Kvika banki
1 2 3 4 5 6 … 6 ›
Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Stjórn Íslandsbanka annars vegar og stjórn Arion banka hins vegar hafa báðar óskað eftir að hafnar verði samrunaviðræður við Kviku banka. Ritstjóri Innherja segir tilkynningarnar ekki koma á óvart en bæði séu kostir og gallar við báða samruna. Ekki er vitað hvort stjórn Kviku vilji eiga í samrunaviðræðum. Viðskipti innlent 28.5.2025 22:21
Samruni Arion og Kviku gæti skilað hluthöfum um sextíu milljarða virðisauka Verulega mikilli samlegð ætti að vera hægt að ná fram með mögulegum samruna Kviku og Arion, sérstaklega á kostnaðarhliðinni með fækkun nærri tvö hundruð stöðugilda, og þá ætti sameinaður banki að geta sparað sér talsverðan vaxtakostnað með bættu lánakjörum á erlendum mörkuðum, að mati hlutabréfagreinanda. Líklegt er að Samkeppniseftirlitið myndi helst horfa til þess að setja samrunanum skilyrði varðandi umsvif á eignastýringarmarkaði en nái hann fram að ganga gæti virðisaukningin fyrir hluthafa, einkum lífeyrissjóðir og að uppistöðu til þeir sömu í báðum félögum, numið um sextíu milljörðum. Innherji 28.5.2025 14:24
Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma Snorri Jakobsson, hagfræðingur og eigandi Jakobsson Capital segir að Íslandsbanki sé líklegri en Arion banki að sameinast Kviku banka, einfaldlega vegna þess að Íslandsbanki býður betur. Væntanleg sameining mun taka marga mánuði, líklega ár, segir Snorri. Viðskipti innlent 28.5.2025 13:11
Vísitölusjóðir Vanguard keyptu fyrir marga milljarða eftir útboð Íslandsbanka Hlutabréfasjóðir í stýringu alþjóðlega vísitölurisans Vanguard stækkuðu verulega stöðu sína í Íslandsbanka á nokkrum dögum í liðinni viku fyrir samanlagt um fjóra milljarða króna að markaðsvirði. Eftir sölu ríkissjóðs á öllum hlutum sínum í bankanum þurftu sjóðirnir að bæta við sig bréfum á eftirmarkaði þannig að eignarhaldið væri í samræmi við þær vísitölur sem þeir fylgja. Innherji 28.5.2025 10:44
Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Stjórn Íslandsbanka hefur óskað eftir því við stjórn Kviku banka að hafnar verði samrunaviðræður milli félaganna tveggja. Stjórn Arion banka óskaði eftir því í gær við stjórn Kviku að hafnar yrðu samrunaviðræður milli Arion og Kviku. Viðskipti innlent 28.5.2025 09:25
Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Auður, fjármálaþjónusta Kviku fyrir sparnaðarreikninga, hefur nú innreið sína á húsnæðislánamarkað og mun opna þessa nýju þjónustu í dag. Viðskipti innlent 28.5.2025 07:33
Arion vill sameinast Kviku Stjórn Arion banka ákvað á fundi sínum í dag að óska eftir því við stjórn Kviku banka að hafnar verði samrunaviðræður á milli félaganna tveggja. Viðskipti innlent 27.5.2025 18:59
Stefán ráðinn sjóðstjóri hlutabréfa hjá Kviku eignastýringu Kvika eignastýring hefur gengið frá ráðningu á Stefáni Birgissyni, sem hefur undanfarið starfað í markaðsviðskiptum hjá ACRO, en hann mun þar koma inn í teymi sjóðstjóra hlutabréfa. Innherji 26.5.2025 12:40
Breskir vogunarsjóðir umsvifamestir í kaupum á fyrstu evruútgáfu Kviku Tæplega tvöföld umframeftirspurn var á meðal fjárfesta þegar Kvika kláraði sína fyrstu skuldabréfaútgáfu í evrum fyrir helgi en kaupendahópurinn samanstóð einkum af vogunarsjóðum frá Bretlandi. Kjörin bötnuðu nokkuð frá upphaflegu viðmiði þegar útboðið hófst snemma á föstudagsmorgun en vaxtaálagið á útgáfuna er um hundrað punktum hærra borið saman við sambærileg evrubréf stóru íslensku viðskiptabankanna. Innherji 25.5.2025 13:17
Kvika að fara í fyrstu skuldabréfaútgáfuna í evrum upp á þrjátíu milljarða Kvika hefur fengið til liðs við sig nokkra erlenda fjárfestingabanka til að undirbúa fyrstu ótryggðu skuldabréfaútgáfu bankans í evrum, samtals að jafnvirði um þrjátíu milljarðar íslenskra króna, og byrjaði að eiga fundi með skuldabréfafjárfestum í morgun. Stjórnendur Kviku hafa áður sagt að bankinn gæti sparað sér talsverða fjármuni í bættum vaxtakjörum með slíkri skuldabréfaútgáfu ef markaðsaðstæður reynast réttar. Innherji 19.5.2025 13:38
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið fjórar innlendar fjármálastofnanir sem söluaðila vegna fyrirhugaðs útboðs á hlutum ríkisins í Íslandsbanka. Í síðustu viku greindi ráðuneytið frá ráðningu fjögurra erlendra söluaðila vegna útboðsins en nú bætast Arctica Finance, Arion banki, Kvika banki og Landsbankinn í hópinn. Viðskipti innlent 12.5.2025 13:23
Sérstakt áhyggjuefni „hversu veikburða“ íslenski hlutabréfamarkaðurinn er Með hliðsjón af þjóðhagslegu mikilvægi þess að vera með skilvirkan hlutabréfamarkaði þá er það „sérstakt áhyggjuefni“ hversu veikburða hann er hér á landi, að sögn stjórnanda hjá Kviku, en bankinn fór ekki varhluta af erfiðu árferði á mörkuðum á fyrsta fjórðungi með minni tekjum í markaðsviðskiptum og samdrætti í eignum í stýringu. Forstjóri Kviku, sem skilaði ágætis uppgjöri með arðsemi rétt undir markmiði sínu, viðurkennir að umbreyting Aur í þá átt að bjóða upp á víðtækari bankaþjónustu hafi gengið hægt en bankinn mun á „allra næstu vikum“ hefja innreið sína á húsnæðislánamarkað undir vörumerki Auðar. Innherji 8.5.2025 16:28
Erlend útlán bankanna mögulega „vanmetin“ skýring á styrkingu krónunnar Samtímis mikilli aukningu í útlánum bankanna til fyrirtækja í erlendri mynt á undanförnum mánuðum þá hafa þeir selt niður aðrar gjaldeyriseignir, að því er kemur fram í nýrri greiningu, sem kann að vera „vanmetin þáttur“ í gengisstyrkingu krónunnar frá því á haustmánuðum síðasta árs. Í síðustu viku hóf Seðlabankinn regluleg kaup sín á gjaldeyri, sem hafa það að markmiði að efla forðann, en eftir gengishækkun og fjarveru lífeyrissjóða á markaði eru flestir sérfræðingar sammála um að tímasetning bankans sé góð. Innherji 22.4.2025 16:37
Netöryggisfyrirtækið Keystrike klárar hlutafjáraukningu upp á 800 milljónir Netöryggisfyrirtækið Keystrike lauk á dögunum hlutafjáraukningu upp á samtals 800 milljónir króna og samanstendur fjárfestahópurinn, að stærstum hluta, af íslenskum einkafjárfestum en jafnframt Kviku banka. Frá stofnun Keystrike á árinu 2023 hafa fjárfestar núna lagt félaginu til alls um 1.400 milljónir króna í hlutafé. Innherji 19.4.2025 12:06
Sveinn snýr aftur til starfa hjá Arctica Finance sem greinandi Sveinn Þórarinsson, sem hefur verið sjóðstjóri hjá Kviku eignastýringu undanfarin ár, er að snúa aftur til Arctica Finance þar sem hann mun taka til starfa sem greinandi fyrir markaðsviðskipti verðbréfafyrirtækisins. Innherji 14.4.2025 12:01
Stoðir minnkuðu stöðu sína í Arion og Kviku fyrir meira en þrjá milljarða Stoðir, langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Arion og Kviku, minnkaði nokkuð eignarhlut sinn í bönkunum undir lok síðasta mánaðar þegar fjárfestingafélagið stóð að sölu á bréfum fyrir yfir þrjá milljarða að markaðsvirði. Félagið er eftir sem áður með rúmlega fimm prósenta eignarhlut í bönkunum, en salan átti sér stað skömmu áður en hlutabréfamarkaðir féllu verulega í verði samtímis því að Bandaríkjaforseti efndi til tollastríðs við flestar þjóðir heimsins. Innherji 11.4.2025 20:31
Narfi frá JBT Marel til Kviku Narfi Snorrason hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar Kviku banka. Viðskipti innlent 2.4.2025 10:09
„Hverjum manni augljóst“ að umgjörð bankakerfisins skaðar samkeppnishæfni Það ætti að vera „hverjum manni augljóst“ að umgjörðin um fjármálakerfið, sem felst í sértækum sköttum og gullhúðun regluverks, dregur úr samkeppnishæfni og eykur kostnað alls íslensks atvinnulífs, ekki aðeins fjármálageirans, að sögn stjórnarformanns Kviku sem hvetur stjórnvöld til að ráðast í úrbætur. Hann segir að með fjármununum sem fást við söluna TM, sem var samþykkt að greiða út að stórum hluta í arð til hluthafa á aðalfundi í gær, sé tekið mikilvægt skref til að ná meðal annars markmiðum um að aukar vaxtatekjur bankans. Innherji 27.3.2025 15:41
Tollastríð ætti að minnka efnahagsumsvif og styðja við vaxtalækkanir Fjárfestum er ekki stætt á öðru en að taka hótanir Donalds Trump um tolla á helstu viðskiptalönd Bandaríkjanna alvarlega, fremur en að telja að um sé að ræða samningatækni, og ljóst að verði af tollastríði mun það hafa „ótvíræð“ neikvæð áhrif á efnahagsumsvifin hér á landi, að mati aðalhagfræðings Kviku. Hann telur frekar líkur standa til þess að tollastríð eigi eftir að draga úr verðbólgu og ætti af þeim sökum að styðja við vaxtalækkunarferli Seðlabankans. Innherji 19.3.2025 06:02
Beint tap ríkisins af lægra virði banka vegna sértækra skatta yfir 60 milljarðar Samkeppnishæfni íslenska fjármálakerfisins er léleg, meðal annars út af miklum opinberum álögum, og bankaskattar valda því að virði eignarhluta ríkisins í bönkum er um 64 milljörðum lægra en ella til viðbótar við óbein áhrif í formi minni hagvaxtar og fjárfestingar, að sögn bankagreinanda. Hann telur að vaxtamunur banka sé „stórlega ofmetinn og rangtúlkaður“ í almennri umræðu og kemst að þeirri niðurstöðu að Arion sé talsvert undirverðlagður á markaði. Innherji 6.3.2025 05:02
Yfirmaður fyrirtækjaráðgjafar Kviku hættir störfum hjá bankanum Forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Kviku síðustu ár hefur látið af störfum en ráðgjöfin hjá bankanum er meðal annars innlendur umsjónaraðili í áformuðu útboði ríkisins á hlutum í Íslandsbanka síðar á árinu. Innherji 28.2.2025 18:22
Yfir 200 milljarða innlánahengja gæti leitað á eignamarkað með lægri vöxtum Frá því að raunstýrivextir urðu að nýju jákvæðir fyrir tveimur árum hafa innlán heimilanna aukist um 460 milljarða, mun meira en mætti vænta miðað við leitni vaxtar í hlutfalli við landsframleiðslu, og stóra spurningin er hvert „innlánahengjan“ leitar þegar vextir fara lækkandi, að sögn aðalhagfræðings Kviku. Hann telur sennilegt að áhrifin sjáist fyrst á eignamörkuðum með auknum hvata eignameiri fólks til að ráðstafa lausu fé í áhættusamari fjárfestingar en þegar fram í sækir gæti þessi mikli „umfram“ sparnaður takmarkað svigrúm Seðlabankans til lækkunar á raunvaxtaaðhaldinu. Innherji 26.2.2025 14:38
„Vekur athygli“ að Arion hafi ekki fært upp virði verðmætra þróunareigna Stærsti einkafjárfestirinn í Arion segir að væntingar sínar hafi staðið til þess að bankinn myndi endurmeta virði eignarhluta bankans í verðmætum þróunareignum, sem eru Blikastaðalandið og Arnarlandið, en „einhverra hluta vegna“ hafi stjórnendur ekki gert það þótt framgangur þeirra verkefna undanfarin misseri sé augljós. Þá segist forstjóri Stoða, sem situr í stjórn Bláa lónsins, að ef ytri þættir verði hagfelldir í rekstrarumhverfi ferðaþjónustufélagsins þá verði mögulega hægt að ráðast í skráningu í Kauphöllina á næsta ári. Innherji 18.2.2025 12:02
Séríslenskar kvaðir á bankakerfið eru komnar „út fyrir öll velsæmismörk“ Það „blasir við“ að þörf er á meiri hagræðingu á fjármálamarkaði enda eru séríslenskar kvaðir, sem kosta heimili og fyrirtæki árlega yfir fimmtíu milljarða, komnar „út fyrir öll velsæmismörk“ og skaða samkeppnisstöðu íslenskra banka gagnvart erlendum keppinautum, fullyrðir forstjóri Stoða, stærsti einkafjárfestirinn í Arion og Kviku. Hann brýnir jafnframt nýja ríkisstjórn til að setja sérstök lög um nokkur lykilverkefni í virkjunarframkvæmdum til að vinna hratt upp orkuskortinn eftir langvarandi framtaksleysi í þeim efnum, að öðrum kosti muni innistæðulítil kaupamáttaraukning síðustu ára að lokum leiðréttast með gengisfalli og aukinni verðbólgu. Innherji 17.2.2025 07:02
Greiði milljarða í arð í stað þess að lækka vexti til almennings Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforkólfur og formaður Starfsgreinasambandsins segir galið að horfa upp á arðgreiðslur íslensku bankanna sem séu af sömu stærðargráðu og kjarasamningar sem áttu að tryggja stöðugleika í íslensku samfélagi. Neytendur 16.2.2025 13:18
Bankastjórarnir fengu 260 milljónir króna Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka sem vill sameinast Íslandsbanka, fékk rúmlega 68 milljónir króna í laun á síðasta ári. Þá fékk hann sex milljónir til viðbótar vegna góðs árangurs. Það gerði hann að launahæsta íslenska bankastjóra síðasta árs þó ekki muni miklu á bankstjórum stóru bankanna. Viðskipti innlent 16.2.2025 13:04
Greiðslur til hluthafa Kviku munu nema um þrjátíu milljörðum eftir söluna á TM Góður gangur í rekstri TM á síðustu fjórðungum þýðir að endanlegt kaupverð Landsbankans á tryggingafélaginu verður að líkindum yfir 32 milljarðar og mun meðal annars skila sér í talsvert meiri útgreiðslum til hluthafa Kviku en áður var talið þegar viðskiptin klárast á næstu vikum. Uppgjör Kviku banka á fjórða ársfjórðungi, sem var að mestu í takt við væntingar, sýndi áframhaldandi bata á grunnrekstrinum en stjórnendur félagsins sjá tækifæri í að auka vaxtamuninn enn frekar með bættum vaxtakjörum í útgáfum á erlendum mörkuðum. Innherji 13.2.2025 14:42
Landsbankinn að styrkja eiginfjárstöðuna í aðdraganda kaupanna á TM Landsbankinn hefur fengið erlenda ráðgjafa til að undirbúa sölu á víkjandi skuldabréfi (AT1) að fjárhæð um 100 milljónir Bandaríkjadala, fyrsta slíka útgáfan af hálfu bankans, í því skyni að styrkja eiginfjárgrunninn í aðdraganda fyrirhugaðra kaupa á TM fyrir um 30 milljarða. Kaupin á tryggingafélaginu, sem eru enn í skoðun hjá Samkeppniseftirlitinu, munu án mótvægisaðgerða lækka eiginfjárhlutföll Landsbankans um 1,5 prósentur. Innherji 10.2.2025 12:21
Fátt nýtt í skilaboðum bankans og ekki ástæðu til að endurmeta vaxtahorfurnar Þrátt fyrir varfærinn tón í skilaboðum Seðlabankans þá hefur ekki orðið nein breyting á meginstefnu peningastefnunefndar um lækkun vaxta í takt við verðbólgu og verðbólguvæntingar, að sögn aðalhagfræðings Kviku, en miðað við þróttinn í hagkerfinu er samt ósennilegt að lokavextir lækkunarferlisins fari nálægt þeim gildum sem voru fyrir faraldur. Launakostnaður er að hækka talsvert umfram það sem samræmis verðstöðugleika og seðlabankastjóri segir að áhættan á vinnumarkaði, þar sem enn er ósamið við kennara, sé upp á við. Innherji 9.2.2025 12:40
Verðbólgumælingin var ekki „jafn uppörvandi“ og lækkunin gaf til kynna Ef ekki hefði komið til lækkunar húsnæðisliðarins og flugfargjalda umfram spár greinenda þá hefði mælda tólf mánaða verðbólgan hækkað í fimm prósent í janúar, að sögn aðalhagfræðings Kviku banka, sem óttast „vaxandi tregðu“ í þeirri verðbólgu sem eftir stendur. Þótt nýjasta verðbólgumælingin hafi ekki verið „jafn uppörvandi“ og hjöðnunin gaf til kynna þá ætti hún samt að „innsigla“ aðra fimmtíu punkta vaxtalækkun í næstu viku, meðal annars vegna þess að verðbólguvæntingar eru á hraðri niðurleið. Innherji 1.2.2025 12:04