

Leiðtogar stjórnarandstöðunnar segja að nú sé möguleiki á að ná sátt í samfélaginu um fjölmiðlalög, ef undirbúningur þeirra verður unnin í samstarfi við alla. Formaður Samfylkingarinnar segir fráleitt að afnema málsskotsrétt forsetans, hann sé eina vörn borgaranna gegn ráðherraræðinu.
Stjórnarandstaðan gagnrýnir vinnubrögð ríkisstjórnarinnar harðlega og segir greinilegt að hún hafi viðurkennt uppgjöf í fjölmiðlamálinu. Efast er um að heimilt sé að hætta við þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem skýrt sé kveðið á um hana í stjórnarskrá.
Davíð Oddsson sagðist hress eftir ríkisstjórnarfund sem haldinn var í morgun. Hann telur að allir séu sammála um það, fyrir utan þá sem eru hrein handbendi aðila útí bæ, að setja verði lög um fjölmiðla þó það verði gert síðar. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir engan standa uppi sem sigurvegari í fjölmiðlamálinu.
Dögg Pálsdóttir, hæstaréttarlögmaður, segir að forseti Íslands standi andspænis erfiðu vali, ef og þegar hann fær nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar til staðfestingar: Á hann að velja leið skynseminnar eða leið stjórnarskrárinnar?
Írakskur stjórnmálaleiðtogi í Basra, annarri stærstu borg landsins, var myrtur í morgun. Talsmaður héraðsstjórnarinnar í Basra segir að menn í öryggisbúningum hafi skotið meðlim stjórnarinnar, al-Anachi, við varðstöð í borginni. Undanfarið hafa nokkrir stjórnmálaleiðtogar í Írak verið drepnir.
Alþingi verður kallað saman á morgun til að ræða nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar um afnám fjölmiðlalaganna. Samkomulagið var kynnt í allsherjarnefnd síðdegis. Forsætisráðherra segist ekki líta svo á að ríkisstjórnin hafi bakkað, hann segir alla stjórnmálaflokka vilja setja lög um fjölmiðla nema þá, sem sækja stefnu sína til Norðurljósa.
Forsætisráðherra vill láta endurskoða 26. grein stjórnarskrárinnar um málskotsrétt forseta. Þetta er þó ekki liður í samkomulagi formanna stjórnarflokkanna. Davíð Oddsson sagði í morgun að fulltrúar allra flokkanna hefðu rætt um endurskoðun stjórnarskrárinnar hvað þetta varðar.
Það var fyrir réttum þremur mánuðum, 20. apríl í vor, sem frumvarp um eignarhald á fjölmiðlum var kynnt í ríkisstjórn. Daginn eftir las Páll Magnússon inngang að frétt á Stöð 2 um að forsætisráðherra hafi kynnt í ríkisstjórn lagafrumvarp um eignarhald á fjölmiðlum, þótt skýrsla um sama efni hafi ekki enn verið gerð opinber. Strax þá fór málið í harðan hnút.
Til þess að afnema málskotsrétt forseta Íslands þarf stjórnarskrárbreytingu. Stjórnarskrárbreyting verður ekki gerð nema á tveim þingum og er því ferli sem tekur langan tíma.
Formenn stjórnarflokkanna hafa komist að niðurstöðu í fjölmiðlamálinu. Þeir vildu þó ekki staðfesta að ákveðið hefði verið að bakka með fjölmiðlafrumvarpið. Hún verður kynnt í ríkisstjórn á morgun. Forsætisráðherra segist reikna með að Allsherjarnefnd ljúki málinu á morgun.
Stjórnarandstaðan í Allsherjarnefnd Alþingis segir meðferð fjölmiðlamálsins skrípaleik. Fundur nefndarinnar hófst klukkan fimm í dag, en var frestað í morgun. Meirihluti nefndarinnar kynnti ekki niðurstöðu stjórnarformannanna en sagði að hún yrði kynnt á fundi nefndarinnar á morgun.
Utanríkisráðherra telur fjölmiðlamálið ekki þannig mál að það felli ríkisstjórnina. Hann segir sig og forsætisráðherra samstíga um að finna lausn. Forsætisráðherra segir allsherjarnefnd ekki lagðar línur. Hann fundaði með sjálfstæðismönnum nefndarinnar fyrr um daginn.
Halldór Ásgrímsson gerði Davíð Oddssyni grein fyrir sjónarmiðum framsóknarmanna í fjölmiðlamálinu. Framsóknarmenn vilja að núverandi frumvarp verði dregið til baka. Leitað verður lausnar á málinu í næstu viku.
Formenn stjórnarflokkanna sitja enn á fundi í stjórnarráðinu og ræða breytta stöðu í fjölmiðlamálinu. Halldór Ásgrímsson formaður Framsóknarflokksins kom til Reykjavíkur eftir hádegið og gekk á fund Davíðs í stjórnarráðinu um þrjúleytið.
Lögspekingar sem komu á fund allsherjarnefndar í gær sögðu að ákvörðun ríkisstjórnarinnar væri "stjórnskipuleg valdníðsla" og að hún hefði "bundið hendur forseta". Aðrir töldu hana standast stjórnarskrá.
Forysta Framsóknarflokksins ætlar að fara fram á viðræður við forystu Sjálfstæðisflokksins um að fjölmiðlafrumvarpið verði dregið til baka. Líklegast er að óskað verði eftir að nýtt frumvarp verði lagt fram sem felli fjölmiðlalögin úr gildi, en að öðrum kosti verði þjóðaratkvæðagreiðsla.
Fjölmiðlafrumvarpið verður væntanlega afgreitt óbreytt úr allsherjarnefnd, segir Bjarni Benediktsson, formaður nefndarinnar. Stjórnarandstaðan segir að umfjöllun um málið sé lokið í nefndinni og vill leggja fram álit í kvöld, en meirihluti nefndarinnar hefur boðað Samkeppnisstofnun á fund í fyrramálið.
Flokksmenn sjálfstæðisflokks í allsherjarnefnd útiloka ekki að breytingar verði gerðar á nýju fjölmiðlafrumvarpi. Þeir hafa óskað eftir áliti Samkeppnisstofnunnar um ný fjölmiðlalög og verður hún eini gestur nefndarinnar í dag.
Máttarstólpar Framsóknarflokksins hafa í rúma viku unnið markvisst að því að fá Sjálfstæðisflokkinn til að fallast á að draga nýja fjölmiðlafrumvarpið til baka og ná þannig pólitískri sátt um málið.
Samhljómur var á fundi Framsóknarfélags Reykjavíkur suður um að ríkisstjórnin ætti að draga nýja fjölmiðlafrumvarpið til baka og leyfa þjóðinni að segja álit sitt um frumvarpið er forseti synjaði staðfestingar.
Allsherjarnefnd Alþingis kemur saman klukkan hálf tíu í dag og heldur áfram umfjöllun um fjölmiðlafrumvarpið.
Halldór Ásgrímsson sagði það ekki hafa verið rætt á þingflokksfundi Framsóknarflokksisn hvort draga ætti fjölmiðlafrumvarpið til baka í kjölfar gagnrýni á málsmeðferðina innan flokksins. Halldór segir enn skiptar skoðanir innan flokksins. Hann er ósammála lagaprófessorum.
Einstaklingur sem telur á sér brotið getur hugsanlega höfðað mál gegn íslenska ríkinu verði nýja fjölmiðlafrumvarpið samþykkt á Alþingi og þannig sneitt hjá þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fara skal fram samkvæmt 26. grein stjórnarskrárinnar, að sögn Daggar Pálsdóttur hæstaréttarlögmanns.
Framámenn í Framsóknarflokknum gagnrýna forystu flokksins mjög harkalega í kjölfar skoðanakönnunar Fréttablaðsins sem sýnir að Framsóknarflokkurinn hefur misst 60 prósent af kjörfylgi sínu og er nú minnstur flokkanna. Alfreð Þorsteinsson, oddviti framsóknarmanna í borgarstjórn Reykjavíkur, segir að eina leiðin fyrir flokkinn til að ná fylgi sínu til baka sé sú að fjölmiðlamálið verði sett í nýjan farveg.
Þetta eru alvarleg skilaboð frá kjósendum flokksins til flokksforystunnar að þeir hafi ekki staðið sig nægilega vel varðandi fjölmiðlamálið," segir Alfreð Þorsteinsson, forystumaður Framsóknarflokks í borgarstjórn.
Framsókn er að gjalda fyrir það að gerast vikapiltar sjálfstæðismanna í því að taka af fólki lögverndaðan rétt til þess að fá að kjósa um fjölmiðlalögin í þjóðaratkvæðagreiðslu," segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar.
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir, eftir að hafa hlýtt á einn helsta stjórnskipunarfræðing landsins, Eirík Tómasson lagaprófessor, á fundi allsherjarnefndar Alþingis í morgun. Að ríkisstjórninni sé ekki stætt á öðru en að láta þjóðina greiða atkvæði um fjölmiðlalögin.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra, sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun að fjölmiðlamálið hefði borið á góma, þótt það hefði ekki beinlínis verið á dagskrá. Engar ákvarðanir hefðu verið teknar en ráðherrarnir hefðu rætt stöðu málsins.
Alþingi getur hugsanlega fellt fjölmiðlalögin úr gildi, en með því að setja samtímis ný lög um sama mál, er brotið gegn stjórnarskránni. Þetta er mat Eiríks Tómassonar, lagaprófessors.
Gríðarlegur fjöldi manna, eða a.m.k. þúsund manns að því er talið er, tók þátt í útifundi sem Þjóðarhreyfingin - svokallaður viðbragðshópur sérfræðinga, boðaði til við Alþingishúsið klukkan 12:30 í dag.