Aron kvaddi Kiel með meistaratitli | Myndir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. júní 2015 19:31 Leikmenn Kiel fögnuðu 20. meistaratitli félagsins vel og innilega. vísir/getty
Aron Pálmarsson lék sinn síðasta leik með Kiel þegar liðið vann öruggan fjögurra marka sigur, 33-29, á Lemgo á heimavelli í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Með sigrinum gulltryggði Kiel sér Þýskalandsmeistaratitilinn, fjórða árið í röð, og sjötta sinn alls undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Aron skoraði þrjú mörk og gaf þrjár stoðsendingar leiknum í kvöld sem var, eins og áður sagði, hans síðasti með Kiel. Landsliðsmaðurinn er sem kunnugt er á leið til Veszprém í Ungverjalandi. Aron varð alls fimm sinnum þýskur meistari með Kiel. Kiel tapaði ekki leik eftir áramót og vann 14 af 15 síðustu leikjum sínum í þýsku deildinni. Alfreð, Aron og félagar fengu alls 65 stig, tveimur meira en Rhein-Neckar Löwen sem vann fimm marka sigur, 27-32, á Geir Sveinssyni og lærisveinum hans í Magdeburg.Kiel vann 14 af síðustu 15 deildarleikjum sínum á tímabilinu.vísir/gettyAlexander Petersson lék ekki með Löwen í kvöld og Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað. Uwe Gensheimer var markahæstur í liði Ljónanna með níu mörk. Magdeburg endaði í 4. sæti deildarinnar en liðið tapaði þremur síðustu leikjum á tímabilinu. Dagur Sigurðsson stýrði Füchse Berlin í síðasta sinn í kvöld þegar Berlínarrefirnir töpuðu 29-32 fyrir Flensburg. Fuchse Berlin endaði í 7. sæti en Flensburg í því þriðja. Ólafur Guðmundsson skoraði tvö mörk og Rúnar Kárason eitt þegar Hannover-Burgdorf tapaði 29-26 fyrir Melsungen á útivelli. Hamburg vann eins marks sigur á Gummersbach á heimavelli, 32-31. Gunnar Steinn Jónsson skoraði eitt marka Gummersbach. Sigurbergur Sveinsson lék ekki með Erlangen sem tapaði fyrir Lübbecke á útivelli, 28-23. Erlangen féll úr deildinni ásamt Minden, Friesenheim og Bietigheim.Filip Jicha, fyrirliði Kiel, lyftir skildinum góða.vísir/getty
Handbolti Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira