
Samgöngur

Fengu loksins vistir í fyrsta sinn síðan 15. desember: „Forréttindi að fá að búa á svona stað“
Mæðgur sem búa á austasta býli landsins fengu loksins sendar til sín vistir á mánudag. Þær höfðu ekki fengið sendingu til sín síðan 15. desember síðastliðinn.

Borgin boðar breytingar í Skeifunni: „Auðvitað þarf að laga þetta“
Reykjavíkurborg ætlar að ráðast í breytingar á samgönguleiðum í Skeifunni þar sem allir þvælast fyrir öllum og gangandi vegfarendur eiga erfitt með að komast leiðar sinnar. Varaborgarfulltrúi Viðreisnar segir svæðið eftir að breytast mikið á næstu árum. Vegfarendur eru ekki par sáttir með stöðuna í dag og einn segist beinlínis hata Skeifuna.

Gul viðvörun vegna storms
Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms taka gildi á morgun allt frá Vestfjörðum til Norðurlands eystra.

Hálkuvarnirnar fuku af í óveðrinu, landgangur mögulega ónýtur
Mikið tjón varð þegar flugvél Icelandair rakst á landgang á Keflavíkurflugvelli í gær, landgangurinn er mögulega ónýtur og vængur vélarinnar skemmdur. Upplýsingafulltrúi Isavia segir að atvikið verði rannsakað. Veðurofsinn hafi verið slíkur að hálkuvarnir hafi fokið af vellinum í gær.

Skoða að selja flugstöðina á Þingeyri
Isavia skoðar nú að selja flugstöðina á Þingeyri. Flugvöllurinn þar er notaður sem varaflugvöllur fyrir Ísafjarðarflugvöll en Ísafjarðarbæ hefur verið boðið að kaupa stöðina. Sveitarfélagið lýsir yfir áhyggjum sínum af flugsamgöngum til svæðisins.

Hefðu ekki getað komið í veg fyrir lokun Reykjanesbrautar
Starfshópur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið hægt að koma í veg fyrir að loka varð Reykjanesbraut vegna veðurs í desember. Fleiri tiltækar vinnuvélar hefðu þó getað stytt tímann sem var lokað og betur hefði mátt standa að snjómokstri. Innviðaráðherra mun veita Vegagerðinni heimild til að færa ökutæki við snjómokstur.

Fötluð kona föst í flugvél með stífluðu klósetti
Fötluð kona hefur setið föst í vél Icelandair í rúmlega tíu klukkutíma. Vinir hennar sem komust úr vélinni segja klósettin í vélinni vera stífluð og að enginn matur sé þar. Það virðist sem fáir á flugvellinum nái einhverju sambandi við Icelandair til að nálgast upplýsingar um stöðu mála.

Björgvin ráðinn verkefnastjóri Sundabrautar
Björgvin Þorsteinsson hefur verið ráðinn verkefnisstjóri Sundabrautar. Hann mun vinna fyrir verkefnisstjórn um undirbúning Sundabrautar sem skipuð var á síðasta ári. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

NASA og Boeing þróa mun sparneytnari farþegaþotu
Bandaríska geimferðastofnunin NASA og Boeing-flugvélaframleiðandinn hafa tekið höndum saman um að þróa nýja tegund farþegaþotu sem á að vera þrjátíu prósent sparneytnari en þær hagkvæmustu sem finnast í dag.

Kviknaði í strætó á leið í Mjódd
Um klukkan 16:30 kviknaði í strætó númer þrjú á Miklubraut á leið í Mjóddina í Reykjavík.

Bein útsending: Hvernig þjónum við vegfarendum á veturna?
Fyrirkomulag vetrarþjónustu og starfsemi vaktstöðvar Vegagerðarinnar verða til umfjöllunar á morgunfundi Vegagerðarinnar sem fram fer milli klukkan 9 og 10:15.

Flugstjórinn í rétti í máli Margrétar
Icelandair var heimilt að neita Margréti Friðriksdóttur um greiðslu staðlaðra skaðabóta eftir að henni var vísað úr flugvél félagsins í september á síðasta ári. Þetta er niðurstaða Samgöngustofu sem telur að ekki sé tilefni til að draga í efa ákvörðun flugstjórans um að neita Margréti um far í því skyni að tryggja öryggi flugvélarinnar.

Halda sínu striki þrátt fyrir bilun í Bandaríkjunum
Bilun í NOTAM-flugumferðarkerfinu í Bandaríkjunum hefur ekki áhrif á ferðir Icelandair og Play að svo stöddu. Bandaríkjaflug flugfélaganna tveggja eru á áætlun að svo stöddu.

Óþolandi ástand vegna loftmengunar
Stjórn Landverndar telur að íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafi ítrekað upplifað óþolandi ástand vegna loftmengunar. Mengunin sé algjörlega óviðunandi og kallað er eftir aðgerðum.

Fluglest óraunhæfur valkostur
Merkilegt að nokkrir óveðursdagar á suðvesturhorni landsins skuli hafa vakið upp umræðu um hraðlest milli Reykjanesbæjar og Reykjavíkur. Þessi svokallaða fluglest var mest í umræðunni árið 2014 í kjölfar skýrslu áhugahóps um málið.

Sérfræðingur í lestarmálum segir aðstæður hér á landi sérlega góðar fyrir lest
Franskur byggingarverkfræðingur sem hefur sérhæft sig í lestarsamgöngum segir aðstæður hér á landi sérlega góðar fyrir lestarkerfi. Framkvæmdin sé vissulega dýr en samgöngur eigi ekki endilega að vera fjárhagslega arðbærar.

Óvissustig á Hellisheiði og í Þrengslum
Gul viðvörun Veðurstofunnar er í gildi fram á hádegi í dag á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra.

Flugbransinn: „Þú verður háður þessum bransa má segja frá degi eitt“
„Flugbransinn er gífurlega hraður og er enginn dagur eins. Þú verður háður þessum bransa má segja frá degi eitt,“ segir Sonja Arnórsdóttir framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Play.

Varðskipið Þór viðbragðsaðilum til halds og trausts vegna veðurs
Lögreglan á Vestfjörðum hefur ákveðið að loka veginum sem liggur um Súðavíkur- og Kirkjubólshlíð klukkan 20:00 í kvöld vegna veðurs. Þá er varðskipið Þór komið vestur og verður viðbragðsaðilum til halds og trausts.

Bylting fyrir blinda strætónotendur hér á landi
Svokölluðum NaviLens kóðum verður komið fyrir á öllum biðstöðvum og vögnum Strætó á landinu. Um er að ræða byltingu á aðgengi fyrir blinda og sjónskerta.

Kröftunum betur borgið með því að bæta vegina en byggja lest
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, telur að kröftunum sé betur varið í það að bæta íslenskt vegakerfi í stað þess að að byggja upp lestarkerfi. Hann segir lestir vera frábæran samgöngumáta en mjög dýran að koma upp og reka.

Axarvegi frestað um óákveðinn tíma vegna þensluniðurskurðar
Uppbygging heilsársvegar um Öxi, milli Egilsstaða og Djúpavogs, sem til stóð að hefja í vor, er komin í salt vegna niðurskurðar í vegagerð. Hvenær ráðist verður í verkið skýrist væntanlega í vor við gerð næstu fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar.

Mengunarský yfir Reykjavík og fólk minnt á Strætó
Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs mælist mjög hár í borginni í dag samkvæmt mælingum í mælistöðinni við Grensásveg. Klukkan eitt var klukkutímagildi köfnunarefnisdíoxíðs við Grensásveg 246,2 míkrógrömm á rúmmetra og var styrkurinn einnig yfir 200 míkrógrömmum klukkan ellefu og tólf.

Alvarlegt bílslys í Hveradalabrekku
Harkalegur árekstur varð á Suðurlandsvegi til móts við Skíðaskálann í Hveradölum á öðrum tímanum í dag þegar lítil jeppabifreið hafnaði aftan á snjóruðningstæki.

Leggur til að samnýta borgarlínu og fluglest til Keflavíkur
Hægt væri að samnýta neðanjarðargöng fyrir fluglest frá Reykjavík til Keflavíkur og borgarlínu. Þetta segir ritstjóri skýrslu um lestarmál, sem kom út fyrir nokkrum árum, sem telur verkefnið leysa samgönguvanda borgarinnar í eitt skipti fyrir öll.

Borgarlínuáætlunin og veggjöld
Áætlunin um Borgarlínu ásamt þéttingu byggðar er svo misheppnuð sem raun ber vitni m.a. vegna þess að með þeirri framkvæmd átti að fækka ferðum með einkabílum. Nú kemur Davíð Þorláksson framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf með viðtal í Kjarnanum og segir þar að veggjöld séu áhrifaríkust til að minnka umferðartafir.

Forseti borgarstjórnar Reykjavíkur kallar eftir lest til Keflavíkur
„Við getum ekki lengur stungið höfðinu í sandinn. Það er tilvalið verkefni að úthýsa uppbyggingu lestar til Keflavíkur ef verkefnið reynist hagkvæmt en ákvörðun um þetta er vitaskuld á ábyrgð ríkisins.“

„Þarf ekki að kunna að keyra til að leigja bílaleigubíl?“
„Þarf ekki að kunna að keyra til að leigja bílaleigubíl?“ spyr Sirrý Arnardóttir, rithöfundur og kennari við Háskólann á Bifröst, sem sat heillengi föst fyrir aftan bílaleigubíl sem kínverskur ferðamaður hafði leigt ásamt fjölskyldu sinni. Sá virtist ekki kunna að skipta um gír, aka út í kant eða keyra í hringtorgi.

Hugsanlegt að þjónusta Strætó verði skert á morgun
Vegna veðurs og færðar á morgun gæti verið að þjónusta Strætó skerðist á morgun, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.

Áramótin gætu „horfið í dimmt él“
Áramótin á höfuðborgarsvæðinu gætu horfið í dimmt él, að sögn veðurfræðings, en gular hríðarviðvaranir taka gildi á suður- og vesturhluta landsins á morgun - og Vegagerðin varar við vegalokunum. Þá ríkir enn óvissa um hvort gamlársbrennur, þær fyrstu frá upphafi faraldurs, verði tendraðar á höfuðborgarsvæðinu.