Samgöngur

Fréttamynd

„Mjög vont veður sem mun ef­laust skapa vanda­mál“

Gular viðvaranir verða í gildi á öllu sunnan- og vestanverðu landinu á morgun og búast má við truflunum á samgöngum. Öllu innanlandsflugi Icelandair hefur verið aflýst í dag og farþegum sem eiga flug eiga til og frá Evrópu í fyrramálið verið boðið að færa sig í önnur flug.

Innlent
Fréttamynd

Mikil­vægast með jarð­göngum að losna við hættu­legustu vegi

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla.

Innlent
Fréttamynd

Segir meinta vegtolla ekki á dag­skrá

Fjármálaráðherra segir að ekki standi til að innheimta veggjöld á helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðiinu með frumvarpi um nýtt innviðafélag þrátt fyrir að fram komi að það hafi verið til skoðunar í greinargerð með frumvarpinu. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafi sjálfur stutt vegtolla á sínum tíma.

Innlent
Fréttamynd

Ein­stefna komumegin við Kefla­víkur­flug­völl

Hluti af vegi sem liggur á milli flugstöðvarbyggingar Keflavíkurflugvallar og langtímabílastæða norðan við hana verður einstefna með framkvæmdum sem hófust í dag. Breytingarnar eru sagðar eiga að auka öryggi vegfarenda og bæta umferðarflæði.

Innlent
Fréttamynd

Gagnheiðargöng verði sátta­leið Aust­firðinga

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum.

Innlent
Fréttamynd

Um 44 prósent hlynnt for­gangs­röðun í samgönguáætlun

Um 44 prósent eru hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun og 31,6 prósent eru andvíg. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu en töluvert hefur verið rætt um forgangsröðun í samgönguáætlun og þá sérstaklega í tengslum við jarðgangagerð.

Innlent
Fréttamynd

Sam­tal hafið um Ísafjarðarflug

Viðræður eru hafnar milli Icelandair og Vegagerðarinnar um framhald áætlunarflugs til Ísafjarðar. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir of snemmt að segja til um hvernig þeim vindur fram.

Innlent
Fréttamynd

Innviðaskuldin – á al­menningur að borga hana tvisvar?

Í áratugi hafa bíleigendur á Íslandi greitt gríðarlegar fjárhæðir í eldsneytisgjöld, bifreiðagjöld og aðra skatta sem tengjast samgöngum. Þessar tekjur hafa runnið ár eftir ár í ríkissjóð. Samt er nú sagt að samgöngukerfið sé orðið svo vanfjármagnað að leggja þurfi ný gjöld á almenning til að byggja það upp. Þetta vekur eðlilega spurningu: á almenningur að borga tvisvar fyrir samgönguinnviðina?

Skoðun
Fréttamynd

Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði

Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur, á ekki von á því að breyting innviðaráðherra á stöðvarskyldu leigubílstjóra verði til þess að bílstjórar og farþegar upplifi meira öryggi. Akstur með mæli skapi mikið óöryggi meðal beggja og lagabreyting um stöðvarskyldu breyti því ekki.

Neytendur
Fréttamynd

„Erum við ekki að fara að­eins fram úr okkur“

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu.

Innlent
Fréttamynd

Hrun­varnir við Holtsnúp verði til­búnar í ágúst

Vegagerðin hefur boðið út hrunvarnir meðfram þjóðvegi 1 við Holtsnúp við Steinafjall undir Eyjafjöllum. Staðurinn hefur verið til skoðunar um nokkurt skeið og lét Vegagerðin hanna fyrirhugað mannvirki í kjölfar banaslyss sem þar varð í mars 2025.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“

Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir stöðuna varðandi dýpkun Landeyjahafnar líta betur út í dag en í gær þegar Vegagerðin tilkynnti um bilun í dýpkunarskipi. Eyjamenn biðji ekki um meira en aðrir og óboðlegt sé að viðbragð sé ekkert þegar staða sem þessi kemur upp.

Innlent
Fréttamynd

Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Al­ger­lega ó­á­sættan­legt“

Bilun kom upp í vél fyrir bógskrúfu á dýpkunarskipinu Álfsnesinu í nótt, þar sem unnið var að dýpkun Landeyjahafnar. Af þeim sökum er ekki unnt að halda dýpkunarframkvæmdum áfram fyrr en búið er að gera við bilunina og skipta um viðkomandi búnað. Unnið er að því að fá varahluti erlendis frá. „Það er algerlega óásættanlegt að ekki verið til taks skip til að dýpka næstu daga og vikur, við því þarf Vegagerðin að bregðast,“ segir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar.

Innlent
Fréttamynd

„Ég er ekki að úti­loka neitt, það er allt uppi á borðinu“

Innviðaráðherra útilokar ekki að tilboð Icelandair í áætlunarflug milli Ísafjarðar og Reykjavíkur verði samþykkt þrátt fyrir að vera langt yfir áætlun. Tilboðið er það eina sem barst og hljóðar upp á þrjá og hálfan milljarð króna, það er ríflega tveimur milljörðum yfir áætlun Vegagerðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Lest í stað Borgarlínu?

Umræða um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu hefur á undanförnum árum snúist að verulegu leyti um Borgarlínu. Það er skiljanlegt.

Skoðun
Fréttamynd

Vilja borgarlest í stað borgarlínu

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar og oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði vilja skoða að tengja frekar miðborg Reykjavíkur við Hafnarfjörð með lest en fyrirhugaðri borgarlínu. Slík borgarlest yrði mikilvægasta samgöngubót í sögu þjóðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vit­laust festir

Samgöngustofa minnir á mikilvægi þess að huga vel að börnum í bíl og að þau séu í stól við hæfi miðað við aldur. Ökumenn geta fengið allt að 30 þúsund króna sekt fyrir að nota ekki réttan öryggisbúnað fyrir barn í bíl. 

Neytendur
Fréttamynd

Sam­þykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs

Lögþing Færeyja samþykkti í kvöld frumvarp landstjórnarinnar um 24 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar með 23 atkvæðum gegn 7 eftir aðra umræðu. Einn sat hjá. Þar með þykir ljóst að þessi langlengstu jarðgöng í sögu Færeyja verða boðin út en þriðja og síðasta umræða er sögð formsatriði. Undirskrift verksamnings er þó háð samþykki þingsins.

Erlent