

Ofhugsun, þráhyggja, áhyggjur, of margar hugsanir of hraðar hugsanir, neikvæðar hugsanir...‘ Er þvottavélin á yfirsnúningi?
Kerfisbundið tengslarof barnaverndar gegn börnum og fjölskyldum þeirra á sér enn stað í dag árið 2023.
193. gr.almennra hegningarlaga nr. 19/1940Hver, sem sviptir foreldra eða aðra rétta aðilja valdi eða umsjá yfir barni, sem ósjálfráða er fyrir æsku sakir, eða stuðlar að því, að það komi sér undan slíku valdi eða umsjá, skal sæta sektum … 1) eða fangelsi allt að 16 árum eða ævilangt.
Í störfum sínum keppist barnavernd við að slíta öll tengsl fósturbarna við blóðfjölskyldur sínar, við rætur sínar, við líf sitt.
Í fyrri pistlum mínum hef ég lýst vinnubrögðum barnaverndar á Íslandi og þeirri ómannúðlegu og vanvirðandi meðferð sem skjólstæðingar barnaverndar, bæði börn og fjölskyldur þeirra, eru látin sæta.
68. gr.Stjórnarskrár Íslands, nr. 33/1944: ,,Engan má beita pyndingum né annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.“
Fyrir allnokkrum árum var ég mjög veik. Ég var stöðugt kvíðin, óörugg og með brotna sjálfsmynd. Ég hafði glímt við vöðvabólgu í öxlum og herðum frá barnsaldri. Á fullorðinsárum fóru svo krónískir verkir í baki, herðum og hálsi að vera vart við sig.
Ég hef áður lýst því sem ég hef séð af vinnubrögðum barnaverndar á Íslandi sem lögmaður. Brunaslóðin, lögbrotin, mannréttindabrotin og sársaukinn.
Undirrituð hefur áður skrifað pistla um rotið barnaverndarkerfi og mannréttindabrot framin þar innan á Íslandi. Gegn saklausum börnum, gegn fjölskyldum í landinu. Barnaverndarstofa er bitlaust bákn, hefur ekki verið falið neinar alvöru eftirlitsheimildir þótt hún sinni sínu takmarkaða hlutverki vel og af fagmennsku.
Barnaverndaryfirvöld eru stjórnvöld. Sem slík, bera þau ríka ábyrgð á því að fylgja meginreglum um hlutleysi og sannleika í öllu sínu starfi.
Mannréttindi fósturbarna á Íslandi eru fótum troðin af hálfu stjórnvalda. Þegar kemur að barnaverndarkerfinu, eru fósturbörn í reynd réttlaus og eiga sér ekki málsvara.
Ímyndaðu þér að veikjast alvarlega. Vera haldin/n krónískum sjúkdómi sem leiðir margar miljónir manna til dauða á ári hverju um allan heim. Sjúkdómurinn er sérstaklega þjáningarfullur og sviptir fólk iðulega mannlegri reisn. Stjórnleysið tekur yfir. Hinn veiki hverfur smátt og smátt frá ástvinum sínum, inn í hyldýpið sem virkur alkóhólismi er.
Undirrituð hefur sem lögmaður til meðferðar mál barnaverndarnefndar Reykjavíkur á hendur foreldri og barni þess. Við meðferð málsins hefur mjög margt varhugavert komið í ljós. Umfjöllun um það væri efni í heila bók.
Langflestir skjólstæðingar barnaverndar, yfirgnæfandi meirihluti þeirra, eru foreldrar sem glíma við fíknisjúkdóma, áfengis og vímuefnafíkn. Í áratugi hefur sjúkdómur þessi verið viðurkenndur sem sjúkdómur og hann að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) eitt stærsta heilbrigðisvandamál sem þegnar heimsins standa frammi fyrir.
Um daginn barst mér bréf þar sem kærum skjólstæðings míns til lögreglu á hendur embættismönnum vegna brota í opinberu starfi var vísað frá, án rökstuðnings. Rökstuðningur barst skv. kröfu og sagði í reynd ekkert annað en að umræddu stjórnvaldi væri treyst af lögreglu.
Undirrituð hefur í starfi sínu sem lögmaður orðið vör við að í umgengnismálum hjá sýslumannsembættum landsins virðist vera orðin lenska að afla málaskrár þeirra sem á náðar embættisins þurfa að leita vegna umgengni við börn sín, frá Ríkislögreglustjóra, með eða án „samþykkis” aðila.