Félagsmál
1 2 3 4 5 6 … 39 ›
Setið um fjölskyldur félagsráðgjafa og börn þeirra áreitt Dæmi eru um að börn félagsráðgjafa geti ekki gengið ein heim, verið ein heima og séu með svokallaðar krækjur á sínum síma sem sýni lögreglu að þegar þau hringi þurfi að bregðast strax við. Rúmur helmingur félagsráðgjafa greinir frá því í nýrri könnun að hafa verið beittir ofbeldi í starfi og um þriðjungur að þau óttist um fjölskyldur sínar og sérstaklega börn. Setið hafi verið um þau og þau áreitt. Innlent 20.2.2026 14:59
Bein útsending: Heimilisleysi á Íslandi Opinn fundur um heimilisleysi á Íslandi fer fram í húsakynnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar milli klukkan 9 og 10:40 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan. Innlent 19.2.2026 08:31
Algjör samstaða sé um að hækka bætur Forsætisráðherra vísar gagnrýni ASÍ og SA á bug um að óráðlegt sé að tengja launavísitölu við elli- og örorkubætur líkt og kemur fram í frumvarpi um breytingar á almannatryggingum. Um sé að ræða réttlætismál sem ríkisstjórnin sé einhuga um. Breytingin kunni að valda verðbólguþrýstingi ef hún leiði til hækkunar bóta. Það eigi líka við um aðrar launahækkanir. Innlent 13.2.2026 20:00
ASÍ og SA telja stjórnvöld á villigötum Binding bótagreiðslna við launavísitölu er óráðleg og ótímabær að mati Alþýðusambands Íslands. Samtök atvinnulífsins telja breytinguna geta leitt til þess að bætur hækki hraðar en laun. Gera má ráð fyrir verðbólguþrýstingi og milljarða útgjaldaaukningu samkvæmt greinargerð með frumvarpi um málið. Innlent 12.2.2026 20:00
Ríkisfjármálaleg tímasprengja, mistök eða tímabært réttlætismál? Varhugavert, ríkisfjármálaleg tímasprengja, möguleg hagstjórnarmistök í uppsiglingu og sjálfvirk útgjaldaaukning sem stuðlað getur að ósjálfbærni ríkissjóðs. Þessi orð hafa meðal annars verið notuð til að lýsa einu helsta þrætueplinu á Alþingi undanfarnar vikur. Hér er þó ekki verið að vísa í orð stjórnarandstöðunnar, heldur sérfræðinga, meðal annars úr röðum akademíunnar, Fjármálaráðs og fjármálaráðuneytisins. Innlent 12.2.2026 15:16
Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Fimmtán starfsmenn Félagsbústaða, rúmur helmingur þeirra sem störfuðu fyrir stofnunina, hafa hætt störfum á einu og hálfu ári. Formaður stéttarfélags þeirra lýsir alvarlegum áhyggjum af stöðu mannauðsmála hjá stofnuninni. Innlent 11.2.2026 06:47
„Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Maður sem grunaður er um stunguárás um helgina var nýbúinn að afplána dóm fyrir önnur ofbeldisverk og sætir ákæru fyrir fleiri. Formaður Afstöðu gagnrýnir að manninum hafi verið sleppt úr haldi án þess að honum væri veittur stuðningur. Innlent 9.2.2026 19:02
„Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, geldur varhug við frumvarpi félagsmálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu, sem nú er rætt í annarri umræðu á Alþingi. Hún telur að það muni leiða til sjálfvirkrar aukningar útgjalda ríkissjóðs og minni hvata til atvinnuþátttöku. „Ég hef mjög miklar áhyggjur af þessu frumvarpi og af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta,“ segir hún. Innlent 3.2.2026 17:36
Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Dagur kvenfélagskonunnar er haldinn hátíðlegur í dag 1. febrúar um allt land en tilgangur dagsins er meðal annars að vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna. Lífið 1.2.2026 13:04
„Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Nýr félags- og húsnæðismálaráðherra segist „einfaldlega ósammála“ gagnrýni fjármála- og efnahagsráðuneytisins á fyrirhugaða tengingu almannatryggingakerfisins við launavísitölu. Innlent 27.1.2026 15:04
Samráðsleysi um atvinnuleysistryggingar er feigðarflan Nýskipaður félagsmálaráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson, mun á morgun, þriðjudag, mæla fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar. Skoðun 26.1.2026 15:01
Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Óbirt skýrsla um fjárhagsstöðu Félagsbústaða lýsir veikri fjárhagsstöðu félagsins sem hafi verið rekið með ósjálfbærum hætti undanfarin ár. Sjóðstreymi hafi verið neikvætt, stjórnun þess verið línudans og aðferðum verið beitt sem hafi reynst rekstrinum þungar. Á hinn bóginn má lesa bjartsýni úr skýrslunni þar sem settar eru fram tillögur um hvernig megi snúa rekstri Félagsbústaða „frá vítahring til fjárhagslegrar sjálfbærni,“ líkt og það er orðað í skýrslunni. Meðal þess sem lagt er til er 1,5% raunhækkun leiguverðs hjá Félagsbústöðum. Innlent 22.1.2026 15:17
Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Meirihlutinn í borgarstjórn ákvað í gær að styrkja Félagsbústaði um 2,4 milljarða króna. Það er tvöfalt hærri upphæð en sú lágmarksupphæð sem starfshópur um fjárhagsstöðuna leggur til í nýrri skýrslu. Borgarfulltrúi og stjórnarmaður Félagsbústaða gagnrýnir að skýrslunni hafi verið haldið leyndri fyrir minnihlutanum. Málið lykti af prófkjörsbaráttu Samfylkingarinnar. Innlent 21.1.2026 18:51
Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Meirihlutinnn í borgarstjórn hefur ákveðið að veita um 2,4 milljörðum til Félagsbústaða á næstu fimm árum. Borgarstjóra er falið að hafa milligöngu um málið. Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins segir tillöguna hafa verið þvingaða fram. Ákveðið hafi verið að hunsa nýja skýrslu starfshóps í málinu. Innlent 21.1.2026 14:35
Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Öryrkjar eru að fá mun hærri laun frá Tryggingastofnun en eldri borgarar eða um 51 þúsund krónur meira á mánuði miðað við lágmarkslífeyri eldri borgara eins og staðan er í dag. Innlent 16.1.2026 22:00
Stórstjörnur í briddsheiminum á leið til landsins Bridds-spilarinn Zia Mahmood er meðal gesta á stærsta briddsmóti ársins í Hörpu í lok þessa mánaðar, Bridgehátíð eða Reykjavík Bridge Festival. Stjörnufans er á leið til landsins. Innlent 15.1.2026 11:47
Ásdís Halla og Erna Kristín skiptast á ráðuneytum Tveir ráðuneytisstjórar hafa verið færðir til á milli ráðuneyta í framhaldi af breytingum sem gerðar voru á ríkisstjórn um helgina. Breytingarnar hafa þegar tekið gildi. Innlent 12.1.2026 13:03
Húsnæðismálin „helsti drifkraftur verðbólgu síðasta áratuginn“ Nýr félags- og húsnæðismálaráðherra segist ætla að taka til hendinni í málaflokknum. Sveiflur á húsnæðismarkaði hafi verið einn helsti drifkraftur verðbólgu síðasta áratuginn. Innlent 11.1.2026 16:41
Skortur á húsnæði fyrsta verkefnið Ragnar Þór Ingólfsson mun taka við embætti félags- og húsnæðismálaráðherra í kjölfar afsagnar Guðmundar Inga Kristinssonar sem mennta- og barnamálaráðherra. Hann telur fyrri störf sín innan verkalýðshreyfingarinnar hafa veitt sér góða þekkingu á málefnum ráðuneytisins. Meðal fyrstu verkefna verður að taka á skorti á hagkvæmu húsnæði fyrir ungt fólk og tekjulága. Innlent 9.1.2026 12:12
Ragnar Þór verður ráðherra Inga Sæland formaður Flokks fólksins tekur við af Guðmundi Inga Kristinssyni sem mennta- og barnamálaráðherra eftir afsögn Guðmundar. Þá verður Ragnar Þór Ingólfsson þingflokksformaður Flokks fólksins félags- og húsnæðismálaráðherra. Innlent 8.1.2026 18:57
Svanhildur Sif heiðruð Svanhildur Sif Haraldsdóttir var í dag heiðruð fyrir óeigingjarnt og ómetanlegt framlag í þágu barna og fjölskyldna í Kópavogsbæ. Í tilkynningu frá bænum segir að Svanhildur hafi undanfarin 25 ár tileinkað líf sitt því að vera til staðar fyrir börn í vanda. Innlent 23.12.2025 15:15
Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Linda Dröfn Gunnardóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, segir mikilvægt að fólk hafi einhverjar aðrar leiðir en að hringja bara í 112 til að tilkynna grun um ofbeldi í nánum samböndum. Hún kallar eftir því að þróað verði áhættumat sem nýtist fólki í framlínu til að meta hvort að rjúfa eigi þagnarskyldu og bregðast við því þegar fagaðilar telja þá líf einstaklings í hættu vegna heimilisofbeldis. Innlent 23.12.2025 06:31
„Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, segir tilefni til að bætur úr almannatryggingakerfinu vegna ellilífeyris fari að heyra sögunni til. Ríkisstjórnin hefur boðað umtalsverða hækkun frítekjumarks vegna lífeyrisgreiðslna til eldri borgara úr almannatryggingakerfinu en Sigríður telur tímabært að hætt verði að líta á ellilífeyrisgreiðslur frá ríkinu sem sjálfsögð réttindi. Innlent 18.12.2025 09:31
Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn Minningarstundin Drengirnir okkar fór fram við Reykjavíkurtjörn í kvöld. Þar var kveikt á um 200 kertum til minningar um unga drengi sem hafa látist í baráttu við fíknisjúkdóm. Skipuleggjandi og aðstandandi drengs sem lést á árinu segir algjört úrræðaleysi í málaflokknum. Innlent 16.12.2025 23:00
Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð Úthlutun Matargjafa Akureyrar og nágrennis og NorðurHjálpar byrjar á morgun og stendur í viku. Sigrún Steinarsdóttir, framkvæmdastýra Matargjafar Akureyrar, segir fjölgun beiðna. Sorglegt sé að sjá fjölgun lífeyrisþega meðal þeirra sem þiggja aðstoð. Innlent 14.12.2025 21:31
Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Hjalti Vignisson, eigandi veitingastaðarins 2Guys við Hlemm, segist alltaf standa með þeirra ákvörðun starfsfólks síns að neita einstaklingi um þjónustu með hakakross á andlitinu. Innlent 13.12.2025 20:18
Nærri 400 leitarbeiðnir vegna 95 týndra barna á árinu Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður sem hefur sérhæft sig í að leita að börnum hefur á þessu ári fengið tæplega 400 leitarbeiðnir vegna 95 barna. Í fyrra voru þær 259 og 221 árið áður. Yngsta barnið er 14 ára og þau elstu að verða 18. Hann segir undantekningu að 11 ára börn neyti vímuefna, þau glími frekar við hegðunarvanda. Innlent 10.12.2025 09:02
Ríkisstjórnin svíkur öryrkja sem eru búsettir erlendis Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að svíkja öryrkja sem búa erlendis um eingreiðslu, sem þeir hafa þó fengið síðustu ár óháð búsetu sinni utan Íslands. Fólk býr erlendis af ýmsum ástæðum. Skoðun 8.12.2025 13:31
Tímamót og bylting í nýju Konukoti Mikil eftirvænting er meðal starfsfólks Rótarinnar og Reykjavíkurborgar eftir opnun nýs húsnæðis Konukots í desember. Starfsleyfið var formlega gefið út í síðustu viku og stendur til að flytja starfsemina í desember og opna samhliða því nýtt tímabundið húsnæðisúrræði fyrir konur sem hafa glímt við heimilisleysi Innlent 5.12.2025 09:31
„Það er kalt á toppnum“ – félagsleg einangrun og afreksíþróttafólk Félagsleg einangrun hefur undanfarin ár orðið vaxandi samfélagsvandi víða um heim. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur m.a. skilgreint hana sem lýðheilsuvá á pari við ofneyslu áfengis, tóbaksreykingar og aðrar stórar áskoranir í lýðheilsumálum. Þá sýna nýjustu rannsóknir að félagsleg einangrun vex hraðast og er mest áberandi hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Skoðun 5.12.2025 08:17