Kjaraviðræður 2023-24
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 16 ›
Aðgerðapakki stjórnvalda: Fríar skólamáltíðir, sérstakur vaxtastuðningur og hærri barnabætur Húsaleigulögum verður breytt og skýrari rammi settur um ákvörðun og fyrirsjáanleika leigufjárhæðar. Þá verður sérstakur vaxtastuðningur kynntur heimilunum á þessu ári. Þetta er meðal þeirra aðgerða sem stjórnvöld leggja til í aðgerðapakka til að koma til móts við aðila vinnumarkaðarins í gerð kjarasamnings, sem undirritaður var síðdegis. Innlent 7.3.2024 18:24
Þetta eru lykilatriðin í nýjum kjarasamningi Nú klukkan fimm hefst undirskrift fulltrúa Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins á tímamótasamningi til fjögurra ára. Samningarnir eru merkilegir vegna hóflegra launahækkana og óvenju langs gildistíma sem er fjögur ár. Innlent 7.3.2024 17:00
Bein útsending: Skrifað undir fjögurra ára kjarasamning Stefnt er að undirritun kjarasamninga til fjögurra ára félaga í Starfsgreinasambandinu, Eflingar og Samiðnar - breiðfylkingar stéttarfélaga við Samtök atvinnulífsins klukkan 17 í dag. Samningarnir ná til tug þúsunda manna. Ríkisstjórnin kynnir aðkomu sína að samningnum á blaðamannafundi klukkan 18. Allt í beinn útsendingu á Vísi auk þess sem fylgst er með gangi mála í vaktinni. Innlent 7.3.2024 15:35
Sjálfstæðismenn vilja ekki frían hádegismat Borgarráð samþykkti í dag að taka þátt í yfirlýsingu ríkisins og sveitarfélaga við gerð kjarasamninga til fjögurra ára sem felur meðal annars í sér að halda aftur af hækkunum á gjaldskrám þjónustu sem snýr að barnafjölskyldum og tryggja að skólamáltíðir verði gjaldfrjálsar. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja gjaldfrjálsar skólamáltíðir ekki góða leið til að tryggja barnafjölskyldum kjarabætur. Innlent 7.3.2024 14:00
Sjómannafélagið stundi skemmdarstarfsemi Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir fyrirsvarsmenn Sjómannafélags Íslands ekki sýna neinn vilja til að semja um kaup og kjör fyrir hönd sinna félagsmanna. Samningar þeirra hafa verið lausir frá árinu 2019. Viðskipti innlent 7.3.2024 12:03
Einstakt tækifæri fyrir samfélagið og vonar að skrifað verði undir í dag Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bindur vonir við að sveitarfélögin komi í sameiningu að aðgerðapakka til að greiða fyrir undirritun kjarasamninga. Hún bindur vonir við að gengið verði frá síðustu lausu endum samninganna í dag. Innlent 7.3.2024 11:08
Sveitarfélögin ein komi í veg fyrir undirritun kjarasamninga í dag Vilhjálmur Birgisson formaður SGS segir undirritun kjarasamninga velta algjörlega á sveitarfélögunum. Allar deilur við Samtök atvinnulífsins hafi verið leystar en nú bíði stéttarfélögin eftir skýrum skilaboðum frá sveitarfélögunum. Innlent 7.3.2024 10:37
Lokasprettur kjaraviðræðna með forsætisráðherra Forystufólk breiðfylkingarinnar, Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar mæta til fundar við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í Stjórnarráðshúsinu klukkan 10 í morgun til að ræða stöðuna í kjaraviðræðum breiðfylkingarinnar við Samtök atvinnulífsins. Innlent 7.3.2024 09:53
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir Ég er sammála ályktun sveitarstjórnarráðs Framsóknar sem kemur inn á að sveitarfélög tryggi gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum eins og ríkisstjórnin hafi samþykkt, enda er það í anda Framsóknar að setja fjölskyldufólk í forgang. Skoðun 7.3.2024 07:31
Samningar breiðfylkingar nánast í höfn en verkfallsboðun hjá Icelandair Allt bendir til að skrifað verði undir nýja kjarasamninga breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins á morgun en vel hefur gengið í viðræðum þeirra í dag. Ef af verður mun ríkisstjórin einnig kynna aðgerðarpakka sinn í tengslum við samningana. Innlent 6.3.2024 17:28
Ekki hlustað á starfsmenn í mörg ár Formaður VR segir ekki boðlegt að slíta sundur dagvinnuvaktir starfsmanna félagsins hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Ekki hafi verið hlustað á kröfur um breytingar undanfarin ár og þess vegna hafi verið ákveðið að boða til verkfalls þessara starfsmanna hjá Icelandair. Innlent 6.3.2024 11:46
Verslunarmenn boða atkvæðagreiðslu um verkfall á Keflavíkurflugvelli Samninganefnd VR hefur ákveðið að boða til atkvæðagreiðslu um verkfall félagsmanna í farþega- og hleðsluþjónustu hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Með aðgerðunum á að þrýsta á breytingar á vaktafyrirkomulagi starfsfólksins á flugvellinum. Innlent 6.3.2024 10:05
Framsókn hvetur sveitarfélög til að styðja gjaldfrjálsar skólamáltíðir Sveitarstjórnarráð Framsóknarflokksins hvetur sveitarstjórnarfólk um land allt til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á vinnumarkaði, sem hafi það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum í landinu. Í ályktun ráðsins sem samþykkt var á fundi í gærkvöldi segir að lækkun vaxta auki kaupmátt allra heimila. Innlent 6.3.2024 08:11
Í karphúsi krónunnar Það blasir við að ríkið mun stíga inn í þann kjarasamning sem er að fæðast í karphúsinu. Væntanlega verða þetta ekki 25 milljarðar á ári í millifærslukerfin eins og verkalýðshreyfingin talaði fyrst um en bara helmingurinn af þeirri upphæð kallar á talsverðar ráðstafanir í ríkisfjármálunum. Skoðun 6.3.2024 08:00
Sveitarfélögin geta komið í veg fyrir undirritun kjarasamninga Kjarasamningar eru á lokametrunum og gætu jafnvel legið fyrir á morgun. Formaður Starfsgreinasambandsins segir hins vegar að ekki verði skrifað undir samninga nema sveitarfélögin gefi skýr svör varðandi framlag þeirra. Þau muni hagnast mikið á kjarasamningum. Innlent 5.3.2024 19:21
Fjórir af hverjum tíu eiga erfitt með að ná endum saman Fjórir af hverjum tíu á vinnumarkaði eiga erfitt með að ná endum saman og svipað hlutfall gæti ekki mætt óvæntum 80 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skuldar. Innlent 5.3.2024 13:00
Sveitarfélögin tali skýrt um gjaldskrárlækkanir og fríar skólamáltíðir Ekki verður skrifað undir nýja kjarasamninga nema sveitarfélögin leggi skýrt fram til hvaða aðgerða þau eru reiðubúin að grípa til að tryggja frið á vinnumarkaði næstu fjögur árin, að sögn formanns Starfsgreinasambandsins. Hann er hins vegar bjartsýnn á að leyst verði úr þeim ágreiningsefnum sem eftir eru í viðræðum við Samtök atvinnulífsins. Innlent 5.3.2024 11:45
Bein útsending: Niðurstöður könnunar um stöðu launafólks kynntar Varða – rannsóknarstofnun Vinnumarkaðarins mun kynna niðurstöður nýrrar spurningakönnunar um stöðu launafólks á Íslandi á fundi í Þjóðmenningarhúsinu sem hefst klukkan 12. Viðskipti innlent 5.3.2024 11:16
Ræða mögulegar verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Fulltrúar VR mættu til síns fundar með Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag. Þetta var fyrsti fundurinn frá því VR klauf sig frá breiðfylkingunni fyrir rúmri viku. Formaðurinn segir ýmis sérmál VR standa út af borðinu. Innlent 4.3.2024 20:38
Atkvæðagreiðsla hafin um verkfall ræstingarfólks Kjaraviðræður breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins eru að falla á tíma eftir að Efling hóf atkvæðagreiðslu um verkfall ræstingarfólks í dag. Helstu hindranir eru ósamkomulag um uppsagnavernd og óvissa um hvort sveitarfélögin sættist á gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Innlent 4.3.2024 19:21
Lokakröfur Eflingar: Uppsagnarvernd, trúnaðarmenn og orðalag um ræstingarfólk Formaður Eflingar segir einkum þrennt standa út af í samningsviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Náist sátt um þau atriði ætti að vera hægt að undirrita kjarasamninga á næstu einum til tveimur sólarhringum. Innlent 4.3.2024 13:34
Frír matur í skólum og lausn eftir fæðingarorlof til umræðu Leiðtogar breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins segja það ráðast af viðbrögðum sveitarfélaganna hvort hægt verði að skrifa undir nýja kjarasamninga á næstu tveimur sólarhringum. Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun Eflingar hefst að óbreyttu klukkan fjögur í dag. Innlent 4.3.2024 11:47
Hvernig keyra á fyrirtæki í þrot? Þær rekstraraðstæður sem þið keppist við að semja um á veitingamarkaði eru ekkert annað en ósjálfbærar fyrir fyrirtækin sem starfa á veitingamarkaði. Skoðun 4.3.2024 10:30
Segir undirskrift handan við hornið Formaður Starfsgreinasambandsins á von á því að skrifað verði undir kjarasamninga á næstu einum til tveimur sólarhringum. Viðsnúningur varð í viðræðum um helgina og nú er aðkoma sveitarfélaganna það eina sem stendur út af borðinu. Innlent 4.3.2024 09:01
Telja hóflegar launahækkanir ekki duga einar og sér Viðræðunefnd VR og Landssambands íslenskra verzlunarmanna (LÍV) hafa formlega óskað eftir að ríkissáttasemjari hlutist til um viðræður við Samtök atvinnulífsins. Nefndin telur að í viðræðunum dugi hóflegar launahækkanir ekki einar og sér. Innlent 1.3.2024 12:45
Ögurstund runnin upp og Vilhjálmur býr sig undir það versta Ögurstund er runnin upp í kjaraviðræðum Eflingar, Starfsgreinasambandsins og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins. Formaður SGS segist búa sig undir það versta en samninganefndir funda nú hjá ríkissáttasemjara í skugga verkfallsboðunar. Innlent 1.3.2024 11:35
Hvað tefur kjaraviðræðurnar? Nú hafa kjaraviðræður milli Samtaka atvinnulífsins og Breiðfylkingarinnar staðið yfir í nokkuð marga mánuði og virðist hvorki ganga né reka. Málið er mér skylt þar sem ég er félagi í VR og að auki í framboði til stjórnar VR og hef ákveðnar skoðanir á málinu sem mér finnst rétt að viðra. Skoðun 1.3.2024 08:31
„Þess fullviss að verkfallsboðunin verður samþykkt“ Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist vera fullviss um að félagsmenn muni samþykkja verkfallsboðun. Boðað hefur verið til atkvæðagreiðslu um verkföll starfsfólks sem starfa við ræstingu á mánudag. Fundað verður á eftir í Karphúsinu klukkan níu. Innlent 1.3.2024 08:28
Níu hundruð félagsmenn Eflingar gætu lagt niður störf í mars Líkur eru á að um níu hundruð félagsmenn Eflingar, sem starfa við ræstingar, fari í ótímabundið verkfall um miðjan mars ef fram heldur sem horfir. Formaður Eflingar segir verkfall ræstingafólks munu bíta fast á öllum sviðum samfélagsins. Innlent 29.2.2024 21:50
Kjósa einnig um verkfall hjá ræstingarfólki Ákveðið var á fundi samninganefndar Verkalýðsfélags Akraness í dag að halda atkvæðagreiðslu um hvort ræstingarfólk sem tilheyrir VLFA vilji í verkfall. Vilhjálmur Birgisson, formaður verkalýðsfélagsins, segir að verði verkfall samþykkt geti það líklega hafist 25. mars. Innlent 29.2.2024 19:10