Orkuskipti
2 3 4 5 6 7 8 … 8 ›
Segir að einfalt ætti að vera að fá heimild fyrir Hvammsvirkjun Forstjóri Landsvirkjunar segir að það ætti að vera tiltölulega einfalt mál að fá aftur virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun, aðeins hafi vantað samtal milli tveggja ríkisstofnana. Hann gagnrýnir úrskurðarnefnd fyrir að fella leyfið úr gildi og koma þannig í veg fyrir að mikilvægar framkvæmdir hefjist í sumar. Innlent 28.6.2023 21:30
Vilja reisa vindorkugarða við Hellisheiði Orkuveita Reykjavíkur (OR) er búin að leggja fram beiðni til Orkustofnunar vegna þriggja vindorkukosta, tveir í Ölfusi en einn við Lyklafell í Mosfellsbæ. Þegar er búið að kynna hlutðeigandi bæjar- og sveitarstjórum fyrir þeim kostum sem eru til skoðunar. Innlent 28.6.2023 10:56
Isavia semur um uppbyggingu hleðslustöðva í Keflavík Fulltrúar Isavia og HS Orku hafa skrifað undir samning um uppsetningu á fjölda hleðslustöðva fyrir rafbíla á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem segir að um langtíma verkefni sé að ræða. Viðskipti innlent 23.6.2023 13:17
Búrfellslundur settur í bið og óvissa um Hvammsvirkjun Uppbygging vindorkuvera hérlendis er í uppnámi eftir að Skeiða- og Gnúpverjahreppur setti Búrfellslund, sem Landsvirkjun áformar, í biðstöðu. Sveitarstjórnin hyggst með þessu knýja á um að sveitarfélög og nærsamfélög fái hærri tekjur af orkuverum. Innlent 23.6.2023 09:54
Undirbúningur framkvæmda í uppnám Forstjóri Landsvirkjunar segir ljóst að undirbúningur framkvæmda við Hvammsvirkjun fari í uppnám eftir að virkjunarleyfi var fellt úr gildi. Til stóð að bjóða út fyrstu undirbúningsáfanga strax í næstu viku. Innlent 15.6.2023 22:55
Talsmaður laxaverndar fagnar og vonar að virkjunin sé úr sögunni Virkjunaráform í neðri Þjórsá eru í algerri óvissu eftir að úrskurðarnefnd umhverfis og auðlindamála felldi virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar úr gildi í dag, aðeins sólarhring eftir að sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti framkvæmdaleyfi. Innlent 15.6.2023 20:20
Þrjátíu ára deilum um Hvammsvirkjun lokið Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti nú undir kvöld framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun. Sveitarstjórn Rangárþings-ytra ákvað í dag að fresta kosningu um málið og Landsvirkjun getur því ekki enn hafist handa við framkvæmdir við virkjunina. Innlent 14.6.2023 20:08
Fjárfesting InstaVolt flýtir fyrir orkuskiptum í bílaflota Íslands InstaVolt, öflugasta hraðhleðslufyrirtæki Bretlands, fyrirhugar umtalsverðar fjárfestingar í innviðauppbyggingu fyrir rafbíla á Íslandi. Samstarf 7.6.2023 12:06
Hætta við lokun flugvallar vegna orkuskipta í flugi Ríkisstjórn Sviþjóðar hefur snúið við ákvörðun um lokun Bromma-flugvallar í Stokkhólmi og segir hann gegna lykilhlutverki í orkuskiptum flugsins. Ákvörðunin er þvert á vilja borgarstjórnar Stokkhólms sem stefndi að því að loka flugvellinum eftir tvö ár. Erlent 22.5.2023 22:10
Orkuskortur kom þungt niður á kolefnisbókhaldi Síldarvinnslunnar Ef fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar á Neskaupstað hefðu haft ótakmarkað aðgengi að rafmagni hefði verið hægt að koma í veg fyrir losun 14 þúsund tonna af kolefnisígildum á síðasta ári. Forstjóri Síldarvinnslunnar segir vonbrigði að orkubúskapur landsins sé ekki í betri stöðu en raun ber vitni. Innherji 17.5.2023 08:46
Útilokað að Ísland nái loftslagsmarkmiðum sínum? Stjórnvöld hafa sett fram mjög metnaðarfull markmið í loftslagsmálum. Minnka á kolefnisfótspor landsins um 55% árið 2030 miðað við árið 1990 og ná kolefnishlutleysi árið 2040. Þessi markmið kalla á gríðarmikla endurnýjanlega raforku því skipta þarf út orkutegund t.d. í samgöngum. Um þetta eru allir sammála. Skoðun 11.5.2023 16:01
Sænsk flugvélaleiga kaupir fjörutíu rafmagnsflugvélar Sænska flugvélaleigan Rockton hefur samið um kaup á allt að fjörutíu rafmagnsflugvélum af gerðinni ES-30 frá sænska flugvélaframleiðandanum Heart Aerospace. Með samningnum breytti Rocton fyrri viljayfirlýsingu í skuldbindandi kaupsamning um tuttugu flugvélar og um kauprétt á tuttugu flugvélum til viðbótar. Viðskipti erlent 10.5.2023 13:31
Fjórar hitaveitur metnar ágengar Líkur eru á langvarandi skorti á heitu vatni á köldustu dögum ársins vegna mikillar aukningar á eftirspurn eftir vatni. Orkulindir hitaveitna á höfuðborgarsvæðinu eru nánast fullnýttar. Það tekur mörg ár að kanna ný virkjanasvæði og byggja þau upp til nýtingar. Innlent 5.5.2023 21:01
Stærsta stöð N1 á Suðurnesjum Skóflustunga hefur verið tekin að nýrri þjónustumiðstöð N1 að Flugvöllum í Reykjanesbæ. Samstarf 5.5.2023 12:18
Ávinningurinn margfaldur en greiða þurfi úr flækjum: „Þetta er gríðarlega stórt verkefni“ Koma fyrstu rafmagnsvörubílanna til landsins markar byltingu að sögn forstjóra Brimborgar. Tæknilega væri hægt að skipta helmingi flotans út strax en kostnaður og skortur á innviðum er ákveðin hindrun sem bregðast þurfi við. Ávinningurinn sé þó margfaldur, ekki síst þegar kemur að því að ná loftslagsmarkmiðum. Áfram sé langt í land en þetta sé skref til framtíðar. Innlent 1.5.2023 15:39
Mikilvægt að almenningur komi að stefnumótun varðandi nýtingu vindorku Umhverfisráðherra segir mikilvægt að undirbúa stefnumótun fyrir nýtingu vindorku á Íslandi vel og vandlega. Þriggja manna starfshópur sem ráðherra skipaði í fyrrasumar til að skoða valkosti og greina stöðuna kynnti áfangaskýrslu í dag. Innlent 19.4.2023 19:51
Umhverfisráðherra boðar frumvarp um vindorku næsta vetur Starfshópur á vegum umhverfisráðherra leggur áherslu á að vandaðri pólitískri stefnumótun í vindorkumálum verði lokið áður en hafist verði handa við uppbyggingu vindorkuvera. Ráðherra boðar að frumvörp um nýtingu vindorku verði lögð fram á næsta þingvetri. Innlent 19.4.2023 12:13
Segir Finnafjörð fastan í þagnarmúr ríkisstjórnar Framgangur hugmynda um stórskipahöfn í Finnafirði við Langanes tafðist vegna covid-faraldursins. Áform um að taka upp þráðinn á ný eru sögð stranda á því að engin áheyrn fáist hjá íslenska ríkinu. Innlent 10.4.2023 09:39
Hvað eiga Ísland, Mósambík og Kongó sameiginlegt? Ísland framleiðir mest af raforku í heimi miðað við íbúafjölda. Framkvæmdastjóri Landverndar birti nýverið grein sem dregur upp dökka mynd af stöðu orkumála á Íslandi. Af skrifunum að dæma mætti telja að um sé að ræða svartan blett á safni „höfðatöluheimsmeta“ Íslands en svo er ekki. Skoðun 5.4.2023 07:01
Orkan í orkuskiptum Orkuþörf í tengslum við fyrirhuguð og nauðsynleg orkuskipti á Íslandi hefur mikið verið í umræðunni undanfarið. Ný orkuþörf tengist þó ekki bara orkuskiptum enda er eitt sem er sameiginlegt allri nýrri uppbyggingu, hvort sem hún tengist íbúðarhúsnæði eða atvinnulífi, en það er að öll uppbygging þarf einfaldlega rafmagn. Skoðun 4.4.2023 15:31
Nýjar og öflugri hraðhleðslustöðvar N1 N1 mun á næstu mánuðum stækka og uppfæra hraðhleðslustöðvanet sitt á landinu. Alls stefnir félagið á að taka 30 nýjar hraðhleðslustöðvar í notkun sem allar verða með 150 kW hleðslugetu. Samstarf 3.4.2023 13:00
Jafnar byrðar – ekki undanþágur Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá mörgum að íslensk stjórnvöld hafa lagt talsverða vinnu í að Evrópusambandið taki landfræðilega legu Íslands til greina þegar aukinn kostnaður mun leggjast á flugfélög innan álfunnar vegna kolefnislosunar á næstu árum. Skoðun 31.3.2023 08:31
Hvernig er best að hlaða bílinn? Orka náttúrunnar hefur verið í fararbroddi við uppbyggingu hleðsluinnviða hérlendis þegar kemur að orkuskiptum í samgöngum. Fyrirtækið býður upp á frábæra lausn fyrir rafbílaeigendur sem vilja hafa hleðslustöð heima hjá sér. Samstarf 29.3.2023 09:11
„Okkar stærsta áhætta“ við orkuskipti að fá ekki leyfi fyrir flutningslínum Forstjóri Landsnet segir að það sé „okkar stærsta áhætta“ við að ná markmiðum um orkuskipti að fyrirtækið nái ekki að ljúka við stærstu flutningslínurnar því þær komist ekki í gegnum leyfisferli. Hann hvetur alla að málinu komi til að bæta ferlið og tryggja að það fái farsælan endi. Innherji 24.3.2023 12:32
„Loftslagsbankinn“ horfir til frekara samstarfs við Landsnet Fulltrúar Evrópska fjárfestingabankans funduðu á dögunum með íslenskum aðilum í því skyni að skoða lánveitingar til þeirra. Bankinn hefur lánað samanlagt 1,2 milljarða evra til verkefna hérlendis, einkum á sviði orkumála en einnig uppbyggingu fjarskiptainnviða og vega. Innherji 21.3.2023 07:00
Íslenska leiðin – nær heimsmet í lélegri frammistöðu Ísland er langstærsti raforkuframleiðandi heims á íbúa og framleiðir sex sinnum meira rafmagn á íbúa en meðatalið fyrir hátekjulönd og átta sinnum meira en meðaltalið í Evrópu. Skoðun 16.3.2023 08:01
Ósætti á stjórnarheimilinu tefur umbætur á lögum um vindorkuver Í stjórnarsáttmála er kveðið á um að liðkað verði fyrir lagaumgjörð fyrir vindorkuframleiðslu. Það er forsenda fyrir orkuskiptum og annarri framþróun á orkusviði. Ekkert bólar á þeim umbótum. Skila átti frumvarpi þess efnis 1. febrúar en var frestað fram á næsta þing. Ósætti á stjórnarheimilinu virðist gera það að verkum að sú vinna tefjist. Innherji 10.3.2023 13:31
Magnað að sjá bara vatnsgufu úr hreyflinum en enga mengun Stórri farþegaflugvél, sömu gerðar og Icelandair notar í innanlandsfluginu, hefur í fyrsta sinn í sögunni verið flogið á vetni. Fulltrúi Icelandair var viðstaddur þetta tímamótaflug vestanhafs en þetta er meðal þeirra lausna sem félagið skoðar til orkuskipta í fluginu á Íslandi. Innlent 7.3.2023 22:20
Vöxtur endurnýjanlegrar orku kom í veg fyrir enn meiri aukningu í losun Heimsbyggðin hélt áfram að auka losun á gróðurhúsalofttegundum vegna orkuframleiðslu í fyrra og hefur hún aldrei verið meiri. Forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar segir að losunin hefði aukist þrefalt meira ef ekki væri fyrir vöxt í endurnýjanlegum orkugjöfum. Erlent 2.3.2023 10:12
Segir óábyrgt að leysa orkuskiptin með því að flytja framleiðslu annað Ekki verður sérstaklega virkjað vegna nýrrar stóriðju, að mati forstjóra Landsvirkjunar, sem segir orku nýrra virkjana fremur fara til fjölbreytts hóps smærri fyrirtækja sem og til orkuskipta. Viðskipti innlent 25.2.2023 22:20