
Félagsmál

Deila kostnaði vegna dagdvalar fyrir heimilislausa
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ætla að taka þátt í rekstri dagdvalar fyrir heimilislausa yfir köldustu vetrarmánuðina. Dagdvölin verður rekin í húsnæði Samhjálpar og hefur velferðarráð Reykjavíkurborgar þegar samþykkt að koma rekstrinum.

Gerðist glæpamaður til að bjarga lífi sonar síns
Dagbjört Ósk Steindórsdóttir byrjar hvern einasta dag á því að kíkja á símann til að athuga hvort lögreglan eða spítalinn hafi hringt í hana. Sonur hennar hefur verið í mikilli neyslu síðustu sextán árin. Hún segist óttast framhaldið og vilja sjá betri úrræði fyrir fólk í hans stöðu.

Þótt þú sért ekki að vinna getur þú samt átt gott líf
Vinna er stór hluti af lífi flestra og þar með óneitanlega partur af sjálfsmynd margra. Það að geta ekki tekið þátt í samfélaginu með vinnuframlagi getur því vakið upp margar tilfinningar.

Stuðningur vegna launa fólks sem starfar í Grindavík
Grindvíkingar takast nú á við nýjan veruleika fjarri heimilum sínum. Verkefnin fram undan eru mörg og snúa meðal annars að húsnæðismálum, skólagöngu barna, afkomu fólks og sálrænum stuðningi. Sveitarstjórn Grindavíkur er leiðandi í að halda utan um málefni íbúa sinna og nýtur stuðnings og aðstoðar annarra sveitarfélaga, ríkisins og ríkisstjórnarinnar.

ÖBÍ stóð fyrir gjörningi með „blankaráni“
Öryrkjabandalag Íslands stóð í gær fyrir gjörningi fyrir utan höfuðstöðvar viðskiptabankanna þriggja. Bandalagið hefur undanfarið staðið fyrir gjörningnum undir nafninu Blanka.

Opna dagdvöl fyrir heimilislausa yfir köldustu vetrarmánuðina
Velferðarráð Reykjavíkur samþykkti í gær að ganga til samstarfs við Samhjálp um rekstur dagdvalar fyrir heimilislausa yfir köldustu vetrarmánuðina. Öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið boðið að vera með gegn hlutdeild í kostnaði.

Bætum stöðu fatlaðs fólk
Staða fatlaðs fólks í samfélaginu hefur sem betur fer breyst til hins betra undanfarin ár og áratugi. Samt sem áður stendur fatlað fólk enn ekki á jafnfætis ófötluðum á mörgum sviðum. Er þar nóg að nefna aðgengi að samfélaginu, þ.m.t. að námi og atvinnu.

Hvenær eiga stjórnvöld að vera afskiptalítil og hvenær ekki?
Afi minn og amma voru af þeirri kynslóð sem tók öllu af æðruleysi – jafnvel alvarlegum veikindum og örkumlun. Velferðarkerfið var ekki til í þeirri mynd sem við þekkjum það í dag og lífsbaráttan var hörð, eins og hún er enn fyrir marga þjóðfélagshópa.

Bætur afturvirkar og óþarfi að sækja um strax
Í ljósi aðstæðna munu umsóknir um atvinnuleysisbætur gilda frá því að almannavarnir ákváðu að rýma Grindavík. Það er því ekki nauðsynlegt að sækja strax um atvinnuleysisbætur meðan óvissa er til staðar.

Öryrkjar megi eiga von á desemberuppbót
Gert verður ráð fyrir desemberuppbót til handa örorku-og endurhæfingarlífeyrisþegum auk eillilífeyrisþega í nýju fjáraukafrumvarpi. Forsætisráðherra á von á því að frumvarpið verði kynnt á næstu tveimur vikum.

Bein útsending: Tjaldað til einnar nætur? – opið málþing Velferðarvaktar
Velferðarvaktin stendur fyrir opnu málþingi um stöðu tekjuminni hópa á húsnæðismarkaði milli klukkan 13 og 16 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í streymi í spilaranum að neðan.

Kennarar byrjaðir að æfa sig í að nota hán og spyrja hvað kvár sé
Í dag er árlegur Dagur gegn einelti. Kennari sem fær hvatningarverðlaun fyrir störf sín í þágu hinsegin ungmenna segist vera ánægð með verðlaunin og að hún sé hvergi nærri hætt.

Ætla ekki að fagna of snemma í þetta skiptið
„Ég á frábæra foreldra. Þau hafa staðið sig eins og algjörar hetjur í þessum kringumstæðum og í umönnun hennar. En að annast fullorðinn einstakling með fjölþætt vandamál í langan tíma tekur sinn toll af öllum. Með hverju árinu verður þetta verkefni þyngra og flóknara,“ segir Sara Bryndís Emilsdóttir.

Almenningur þurfi að vera meðvitaður um að mansal sé til á Íslandi
Yfirlögfræðingur hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir mikilvægt að stjórnvöld efni til átaks til að bregðast við lélegum árangri í baráttunni gegn mansali. Almenningur þurfi að vera meðvitaður um að mansal líðist á Íslandi.

Þolendum mansals fjölgar stöðugt og þörf á vitundarvakningu
Íslensk stjórnvöld eru gagnrýnd fyrir lélegan árangur í mansalsmálum í nýrri úttekt. Á sama tíma eru tilkynningar um mansal orðnar þriðjungi fleiri á þessu ári en samanlagt síðustu tvö ár. Teymisstjóri fyrir þolendur ofbeldis grunar að málin séu miklu fleiri.

Ekki dómstóla að skera úr um krónu á móti krónu skerðingu
Hæstiréttur vísaði í gær frá aðalkröfum öryrkja og Öryrkjabandalags Íslands um greiðslu vangreiddra bóta og viðurkenningu á greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins vegna meintrar mismununar gagnvart örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum.

Fæðingarorlof í anda jafnaðarmennsku
Hvernig sköpum við réttlátara og sterkara fæðingarorlofskerfi á Íslandi?

Enn og aftur ræðum við fátækt
Í dag 17. október er alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt. Það hefur gengið illa að uppræta fátækt á Íslandi þó fátækt sé alvarlegt samfélagslegt mein sem bitnar því miður hvað mest á börnum. Árið 2021 (Hagstofan) átti rúmlega 51% einstæðra foreldra erfitt með að láta enda ná saman og víst er að staðan er mun verri núna og versnar hratt í því umhverfi sem vaxtahækkanir valda, minnkandi kaupmáttur, hækkun útgjalda og húsnæðiskostnaðar svo dæmi séu nefnd.

Ekkert samtal fyrr en fólkið var komið á götuna
Rauði krossinn gagnrýndi framkvæmd stjórnvalda á þjónustusviptingu flóttafólks á opnum fundi í velferðarnefnd Alþingis í morgun. Framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga sagði að ekkert samráð hefði verið haft við sveitarfélögin þegar félagsmálaráðherra fullyrti að þau myndu bera ábyrgð á þjónustunni

Einu atkvæði munaði þegar Alma var kjörin formaður ÖBÍ
Alma Ýr Ingólfsdóttir lögfræðingur er nýkjörin formaður Öryrkjabandalags Íslands.

„Geta notað gryfjuna við Árbæjarkirkju, hent okkur ofan í og mokað yfir“
Eldri borgarar í Árbænum eru uggandi yfir orðrómi um hugsanlega lokun félagsmiðstöðvar þeirra. Borgarfulltrúi minnihlutans segir fráleitt eigi þetta við rök að styðjast og kallar eftir betri upplýsingagjöf frá velferðarsviði.

Velferð við upphaf þingvetrar
Nýr þingvetur er hafinn og fjölbreytt verkefni blasa við. Frá kosningum 2021 hef ég verið formaður fjárlaganefndar og nú verður sú breyting á að ég tek við formennsku í velferðarnefnd.

Lægstu barnabætur aldarinnar?
Í Sprengisandi á sunnudaginn tókust á formenn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar um fjárlagafrumvarpið. Nokkrum mínútum vörðu formennirnir í að ræða velferðarkerfið og lét Kristrún Frostadóttir eftirfarandi orð m.a. falla.

Félagsleg samskipti eru forsenda góðrar heilsu
Félagsleg einangrun spyr ekki um aldur, kyn né þjóðerni og það eitt að tilheyra hóp er ein af grunnþörfum manneskjunnar. Félagsleg þátttaka er ekki bara skemmtileg viðbót við líf okkar, heldur hreint út sagt nauðsynleg fyrir almenna vellíðan og góða heilsu.

Ótækt að börn bíði í tvö ár eftir nauðsynlegri þjónustu
Umboðsmaður barna segir of mörg börn á bið eftir nauðsynlegri þjónustu, og það of lengi. Áætlanir stjórnvalda um snemmtæka íhlutun geti ekki staðist ef ekki er úr bætt.

Ísland eftir 100 ár
Fyrir tíu þúsund árum, voru þúsundir samfélaga á jörðinni. Í dag eru hundrað níutíu og fimm þjóðir. Línuritið er skýrt. Samkvæmt þessari þróun verður mannkynið eftir rúm tvö hundruð ár aðeins ein þjóð. Það hljómar einkennilega og einnig sem langur tími en barn sem fæðist í dag getur átt barnabarn sem mun lifa áramótin 2250.

„Ég væri dauð ef ég væri ekki jákvæð“
Hópur fólks hefst nú við í hjólhýsum í niðurníddu iðnaðarhverfi á Sævarhöfða eftir að þeim var gert að yfirgefa tjaldsvæðið í Laugardal í sumar. Þau gagnrýna skort á svörum frá borginni harðlega og kalla enn og aftur eftir varanlegri staðsetningu.

Íslensk fátækt - Örlög eða áskapað víti?
Að vera eða vera ekki er spurning sem margir hafa velt og velta fyrir sér. Þannig eru sumir fátækari en aðrir, líka á Íslandi. En er íslensk fátækt eitthvað öðruvísi en annars staðar, t.d. í Afríku? Já, í þeim heimshluta eru hluti íbúa skilgreindur sem sárafátækur.

Umsækjendum um vernd ekið fyrir 225 milljónir á ári
Aksturskostnaður Vinnumálastofnunar vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd nam rúmum 225 milljónum króna á tímabilinu júlí árið 2022 til júní árið 2023.

Áttaði sig á því að börnin höfðu ekki fengið sömu upplifanir
Haraldur Þorleifsson, athafnamaður og forsprakki verkefnisins Römpum upp Ísland, vígði ramp númer átta hundruð á Egilsstöðum í dag. Hann segist hlakka til að geta sýnt börnunum sínum Ísland, það hafi ekki verið auðvelt áður en verkefnið hófst.