Ástin á götunni

Fréttamynd

Gerði þriggja ára samning

Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun hefur Ásgeir Elíasson samþykkt að taka við þjálfun 1. deildar liðs Fram og hefur nú undirritað þriggja ára samning við sitt gamla félag, sem náði góðum árangri undir stjórn Ásgeirs á sínum tíma.

Sport
Fréttamynd

Önnur kæra lögð fram á Val

Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ hefur staðfest að sambandinu hafi borist kæra frá forráðamönnum Víkings á hendur Knattspyrnufélaginu Val fyrir að eiga ólöglegar viðræður við tvo af leikmönnum félagsins.

Sport
Fréttamynd

Bayern á toppinn í Þýskalandi

Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen skutust í toppsæti úrvalsdeildarinnar í dag þegar þeir tóku Duisburg í kennslustund 4-0 á heimavelli sínum. Michael Ballack, Ze Roberto, Claudio Pizarro og Roque Santa Cruz skoruðu mörk Bayern í leiknum.

Sport
Fréttamynd

Charlton í annað sætið

Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton lyftu sér í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar áðan, þegar þeir báru sigurorð af lánlausu liði Portsmouth á útivelli, 2-1.

Sport
Fréttamynd

Wenger rólegur yfir klúðri Pires

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sagðist í viðtali við BBC ekki hafa verið hrifinn af tilþrifum Robert Pires í dag, þegar hann klúðraði vítaspyrnu gegn Manchester City. Wenger á afmæli í dag og sagðist gjarnan hafa viljað eitthvað annað í afmælisgjöf en þetta.

Sport
Fréttamynd

Pires var klaufi

Robert Pires kann að hafa skorað sigurmark Arsenal gegn Manchester City í dag, en hann fór engu að síður mjög illa að ráði sínu í tvígang í leiknum. Í byrjun leiks lagði Thierry Henry upp sannkallað dauðafæri fyrir hann, en Pires tókst á óskiljanlegan hátt að skjóta boltanum yfir markið. En þar með var ekki öll sagan sögð.

Sport
Fréttamynd

Burley farinn frá Hearts

Knattspyrnustjórinn George Burley hefur hætt störfum hjá úrvalsdeildarliðinu Hearts í Skotlandi, eftir að hafa verið í starfi í aðeins fjóra mánuði. Talið er að ástæðan sé ágreiningur milli hans og eigandans Vladimir Romanov, sem keypti félagið í febrúar.

Sport
Fréttamynd

Lítið skorað á Englandi

Aðeins þrjú mörk eru komin í hálfleik í leikjunum fjórum sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United hefur yfir 1-0 gegn Tottenham, þar sem Mikael Silvestre skoraði eftir mistök Paul Robinson í marki Tottenham.

Sport
Fréttamynd

Fulham vann Liverpool

Leikjunum fjórum sem hófust klukkan 14 í enska boltanum er lokið. Þar ber hæst sigur Fulham á Liverpool, en mörk frá Collins John á 30. mínútu og Luis Boa Morte á þeirri 90. tryggðu Fulham góðan sigur á Evrópumeisturunum, sem hafa ekki riðið feitum hesti í úrvalsdeildinni í haust.

Sport
Fréttamynd

Enn ein meiðslin hjá Villa

Wilfred Bouma, varnarmaður Aston Villa er meiddur á læri og verður frá í nokkrar vikur og eykur með því enn á meiðslavandann hjá mönnum David O´Leary, sem þegar hefur misst þá Jlloyd Samuel, Martin Laursen og Gary Cahill í erfið meiðsli.

Sport
Fréttamynd

Carroll klaufalegur

Markvörðurinn Roy Carroll hjá West Ham verður líklega ekki á milli stanganna hjá liði sínu um helgina eftir að hafa meitt sig á hné á æfingu í dag. Meiðslin eru í hæsta máta neyðarleg, því markvörðurinn flæktist í marknetinu þegar hann var að safna saman boltum eftir æfinguna.

Sport
Fréttamynd

Henry segir Arsenal vanta menn

Thierry Henry, framherji Arsenal, segir að liðið vanti fleiri leikmenn og þá sérstaklega einhvern til að fylla skarð Patrick Vieira, ef það á að ná einhverjum árangri í vetur. Þær raddir gerast nú æ háværari að hann sé á förum frá Arsenal vegna óánægju með leikmannamál.

Sport
Fréttamynd

100 ára veldi Abramovich

Roman Abramovich, eigandi Chelsea segist ætla að byggja félagið upp svo það megi verða stórveldi í heimsknattspyrnunni næstu 100 árin og segir að sig hafi aldrei órað fyrir hvað væri gaman að byggja upp knattspyrnulið á Englandi.

Sport
Fréttamynd

Richardson semur við United

Kieran Richardson hélt upp á 21 árs afmæli sitt með því að skrifa undir nýjan samning við Manchester United og því er ljóst að hann verður hjá félaginu til ársins 2009.

Sport
Fréttamynd

Davids tók Milan fram yfir United

Edgar Davids hjá Tottenham Hotspur hefur viðurkennt að litlu hafi munað að hann gengi í raðir Manchester United árið 1996, en hann kaus þess í stað að fara til AC Milan á Ítalíu frá liðinu sem hann lék með þá, Ajax í Amsterdam.

Sport
Fréttamynd

Ronaldo verður með um helgina

Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United verður í liðinu um helgina, þrátt fyrir að hafa verið kærður fyrir nauðgun. Þetta staðfesti Sir Alex Ferguson í dag. "Cristiano mætti á æfingu í gær og ég held að verði allt í lagi með hann þó þetta séu erfiðir tímar fyrir hann," sagði Ferguson, en United mætir Tottenham um helgina.

Sport
Fréttamynd

Henry stendur við orð sín

Franski sóknarmaðurinn Thierry Henry hjá Arsenal ætlar ekki að láta fjölmiðlafárið í kring um framtíð sína hjá félaginu hafa nein áhrif á sig og segir að hann muni ekki skoða nýjan samning fyrr en í sumar þegar tímabilinu lýkur.

Sport
Fréttamynd

Woodgate þakkaði sjúkraþjálfaranum

Varnarmaðurinn Jonathan Woodgate fagnaði marki sínu fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni í gær með því að stökkva í fangið á sjúkraþjálfaranum sínum sem stóð á hliðarlínunni og segir að hann sé maðurinn á bak við endurkomu sína úr meiðslum.

Sport
Fréttamynd

Tottenham fær ekki Ólympíuleikvang

Vonir forráðamanna Tottenham Hotspur um að flytja heimavöll liðsins á frjálsíþróttaleikvanginn sem reistur verður fyrir Ólympíuleikana árið 2012 eru að engu orðnar, eftir að aðilar sem standa að byggingunni tilkynntu að leikvangurinn yrði áfram notaður undir frjálsar íþróttir eftir að leikunum líkur.

Sport
Fréttamynd

Giggs fer í aðgerð

Ryan Giggs, leikmaður Manchester United, þarf að fara í aðgerð vegna kinnbeinsbrotsins sem hann hlaut í leiknum gegn Lille í Meistaradeildinni á þriðjudaginn og óvíst er hversu lengi kappinn verður frá keppni í kjölfarið, en það verða væntanlega nokkrar vikur.

Sport
Fréttamynd

Halmstad tapaði fyrir Hertha

Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar í sænska liðinu Halmstad, töpuðu 1-0 fyrir þýska liðinu Hertha Berlin í C-riðli Evrópukeppni félagsliða nú áðan. Það var Neuendorf sem skoraði mark þýska liðsins á 67. mínútu. Síðar í kvöld mætast Steua Búkarest og Lens í þessum sama riðli.

Sport
Fréttamynd

Middlesbrough sigraði

Middlesbrough sigraði svissneska liðið Grasshoppers með einu marki gegn engu í fyrsta leik liðsins í riðlakeppni UEFA bikarsins í kvöld. Mark liðsins skoraði Jimmy Floyd Hasselbaink snemma leiks. Bolton varð hinsvegar að sætta sig við jafntefli 1-1 við Besiktas. Ailton skoraði fyrir Tyrkina, en Borgetti fyrir Bolton.

Sport
Fréttamynd

Fjöldi liða skoðar Gunnar í kvöld

Útsendarar liða frá Englandi og Þýskalandi munu í kvöld fylgjast með Gunnari Heiðari Þorvaldssyni, markahæsta leikmanni sænsku deildarinnar, þegar lið hans Halmstad mætir Hertha Berlin í Evrópukeppninni. Birmingham og Everton eru á meðal áhugasamra liða samkvæmt fréttavef BBC.

Sport
Fréttamynd

Torres orðaður við Arsenal

Breska dagblaðið Daily Mirror greinir frá því í dag að Arsenal sé á höttunum eftir spænska landsliðsmanninum Fernando Torres hjá Atletico Madrid, en talið er að hann myndi kosta enska liðið um 15 milljónir punda.

Sport
Fréttamynd

Jol í vandræðum með Keane

Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, viðurkennir fúslega að það sé óréttlátt að maður eins og Robbie Keane skuli þurfa að sitja á varamannabekk liðsins leik eftir leik, en segir að í sínum augum sé hann hluti af byrjunarliði sínu.

Sport
Fréttamynd

Mark Gonzalez til Liverpool

Liverpool hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Mark Gonzalez frá Chile, en hann er 21 árs og kemur frá spænska liðinu Albacete. Liverpool reyndi að kaupa hann í sumar, en ekkert varð af því eftir að félaginu mistókst að fá atvinnuleyfi fyrir hann. Það mun nú vera í vinnslu, þó þess verði nokkuð að bíða að hann gangi í raðir félagsins.

Sport
Fréttamynd

Cudicini vill framlengja

Ítalski markvörðurinn Carlo Cudicini segist vilja framlengja samning sinn við Chelsea til ársins 2009, jafnvel þó hann hafi vermt varamannabekk liðsins allt frá því Petr Cech kom til Chelsea á sínum tíma.

Sport
Fréttamynd

Fjöldi leikja í UEFA bikarnum

Margir leikir verða á dagskrá í riðlakeppni Evrópukeppni félagsliða í kvöld og nokkrir eru þegar hafnir. Kristinn Jakobsson dæmir leik CSKA Moskvu og Marseille, sem er nýhafinn og er í beinni útsendingu á Eurosport. Þá eru Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar í eldlínunni, sem og nokkur ensk lið.

Sport
Fréttamynd

Christianval meiddur

Hrakfallabálkurinn Philippe Christanval hjá Fulham verður frá í þrjár vikur vegna meiðsla á læri, sem hann varð fyrir eftir aðeins 35 mínútna leik með nýja liðinu sínu á mánudagskvöldið. Ferill Christanval hefur einkennst af miklum meiðslum, en engum dyljast hæfileikar þessa fyrrum landsliðsmanns Frakka.

Sport
Fréttamynd

Gunnar fékk úr litlu að moða

Gunnar Heiðar Þorvaldsson sagði í samtali við Vísi nú áðan að hann hefði fengið úr litlu að moða í Evrópuleiknum gegn Hertha Berlin áðan, en lið hans Halmstad tapaði 1-0 á heimavelli fyrir þýska liðinu.

Sport