Hafi þegar leiðrétt ummæli sín
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir að fréttaflutningur Ríkisútvarpsins af því að hún hafi farið með ósannindi varðandi stefnu stjórnvalda á Norðurlöndunum í aðstoð þeirra við flóttafólk á Gasa vera rangan. Hún hafi þegar leiðrétt ummæli sem hún hafi látið falla um málið þann 29. desember síðastliðinn.

Yfirvöld á Norðurlöndunum hafi aðstoðað aðra en eigin ríkisborgara
Yfirvöld á hinum Norðurlöndunum hafa aðstoðað aðra en ríkisborgara sína við að komast burt frá Palestínu. Rúv greindi frá þessu fyrr í kvöld.

Tugmilljóna mál skrifstofustjóra fer fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni íslenska ríkisins um áfrýjunarleyfi í máli Jóhanns Guðmundssonar, fyrrverandi skrifstofustjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Jóhanni voru dæmdar 23,6 milljónir króna í skaða- og miskbætur vegna niðurlagningar ráðherra á embætti hans.

Farið yfir forgangsröðun vegna mögulegs goss
Forsætisráðherra mun funda með almannavörnum um stöðuna í og við Grindavík síðar í dag. Hún segist vona að línur skýrist fyrir Grindvíkinga í næstu viku þegar von sé á að frumvarp um stuðning þeim til handa verður kynnt.