Náttúruhamfarir
18 19 20 21 22 ›
Snævi þakinn Seyðisfjörður tók á móti ráðherrum Seyðisfjörður var snævi þakinn í dag þegar ráðherrar ríkisstjórnarinnar heimsóttu bæinn, til þess að sjá afleiðingar skriðanna sem féllu á bæinn fyrir helgi. Miklar skemmdir hafa orðið á bænum og aðeins hluti íbúa hefur fengið að snúa aftur. Innlent 22.12.2020 20:21
Sérfræðingar vanmátu aðstæður á Seyðisfirði Harpa Grímsdóttir, hópstjóri ofanflóðavöktunar Veðurstofu Íslands, segir sérfræðinga stofnunarinnar hafa vanmetið aðstæður utan Búðarár á Seyðisfirði, þar sem stærsta skriða sem fallið hefur á þéttbýli á Íslandi féll síðdegis á föstudag. Innlent 22.12.2020 17:41
Seyðisfjörður kominn í vetrarbúning eftir hörmungar síðustu viku Það er búið að snjóa á Seyðisfirði og bærinn allt annar að sjá í dag heldur en síðustu daga. Skriður féllu á bæinn fyrir helgi, sú stærsta á föstudag, með miklu tjóni. Tekin var ákvörðun um að rýma bæinn vegna hættu á frekari skriðum. Innlent 21.12.2020 22:25
Hættustig enn í gildi á Seyðisfirði Hættustig almannavarna er áfram í gildi á Seyðisfirði og rýmingar að hluta til í gildi í bænum vegna skriðuhættu. Þá er óvissustig almannavarna í gildi á Austurlandi vegna skriðuhættu. Innlent 21.12.2020 20:57
„Þetta er allt annar bær en fyrir nokkrum dögum síðan“ Kristinn Már Jóhannesson slökkviliðsmaður var að ganga frá búnaði eftir að hafa dælt upp úr kjallara þegar stóra aurskriðan féll á Seyðisfjörð síðdegis á föstudaginn. Hann segir að eftir að drunur fóru að heyrast í bænum hafi hlutirnir gerst hratt og að það sé undarleg tilfinning að snúa aftur í bæinn. Innlent 21.12.2020 19:00
Fjórtán hús hrunin eða horfin á Seyðisfirði Þrettán hús við Hafnargötu á Seyðisfirði og eitt við Austurveg eru hrunin eða alveg horfin eftir skriðurnar þar. Sérfræðingar segja tjónið vera gríðarlegt og það muni taka mörg ár að meta það. Starfshópur á vegum stjórnvalda hefur verið skipaður til að reyna að ná utan um hversu mikið heildartjónið er. Innlent 21.12.2020 18:49
Myndband sýnir andartökin rétt eftir skriðuna miklu: „Eru allir komnir út?“ Myndefni frá björgunarstörfum á Seyðisfirði sýnir hvernig var umhorfs í bænum augnablikum eftir að stór aurskriða, sem olli verulegum skemmdum á bænum, féll um þrjúleytið á föstudag. Innlent 21.12.2020 18:10
Seyðfirðingar sneru heim í dag: „Mann langar bara að vera heima hjá sér“ Íbúar utan hættusvæða á Seyðisfirði hafa fengið að snúa aftur til síns heima, tveimur sólarhringum eftir að bærinn var rýmdur. Þó er áfram hætta á frekari skriðuföllum. Íbúar segjast hlakka til að komast heim en kvíða því að sjá eyðilegginguna í bænum. Innlent 20.12.2020 19:20
Synti út úr skriðunni eftir að hafa bjargað manni úr björgunarsveitarbíl „Ég sé skriðuna fara af stað. Hún byrjar að renna niður. Ég horfi niður og þar sé ég björgunarsveitarbíl sem var við lokunarpóst, sem ég veit að mun lenda í skriðunni. Eftir það sé ég bara björgunarsveitarbílinn. Þó svo að hús hafi farið fram hjá á sama tíma þá sá ég aldrei húsið, ég sá bara björgunarsveitarbílinn því ég vissi að hann væri mannaður.“ Innlent 20.12.2020 16:25
Ráðherrar heimsækja Seyðisfjörð á þriðjudag Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra stefnir að því að fara til Seyðisfjarðar ásamt öðrum ráðherrum á þriðjudag til að meta aðstæður. Áður þurfa ráðherrar og fylgdarlið að fara í skimun fyrir kórónuveirunni. Innlent 20.12.2020 14:55
Rýmingu aflétt að hluta á Seyðisfirði og bærinn kominn á hættustig Ofanflóðasérfræðingar Veðurstofu Íslands og samstarfsaðilar hafa metið hættu á frekari skriðuföllum á Seyðisfirði. Þeir íbúar sem búa utan áhættusvæða mega snúa aftur til Seyðisfjarðar í dag. Viðbúnaðarstig á Seyðisfirði hefur verið fært af neyðarstigi niður á hættustig. Innlent 20.12.2020 14:36
Áfram neyðarstig á Seyðisfirði Neyðarstig verður áfram í gildi á Seyðisfirði og hættustig á Eskifirði. Þetta var ákveðið í dag eftir fund almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og lögreglu með ofanflóðasérfræðingum Veðurstofu Íslands, aðgerðarstjórn, vettvangsstjórn og fulltrúum mikilvægra innviða og stofnana á Austurlandi nú fyrir hádegi. Innlent 20.12.2020 12:41
Skoða hvort hægt sé að aflétta hluta rýmingar Vonast er til að hægt verði að aflétta hluta rýmingar á Seyðisfirði í dag. Aðgerðastjórn og Veðurstofan fundaði í morgun klukkan tíu í samhæfingarstöð almannavarna varðandi næstu skref en endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin. Innlent 20.12.2020 11:55
Funda um næstu skref klukkan tíu: Varðskipið Týr sótti þrennt sem varð innlyksa Nú klukkan tíu er að hefjast fundur í samhæfingarstöð almannavarna með aðgerðastjórn og Veðurstofunni um hver næstu skref verða á Seyðisfirði þar sem enn er neyðarstig í gangi og Eskifirði þar sem er hættustig. Innlent 20.12.2020 09:40
Bjóða Seyðfirðingum íbúðir sínar og hús til að dvelja í um jólin: „Maður er bara klökkur“ Seyðfirðingar hafa enn ekki fengið að snúa aftur til síns heima en þeir halda nú flestir til á Egilsstöðum, þar sem fjöldahjálparstöð var opnuð í gær. Sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum segir að þrjú- til fjögur hundruð manns hafi nýtt sér þjónustu fjöldahjálparstöðvarinnar í dag. Innlent 19.12.2020 22:41
Þurfti að vaða stóru aurskriðuna: „Gusurnar gengu þarna ennþá“ Þórarinn Sigurður Andrésson, betur þekktur sem Tóti Ripper, var einn þeirra sem fylgdist með aurskriðunni falla síðdegis í gær. Tóti var staddur í næsta húsi og þurfi hann að hlaupa þaðan niður að höfn til að forða sér frá skriðunni. Innlent 19.12.2020 21:01
Vatnsþrýstingur fer minnkandi í jarðvegi Vatnsþrýstingur hefur minnkað í jarðvegi á Seyðisfirði og útlit er fyrir að hreinsunarstarf geti hafist. Aðgerðarstjórn og samhæfingarstöðin hafa skipulagt björgunarstarf og gera nú áætlanir um hreinsun. Innlent 19.12.2020 20:44
Segir hamfarirnar skapa hugrenningartengsl við jólaguðspjallið Sigríður Rún Tryggvadóttir, prestur á Seyðisfirði, segir það erfitt fyrir Seyðfirðinga að hugsa til þess að aðeins fimm dagar séu til jóla. Náttúruhamfarirnar á Seyðisfirði hafi skollið á á tíma sem reynist mörgum erfiður. Innlent 19.12.2020 20:00
Landsmenn allir veita Seyðfirðingum stuðning: „Þetta er stórkostlegt og við erum mjög þakklát“ Íbúar á Seyðisfirði hafa ekki fengið að snúa aftur til síns heima í dag. Neyðarstig er enn í gildi og óvíst hvenær hægt verður að hleypa fólki heim til að sækja eigur sínar. Varðstjóri á Seyðisfirði segist hlakka til að árið klárist. Innlent 19.12.2020 19:03
„Ég verð mjög feginn þegar 2020 er búið“ Lítil aurskriða féll á Seyðisfirði í morgun en viðbragðsaðilar hafa í dag unnið að gagnasöfnun og hættumati á svæðinu. Viðbragðsaðilar hafa meðal annars myndað Seyðisfjörð úr lofti með drónum, til þess að meta stöðuna. Innlent 19.12.2020 18:08
Myndir frá Seyðisfirði sýna gríðarlega eyðileggingu Eyðileggingin í kjölfar aurskriðanna sem fallið hafa á Seyðisfjörð var áþreifanleg þegar fjölmiðlafólki var hleypt að bænum í dag. Innlent 19.12.2020 16:40
„Ef maðurinn minn hefði hlaupið í hina áttina þá væri hann ekki hér með okkur“ Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri og fyrrum forseti bæjarstjórnar á Seyðisfirði, segir það vera kraftaverk að ekkert manntjón hafi orðið þegar aurskriðan féll í gær. Bjarki Borgþórsson, lögreglumaður og eiginmaður Hildar, var staddur nærri staðnum sem skriðan féll ásamt öðrum viðbragðsaðilum og mátti litlu muna að verr færi. Innlent 19.12.2020 15:28
Rýming á Seyðisfirði og Eskifirði áfram í gildi og staðan endurmetin á morgun Rýming verður í gildi á Eskifirði að minnsta kosti til hádegis á morgun, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Austurlandi. Þá verður staðan á Seyðisfirði endurmetin í fyrramálið Innlent 19.12.2020 15:00
Telja jarðlög enn óstöðug vegna skriðu sem féll í morgun Óheft umferð um Seyðisfjörð verður óheimil í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi. Þá verða rýmingar á Seyðisfirði og Eskifirði áfram í gildi. Skriða sem féll í morgun gefur vísbendingar um óstöðugleika í jarðlögum. Innlent 19.12.2020 12:19
Óvíst hvenær íbúar geta snúið aftur til Seyðisfjarðar Ekki liggur fyrir hvenær íbúar Seyðisfjarðar geta snúið aftur til síns heima eftir að bærinn var rýmdur í gærkvöldi. Stórar aurskriður féllu á bæinn og skemmdu minnst tíu hús. Innlent 19.12.2020 11:45
„Verst af öllu er að þurfa að bíða en við verðum að vona það besta“ Páll Thamrong Snorrason segir aðgerðir á Seyðisfirði í gærkvöldi hafa gengið vel en fólk sé margt óttaslegið og kvíðið fyrir næstu skrefum. Innlent 19.12.2020 10:34
Sér fyrir endann á úrkomu en áfram skriðuhætta Skriðuhætta verður áfram á austanverðu landinu þó nú sjái fyrir endann á þeirri rigningu sem hefur verið á svæðinu. Neyðarstig almannavarna er í gildi á Seyðisfirði og hefur bærinn verið rýmdur vegna skriðuhættu eftir að stórar skriður féllu í bænum. Innlent 19.12.2020 07:18
Seyðfirðingar allir komnir með svefnpláss fyrir nóttina Seyðfirðingar eru allir komnir til Egilsstaða í fjöldahjálparstöð Rauða krossins sem opnuð var í grunnskólanum þar. Að sögn Rögnvaldar Ólafssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, hafa allir fengið rúmpláss fyrir nóttina og enginn mun þurfa að halda til í skólanum í nótt. Innlent 18.12.2020 21:44
Holræsin hafa ekki undan og slökkviliðið reynir að bjarga kjöllurum frá vatnsskemmdum Slökkviliðsmenn á Seyðisfirði hafa undanfarna daga átt fullt í fangi með að dæla vatni upp úr kjöllurum og að dæla vatn úr holræsum sem hafa ekki haft undan. Haraldur Geir Eðvaldsson, slökkviliðsstjóri á Seyðisfirði segir að enn sé mikið eftir og að starf slökkviliðsins muni ekki hefjast af alvöru fyrr en íbúar hafa snúið aftur heim til sín. Innlent 18.12.2020 20:08
Um 30 ár síðan heilt bæjarfélag var síðast rýmt Neyðarástand er í gildi á Seyðisfirði vegna aurskriða sem þar hafa fallið síðustu sólarhringa. Stór skriða féll á byggðina um klukkan hálf fjögur á föstudag sem hreif með sér hús sem jafnaðist nánast við jörðu. Innlent 18.12.2020 19:06