Átök í Ísrael og Palestínu
34 35 36 37 38 39 40 41 … 41 ›
Segjast bæði geta útrýmt Hamas og frelsað gíslana Forsvarsmenn ísraelska hersins segja bæði hægt að útrýma Hamas-samtökunum og frelsa þá gísla sem vígamenn samtakanna halda á Gasaströndinni. Leiðtogar Hamas-samtakanna sögðu í gærkvöldi að samkomulag um frelsun gísla samtakanna hafi verið í sjónmáli. Yfirvöld í Ísrael hefðu tafið samkomulag. Erlent 29.10.2023 13:26
Gerðu árásir við stærsta sjúkrahús Gasa Ísraelar gerðu í morgun loftárásir nærri stærsta sjúkrahúsi Gasastrandarinnar, sem er fullt af sjúklingum og tugum þúsunda manna í leit að skjóli. Ísraelski herinn hefur sakað forsvarsmenn Hamas-samtakanna um að hreiðra um sig í göngum undir sjúkrahúsinu. Erlent 29.10.2023 08:53
Þegar fórnarlamb verður böðull Það er ófrávíkjanlegt lögmál í mannheimum, gott ef ekki í gervallri náttúrunni, að öll kúgun fæðir af sér mótspyrnu. Sagan sýnir það, reynslan sannar það. Á meðan mannskepnan er eins og hún er verður þetta viðloðandi stef í samskiptum manna og þjóða. Skoðun 29.10.2023 08:00
Píratar kalla eftir afstöðu Alþingis Þingmenn Pírata ætla sé að leggja fram tillögu á Alþingi um að utanríkisráðherra eigi að kalla eftir tafarlausu vopnahléi af mannúðarástæðum á Gasaströndinni. Samkvæmt tillögunni á ríkisstjórnin einnig að fordæma árásir Ísraelshers á óbreytta borgara og borgaralega innviði Palestínu. Innlent 29.10.2023 07:57
„Þref um texta og orðalag“ lítilvægt miðað aðstæður Formaður þingflokks VG furðar sig á því að fulltrúar Íslands í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hafi setið hjá í atkvæðagreiðslu um ályktun um vopnahlé á Gasa í gær. Innlent 28.10.2023 21:30
Hjásetan merki um fylgispekt við Bandaríkin Alþjóðastjórnmálafræðingur segir átökin í Ísrael og Palestínu teygja anga sína víða. Ljóst sé að ástandið hafi áhrif á alþjóðasamskipti fjölmargra ríkja. Hún telur hjásetu Íslendinga hjá Sameinuðu þjóðunum merki um fylgispekt við Bandaríkin. Innlent 28.10.2023 20:16
„Verkefni okkar er skýrt“ „Þetta er annar fasi stríðsins. Verkefni okkar er skýrt: að eyðileggja her Hamas og koma fórnarlömbum aftur heim. Ísraelar ætla að koma í veg fyrir þessa illsku, öllu mannkyninu til góða,“ sagði Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael á blaðamannafundi á sjötta tímanum í dag. Hann staðfestir að hermenn Ísraela séu komnir inn á Gasa. Erlent 28.10.2023 18:18
Skyndimótmæli í miðbænum Nokkur hundruð manns mættu á skyndimótmæli í miðbænum í dag. Félagið Ísland-Palestína boðaði í morgun til mótmælanna við utanríkisráðuneytið í dag, vegna þess að Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hlé á árásum Ísraela á Gasaströndinni. Innlent 28.10.2023 16:01
Líkir Mið-Austurlöndum við tifandi tímasprengju Abdel Fattah al-Sisi, forseti Egyptalands, líkti Mið-Austurlöndum í morgun við tifandi tímasprengju. Þá hvatti talsmaður Ísraelshers íbúa norðurhluta Gasastrandarinnar til að flýja til suðurs en Ísraelar hafa gert gífurlega umfangsmiklar árásir á svæði nótt og í dag. Erlent 28.10.2023 15:04
„Ótrúlega aumingjalegt“ Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um ályktun sem tekin var fyrir á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Utanríkisráðuneytið segir að ekki hafi náðst samstaða í þinginu um tillögu sem breytti orðalagi ályktunarinnar á þá leið að grimmdarverk Hamas-samtakanna yrðu fordæmd í leiðinni. Þingmaður Pírata segir afstöðu Íslands aumingjalega. Innlent 28.10.2023 12:41
Segja að Ísland hefði átt að samþykkja ályktun um vopnahlé Þingmenn Vinstri grænna telja að Ísland hefði átt að samþykkja ályktun Jórdana á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi. Ályktunin var um tafarlaust vopnahlé á Gasaströndinni en Ísland sat hjá. Innlent 28.10.2023 12:06
„Hvert dauðsfall meðal almennra borgara er einu dauðsfalli of mikið“ Utanríkisráðherra segir miður að ekki hafi náðst samstaða um að fordæma hryðjuverk á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Krafa Íslands um mannúðarhlé á Gasa sé skýr, þrátt fyrir að Ísland hafi setið hjá þegar atkvæði voru greidd um ályktun Jórdana um slíkt mannúðarhlé. Innlent 28.10.2023 10:14
Stöðugar árásir og óreiða á Gasaströndinni Ísraelar gerðu í gærkvöldi umfangsmestu loft- og stórskotaliðsárásir á Gasaströndina frá því stríðið milli þeirra og Hamas-samtakanna hófst. Samhliða því var rafmagn, net- og símasamband tekið af svæðinu og hermenn sendir inn. Erlent 28.10.2023 10:01
Ísland greiddi ekki atkvæði með tillögu um vopnahlé á Gasa Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu sem tekin var fyrir á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Noregur var eitt Norðurlanda sem greiddi atkvæði með tillögunni. Utanríkisráðuneytið segir að ekki hafi tekist að ná samstöðu um texta ályktunarinnar. Erlent 27.10.2023 22:03
Ráðherrar og herforingjar sagðir deila um innrás Ísraelski herinn er tilbúinn til innrásar á Gasaströndina en ráðamenn ríkisins og æðstu leiðtogar hersins eru ósammála um hvernig innrásin ætti að fara fram og jafnvel hvort eigi að gera hana yfir höfuð. Þá er sagt ríkja trúnaðarleysi milli ráðamanna og herforingja. Erlent 27.10.2023 15:03
Tóku á móti ráðherrum með palestínskum fánum Nokkur fjöldi fólks stendur vaktina fyrir utan Ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu þar sem ríkisstjórnin fundar. Fólkið heldur á palestínskum fánum og kveikt er á friðarkertum. Innlent 27.10.2023 10:35
Bandaríkjamenn gera árásir á skotmörk í Sýrlandi Bandaríski herinn gerði loftárásir á tvö skotmörk í Sýrlandi tengd Byltingarvarðsveit Íran (e. Revolutionary Guard Corps) nú í morgun. Reuters hefur eftir heimildarmanni að um hafi verið að ræða vopna- og skotfærageymslur. Erlent 27.10.2023 06:22
Segja þrjú þúsund börn látin Sendiherra Palestínu gagnvart Sameinuðu þjóðunum segir þrjú þúsund börn hafa dáið í loftárásum Ísraela á Gasaströndina. Riyad Mansour, segir að stöðva þurfi sprengjuregnið. Erlent 26.10.2023 15:27
Innrás yrði gífurlega erfið og framhaldið ekki síður Ísraelskir hermenn gerðu í morgun áhlaup inn á norðurhluta Gasasvæðisins og sögðu ráðamenn þar að um undirbúning fyrir mögulega innrás væri að ræða. Innrás á Gasaströndina myndi hafa miklar hörmungar í för með sér og myndi taka langan tíma. Erlent 26.10.2023 11:01
Hnitmiðuð aðgerð og undirbúningur fyrir næstu skref Ísraelsher virðist hafa farið inn á Gasa í nótt, meðal annars á skriðdrekum. Samkvæmt yfirlýsingu frá hernum var um að ræða hnitmiðaða árás á nokkur skotmörk og undirbúning fyrir „næsta stig“ aðgerða. Erlent 26.10.2023 07:11
Ísraelar samþykkja að bíða með innrás Yfirvöld í Ísrael eru sögð hafa samþykkt beiðni frá ráðamönnum Bandaríkjanna um að bíða með innrás á Gasaströndina. Þannig vilja Bandaríkjamenn fá tíma til að auka viðbúnað sinn og þá sérstaklega loftvarnir í Mið-Austurlöndum. Erlent 25.10.2023 17:05
Erdogan afboðar heimsókn til Ísrael og segir Hamas „frelsishreyfingu“ Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hefur afboðað fyrirhugaða heimsókn sína til Ísrael og kallað eftir tafarlausu vopnahléi milli Ísraelsmanna og Hamas. Erlent 25.10.2023 12:47
Hvað er svona hættulegt við það að segja vopnahlé? Það verður alltaf augljósara og augljósara að ríkisstjórn Íslands ætlar ekki að hvetja til vopnahlés. Í staðinn fær Ísrael fullan stuðning íslensku ríkisstjórnarinnar til að framkvæma þjóðernishreinsanir og þjóðarmorð á Gaza. Á meðan Ísrael fær sinn stuðning til að fremja þjóðarmorð þá hefur íslenska ríkisstjórnin ákveðið að strá salti í sárin með því einu að auka við fjárhagsaðstoð sína til Palestínu um 90 milljónir. Skoðun 25.10.2023 09:01
Ísraelsmenn kalla eftir afsögn Guterres í kjölfar ákalls um vopnahlé Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) segir aðgerðir sínar á Gasa verða lamaðar frá miðvikudagskvöldi vegna eldsneytisskorts. Erlent 25.10.2023 07:05
Bjóða öryggi fyrir upplýsingar um gísla Ísraelski herinn varpaði í dag blöðum úr lofti yfir Gasaströndinni. Á þeim eru íbúar beðnir um upplýsingar um gísla Hamas-samtakanna. Í skiptum fengi fólk öryggi og peninga. Erlent 24.10.2023 14:15
Blaðamönnum sýnd myndskeið af voðaverkum Hamas-liða Stjórnvöld í Ísrael buðu tugum erlendra blaðamanna á sérstaka kynningu í herstöð í Tel Aviv í gær þar sem sýnt var 45 mínútna langt safn myndskeiða frá deginum þegar Hamas-liðar réðust á almenna borgara í Ísrael. Erlent 24.10.2023 11:28
Fjögur hundruð árásir á sólarhring og meira en helmingur íbúa á vergangi Ísraelsher segist hafa gert 400 árásir á skotmörk á Gasa-ströndinni síðasta sólarhringinn en í gær voru árásirnar 320. Herinn fullyrðir að aðgerðirnar hafi beinst gegn starfstöðvum hryðjuverkamanna á svæðinu. Erlent 24.10.2023 07:20
Börn að bera hæstan kostnað af stríðinu Framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi segir börn bera hæstan kostnað vegna stríðsins fyrir botni Miðjarðarhafs. Hún segir andrúmsloftið í Miðausturlöndum einkennast af spennu og sorg Erlent 23.10.2023 21:30
Sprengjan sögð hafa „gufað upp“ Háttsettur meðlimur Hamas-samtakanna segir að sprengjan sem samtökin segja Ísraela hafa varpað á sjúkrahús á Gassaströndinni í síðustu viku, hafa gufað upp. Þess vegna hafi engin sprengjubrot fundist. Erlent 23.10.2023 15:43
Báðu Ísraela um að bíða með innrás Ráðamenn í Bandaríkjunum báðu Ísraela um að bíða með innrás á Gasaströndina. Það er svo meiri tími fáist til að frelsa gísla Hamas-samtakanna, koma birgðum til íbúa og finna leiðir til að draga úr mannfalli meðal óbreyttra borgara. Erlent 23.10.2023 10:30