
Þýski boltinn

Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn
Þýska knattspyrnusambandið ætlar að heiðra einn allra besta knattspyrnumanninn í sögu Þýskalands með sérstökum hætti.

Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar
Magdeburg spilar ekki á morgun í þýsku handboltadeildinni eins og áætlað var. Ástæðan er sú að fimm eru látnir og tvö hundruð særðir eftir að maður ók bíl á miklum hraða inn í þvögu fólks á jólamarkaði í Magdeburg í gærkvöldi

Tvö mörk skoruð fyrstu tvær mínúturnar í sigri Bayern
Bayern München lagði RB Leipzig örugglega, 5-1 á heimavelli í fimmtándu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Tvö mörk voru skoruð á fyrstu tveimur mínútum leiksins.

Ísak Bergmann skoraði í slæmu tapi
Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði fyrra mark Fortuna Dusseldorf í 2-5 tapi gegn Magdeburg í næstefstu deild Þýskalands.

Eyddi níu milljónum í bikara fyrir starfsliðið
Xabi Alonso, þjálfari Bayer Leverkusen, sá til þess að þjálfarateymi hans ætti góðan minjagrip um Þýskalandsmeistaratitil félagsins í vor. Hann keypti eftirmynd af verðlaunagripnum fyrir teymið.

Sif gaf Fortuna síðustu treyju föður síns
Sif Atladóttir færði Fortuna Düsseldorf rausnarlega gjöf í síðustu viku og félagið þakkar henni innilega fyrir á miðlum sínum.

Óvænt hetja og Glódís við toppinn um jólin
Glódís Perla Viggósdóttir var á sínum stað í liði Bayern München þegar liðið vann öruggan 2-0 sigur gegn Potsdam í síðasta deildarleik sínum fyrir eins og hálfs mánaðar hlé í þýsku 1. deildinni í fótbolta.

Létu tímann renna út án þess að reyna að skora
Gera þurfti langt hlé á leik Union Berlin og Bochum í þýsku úrvalsdeildinni í dag eftir að aðskotahlut var kastað í markvörð Bochum. Þegar leikmenn sneru aftur á völlinn létu þeir leikinn fjara út án þess að reyna að skora.

Sveindísi enn á ný skellt á bekkinn þrátt fyrir fernuna
Sveindís Jane Jónsdóttir hefur aðeins byrjað tvo deildarleiki fyrir Wolfsburg í Þýskalandi í vetur og það breyttist ekki í dag, þrátt fyrir fernuna sem hún skoraði gegn Roma á metttíma í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í vikunni.

Sá yngsti í Meistaradeildinni mögulega fjórum árum eldri en allir héldu
Mikið var látið með Youssoufa Moukoko á sínum tíma þegar hann sló metið yfir yngsta leikmanninn í sögu Meistaradeildar karla í fótbolta. Nýr þýskur heimildaþáttur hefur kannað betur fæðingardag Moukoko og komist að því að hann er mögulega fjórum árum eldri en allir héldu.

Popp vill fá mömmu Sveindísar oftar
Sveindís Jane Jónsdóttir varð í gærkvöld fyrst Íslendinga til að skora fernu í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Liðsfélagi hennar og fyrirliði Wolfsburg, Alexandra Popp, var með áhugaverða skýringu á ótrúlegri frammistöðu Sveindísar.

Neuer spilar ekki fleiri leiki á árinu 2024
Manuel Neuer, markvörður Bayern München, missir ekki bara af næstu leikjum liðsins vegna meiðsla.

Enginn fær að klæðast fimmu Beckenbauer hjá Bayern
Bayern München hefur ákveðið að heiðra minningu Franz Beckenbauer, sem lést í janúar á þessu ári, með því að banna leikmönnum liðsins að klæðast treyju númer fimm.

Setti tvö og var bestur á vellinum
Ísak Bergmann Jóhanesson fór mikinn með liði Fortuna Dusseldorf sem vann 5-0 sigur á Einstracht Braunschweig í þýsku B-deildinni í dag.

Staða Bayern á toppnum styrktist
Staða Bayern München í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar styrktist enn frekar í dag. Bæjarar unnu Hedenheim 4-2 á meðan Eintracht Frankfurt, sem situr í öðru sæti og hafði unnið fjóra deildarleiki í röð, gerði 2-2 jafntefli við Augsburg.

Amanda skoraði og Glódís fór á toppinn
Landsliðskonurnar í fótbolta, Amanda Andradóttir og Glódís Perla Viggósdóttir, áttu góðu gengi að fagna með liðum sínum í dag.

Jón Dagur tekinn af velli í hálfleik
Hertha Berlin, lið landsliðsmannsins Jóns Dags Þorsteinssonar, tapaði fyrir Greuther Fürth, 2-1, í þýsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Karólína hafði betur gegn Sveindísi og fór á toppinn
Bayer Leverkusen vann 1-0 sigur á Wolfsburg í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þar hafði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir betur gegn Sveindísi Jane Jónsdóttur.

Ten Hag gæti orðið samstarfsmaður Klopp
Þýska félagið RB Leipzig er sagt vera íhuga það að skipta um þjálfara hjá sér og að stjórnarmenn félagsins horfi í staðinn til fyrrum knattspyrnustjóra Manchester United.

Leikmaðurinn sem Ísland missti ætlar sér að vinna Gullknöttinn
Íslenski-bandaríski knattspyrnumaðurinn Cole Campbell hefur mikla trú á sér og sínum hæfileikum. Hann hefur sett stefnuna hátt í framtíðinni. Svo hátt að hann fyrir sér að halda á Ballon d'Or styttunni áður en ferlinum lýkur.

Neuer sá rautt og Bayern enn á ný úr leik
Ógöngur Bayern München í þýska bikarnum í fótbolta halda áfram því liðið féll í kvöld úr leik í 16-liða úrslitum, eftir 1-0 tap gegn meisturum Leverkusen.

Kane kominn í jólafrí?
Bayern München verður án markahróksins Harry Kane annað kvöld í stórleiknum gegn meisturum Leverkusen í þýsku bikarkeppninni, og mögulega spilar Kane ekki meira á þessu ári.

Hjálpaðu Glódísi að komast í heimsliðið
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Bayern München og íslenska landsliðsins, kemur til greina í heimsliðið í fótbolta. Íslendingar geta hjálpað henni að komast í það með því að kjósa hana á heimasíðu FIFA.

Ísak Bergmann skoraði og liðið fékk hjálp í lokin
Íslendingaliðið Fortuna Düsseldorf hefur verið í vandræðum í þýsku b-deildinni og því var mikilvægt að ná í stig í dag á útivelli á móti Nürnberg.

Musiala bjargaði stigi fyrir Bayern
Jamal Musiala reyndist hetja Bayern München er hann tryggði liðinu 1-1 jafntefli gegn Dortmund í stórleik helgarinnar í þýska boltanum í kvöld.

Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna
Goal í Bandaríkjunum fjallar um hinn bandaríska-íslenska William Cole Campbell og býst við miklu af stráknum í framtíðinni.

Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina
Sveindís Jane Jónsdóttir endaði 49 daga bið sína eftir marki hjá Wolfsburg með stórglæsilegu marki um helgina.

Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö
Sveindís Jane Jónsdóttir átti heldur betur sterka innkomu af bekknum hjá Wolfsburg í dag en hún skoraði tvö mörk í 1-4 sigri liðsins á Mainz í þýska bikarnum.

Þrumuskalli Glódísar kom Bæjurum á bragðið
Glódís Perla Viggósdóttir var á skotskónum fyrir lið sitt Bayern Munchen í dag sem eltir Wolfsburg í toppbaráttu þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Glódís kom Bæjurum á bragðið með hörkuskalla
Eftir að hafa gert jafntefli í tveimur síðustu leikjum sínum í þýsku úrvalsdeildinni vann Bayern München 5-0 sigur á Jena í dag. Glódís Perla Viggósdóttir skoraði fyrsta mark Bæjara í leiknum.