Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára Lovísa Arnardóttir skrifar 7. maí 2026 15:29 Huld Magnúsdóttir er forstjóri TR. Á árinu 2025 fengu 85.842 einstaklingar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins, TR. Einstaklingum sem þiggja slíkar greiðslur fjölgaði þannig um 2,5 prósent milli ára. Heildargreiðslur TR námu tæplega 250 milljörðum króna á árinu. Þetta kemur fram í ársskýrslu TR fyrir árið 2025.
Þar kemur fram að fjölgun endurspegli bæði lýðfræðilega þróun samfélagsins og aukna eftirspurn eftir stuðningi, sérstaklega vegna sjúkra- og endurhæfingargreiðslna. Fjallað var um þessa fjölgun á ársfundi TR í dag. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ávarpaði ársfundinn og ræddi meðal annars um það mikla álag sem innleiðing nýs kerfis væri fyrir starfsfólk TR og þakkaði hann starfsfólkinu sérstaklega fyrir að hafa sinnt öllum sínum verkefnum af ábyrgð og fagmennsku og sýnt af sér bæði seiglu og ríka þjónustulund. Fjölgað um 22 prósent á tíu árum Í tilkynningu segir að frá árinu 2015 hafi þeim sem fá greiðslur frá TR fjölgað um 22 prósent eða úr 70.128 í 85.842. Á þessum tíma hafi fjöldi karla með greiðslur frá TR aukist um 31 prósent og fjöldi kvenna um 17 prósent. Þrátt fyrir það eru konur enn mun fjölmennari hópur sem fær greiðslur en karlar. Almennt eru konur um 60 prósent þeirra sem fá greitt frá almannatryggingum. Í ársskýrslu er fjallað um helstu greiðsluflokka sem hlutfall af íbúum hér á landi síðustu tíu árin. Þar kemur til dæmis fram að hlutfall ellilífeyrisþega hefur hækkað úr 10,4 prósentum árið 2015 í 11,6 prósent árið 2025. Í skýrslunni kemur jafnframt fram að 45.547 einstaklingar fengu ellilífeyri frá TR í fyrra. Hlutfall þeirra sem fá örorkulífeyri hjá TR af landsmönnum búsettum á Íslandi hefur verið nokkuð stöðugt síðastliðin 10 ár eða rúmlega fimm prósent en hlutfallið fer þó lækkandi. Alls fengu 20.836 einstaklingar örorkulífeyri frá TR í fyrra. Sjúkra – og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára Einstaklingum sem fá sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hjá TR fjölgar sem hlutfall af landsmönnum úr 0,9 prósentum árið 2015 í 2,2 prósent árið 2025. Alls fengu 8.629 einstaklingar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur árið 2025. Greiðslur vegna ellilífeyris námu 122,6 milljörðum króna og hækkuðu um 10 prósent milli ára. Greiðslur vegna örorkulífeyris námu 85,3 milljörðum króna og hækkuðu um 9 prósent milli ára. Sjúkra – og endurhæfingargreiðslur námu 28,4 milljörðum króna og hækkuðu um 37 prósent milli ára. Greiðslur úr flokki annað sem eru meðal annars ýmsar greiðslur tengdar fjölskyldumálum og bifreiðamálum námu 13,2 milljörðum króna og höfðu ekki hækkað milli ára. Í ársskýrslu er einnig fjallað um breytingar á almannatryggingum sem tóku gildi í september í fyrra. Þar segir að verkefnið hafi verið eitt stærsta umbótaverkefni í almannatryggingum í áratugi. TR bara ábyrgð á innleiðingu kerfisins og var stuttur tími til undirbúnings sem fól í sér víðtækar breytingar á lögum, regluverki, verklagi, þjónustu og tæknilegum innviðum. „Undirbúningur þessa verkefnis fór fram á stuttum tíma og fól í sér víðtækar breytingar á lögum, regluverki, verklagi, þjónustu og tæknilegum innviðum. Markmið breytinganna eru skýr: að bæta afkomu þeirra sem fá greiðslur, draga úr tekjutengingum, auka hvata til atvinnuþátttöku og styrkja stuðning við fólk í endurhæfingu. Nýtt kerfi byggir á breyttri hugmyndafræði þar sem færni og þátttaka einstaklinga er metin í heildrænu samhengi. Innleiðing samþætts sérfræðimats, byggðs á ICF-kerfi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, markar grundvallarbreytingu frá fyrra matskerfi. Jafnframt urðu til nýir greiðsluflokkar og samstarf milli þjónustuaðila innan velferðar- og heilbrigðiskerfisins var aukið, meðal annars með stofnun svæðisbundinna samhæfingarteyma um allt land,“ segir Huld Magnúsdóttir forstjóri TR í ávarpi sínu í ársskýrslu. Þar kemur einnig fram að við árslok 2025 störfuðu 111 starfsmenn hjá stofnuninni í 102,4 stöðugildum. Á sama tíma og viðskiptavinum hafi fjölgað um rúm 22 prósent á síðustu tíu árum hafi fjöldi stöðugilda staðið nær óbreyttur. Starfsmenn afgreiddu á síðasta ári tæplega 33 þúsund erindi, tóku á móti rúmlega 78 þúsund símtölum og tóku yfir 22 þúsund viðtöl í þjónustumiðstöð.
Heilbrigðismál Tryggingar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vinnumarkaður Félagsmál Eldri borgarar Málefni fatlaðs fólks Tengdar fréttir Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Konur sem eru einhleypar, hafa verið í krefjandi vinnu, þolendur ofbeldis og í erfiðri fjárhagsaðstæðum eru líklegri til að vera með örorkulífeyri samkvæmt nýrri skýrslu. Sextíu prósent kvenna með örorkulífeyri eru yfir fimmtíu ára gamlar. 20. ágúst 2025 15:44 Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Sjá meira
Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Konur sem eru einhleypar, hafa verið í krefjandi vinnu, þolendur ofbeldis og í erfiðri fjárhagsaðstæðum eru líklegri til að vera með örorkulífeyri samkvæmt nýrri skýrslu. Sextíu prósent kvenna með örorkulífeyri eru yfir fimmtíu ára gamlar. 20. ágúst 2025 15:44