Körfubolti

Körfuboltakvöld: Maður leiksins í Þorlákshöfn mætti í settið | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kári Jónsson átti frábæran leik þegar Haukar tryggðu sér sæti í undanúrslitum Domino's deildar karla með fjögurra stiga sigri, 96-100, á Þór í Þorlákshöfn í gær.

Kári byrjaði á bekknum líkt og í þriðja leiknum í einvíginu en kom fljótlega inn á. Þessi 18 ára strákur var með átta stig í hálfleik en í seinni hálfleik var hann sjóðheitur og skoraði 20 stig.

Kári lauk leik með 30 stig, átta fráköst og fjórar stoðsendingar og var stigahæstur allra á vellinum.

Strákarnir í Domino's Körfuboltakvöldi völdu Kára mann leiksins í gær og hann mætti í settið til þeirra eftir leik.

„Ég er mjög glaður og sérstaklega yfir karakternum í liðinu. Við erum 14 stigum undir í hálfleik, enginn Kani og þeir að eiga dúndurleik. Það voru ekki margir sem höfðu trú á okkur þarna en við stigum virkilega upp og vörnin okkar var frábær í seinni hálfleik,“ sagði Kári um leikinn í gær sem var rosalegur.

Til marks um það skiptust liðin 14 sinnum á forystunni í leiknum og 13 sinnum var staðan jöfn. Lokamínúturnar voru gríðarlega spennandi og úrslitin réðust ekki fyrr en í framlengingu þar sem Haukar reyndust sterkari.

Kári meiddist í fyrsta leiknum gegn Þór eftir harða hindrun frá Ragnari Nathanealssyni. Hann missti af þeim sökum af leik tvö en spilaði mikið í tveimur síðustu leikjunum í einvíginu þrátt fyrir að byrja á bekknum í þeim báðum. Kári segist vera búinn að ná sér að mestu leyti af meiðslunum.

„Ég er aumur í öxlum og aðeins í baki,“ sagði Kári áður en Fannar Ólafsson stoppaði hann af og sagði honum að hætta að væla.

„Nú ég ætla ég að kenna þér eitt. Nú skaltu hætta þessu væli. Þú ert að fara alla leið núna,“ sagði gamli landsliðsmiðherjinn við Kára sem var valinn besti leikmaður seinni hluta Domino's deildarinnar fyrr í mánuðinum.

Viðtalið við Kára má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×