Erlent
116 117 118 119 120 121 122 123 124 … 334 ›
Facebook bannar ekki forseta sem hótaði andstæðingum ofbeldi Meta, móðurfélag Facebook, ákvað að hafna áliti eigin ráðgjafanefndar um að banna fyrrverandi forsætisráðherra Kambódíu sem notaði miðillinn til þess að hóta andstæðingum sínum ofbeldi. Ráðherrann hótaði að banna Facebook í landinu ef hann yrði sjálfur settur í straff. Erlent 31.8.2023 11:42
„Það er allt í lagi“ Myndband, sem talið er eitt það síðasta sem tekið var af rússneska auðjöfrinum Jevgení Prígóshín var birt í gær. Það mun hafa verið tekið upp í Afríku nokkrum dögum áður en hann dó og ræddi hann meðal annars það að fólk hefði áhyggjur af honum og öryggi hans. Erlent 31.8.2023 11:05
Stöðvaður með stærðarinnar naut í farþegasætinu Lögreglunni í Norfolk í Nebrasaka barst í gær tilkynning um mann sem var að keyra niður þjóðveg með „kú í bílnum,“ eins og það var orðað. Þegar umræddur maður var stöðvaður kom í ljós að hann var með stórt Watusi naut í farþegasætinu. Erlent 31.8.2023 10:18
Fimm viðgerðarmenn látnir eftir að hafa orðið fyrir lest á Ítalíu Fimm verkamenn, sem unnu að viðgerð á lestarteinum á lestarstöðinni í bænum Brandizzo, létust þegar þeir urðu fyrir flutningalest í nótt. Erlent 31.8.2023 08:44
Fordæmir spillingu í tengslum við undanþágur frá herþjónustu Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur fordæmt spillingu í tengslum við heilsufarslegar undanþágur frá herþjónustu en hann segir að á sumum svæðum hafi fjöldi þeirra tífaldast frá því í fyrra. Erlent 31.8.2023 06:56
Að minnsta kosti 64 látnir eftir eldsvoða í Jóhannesarborg Að minnsta kosti 64 eru látnir og 43 særðir eftir að eldur braust út í marghæða byggingu í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í morgun. Yfirvöld segja líklegt að fleiri séu látnir. Erlent 31.8.2023 06:40
Fraus aftur í miðri setningu Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild bandaríska þingsins, fraus í miðri setningu á blaðamannafundi í Kentucky ríki í dag. Um mánuður er liðinn síðan McConnell gerði slíkt hið sama á öðrum blaðamannafundi. Erlent 30.8.2023 21:38
Pútín og Kim sagðir skiptast á bréfum Yfirvöld í Bandaríkjunum segja Vladimír Pútín, forseta Rússlands, og Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafa skipst á bréfum. John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, sagði frá því í dag að Bandaríkjamenn hefðu komist á snoðir um þessar bréfasendingar og eru þær sagðar byggja á fyrri samskiptum milli ríkjanna. Erlent 30.8.2023 16:24
Giuliani ábyrgur fyrir meiðyrðum í garð kosningastarfsmanna Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum úrskurðaði að Rudy Giuliani, fyrrverandi persónulegur lögmaður Donalds Trump, hefði gefið meiðyrðamál tveggja kosningastarfsmanna í Georgíu á hendur honum. Starfsmennirnir sættu líflátshótunum eftir að Giuliani og fleiri sökuðu þær ranglega um svik. Erlent 30.8.2023 15:49
Reyna að stöðva leiðangur að flaki Títaniks Bandarísk stjórnvöld reyna nú að koma í veg fyrir fyrirhugaðan leiðangur sem er ætlað að safna munum úr flaki Títaniks á botni Norður-Atlantshafsins. Þau telja að skilgreina skuli flakið sem helgan grafreit. Erlent 30.8.2023 14:04
Hermenn handtóku forseta Gabon Hópur hermanna í Gabon segist hafa handsamað Ali Bongo, forseta landsins. Þrátt fyrir að Bongo hafi kallað eftir mótmælum vegna handtöku hans virðist sem íbúar landsins hafi tekið handtökunni fagnandi. Erlent 30.8.2023 12:14
Óljóst hversu margir fórust í eldunum á Maui Leit að fórnarlömbum gróðureldanna á Maui á Havaí er við það að ljúka. Enn er þó óljóst hversu margir fórust. Leitarflokkar eru taldir hafa fundið allar þær líkamsleifar sem hægt er að finna. Erlent 30.8.2023 12:07
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Harðir bardagar í suðri Úkraínskir hermenn hafa náð tiltölulega miklum árangri í Sapórisjíahéraði í suðurhluta Úkraínu á undanförnum dögum og vikum. Svo virðist sem aukinn hraði hafi færst í framsókn Úkraínumanna nærri bænum Robotyne en Rússar hafa sent sínar bestu hersveitir á svæðið til að stöðva sóknina. Erlent 30.8.2023 10:56
Ætla ekki að rannsaka flugvélarhrap Prigozhin eftir alþjóðareglum Rússnesk yfirvöld synjuðu ósk brasilískra flugmálayfirvalda um sameiginlega rannsókn eftir alþjóðlegum reglum á því hvað grandaði flugvél Jevgeníj Prigozhin, rússneska málaliðaforingjans, að svo stöddu. Rússar eru ekki skyldugir til þess þó að alþjóðleg flugmálayfirvöld mæli með því. Erlent 30.8.2023 08:57
Kanada gefur út viðvörun vegna ferða hinsegin fólks til Bandaríkjanna Stjórnvöld í Kanada hafa gefið út ferðaviðvörun til hinsegin fólks sem hyggst ferðast til Bandaríkjanna. Ástæðan eru ný lög og reglur í sumum ríkjum Bandaríkjanna, sem gætu mögulega haft áhrif á hinsegin ferðalanga. Erlent 30.8.2023 08:09
Fellibylurinn Idalia ógnar íbúum Flórída Íbúar Flórída í Bandaríkjunum búa sig nú undir að fellibylurinn Idalia nái að strönd ríkisins. Erlent 30.8.2023 07:30
Umfangsmiklar árásir í nótt á báða bóga Úkraínumenn gerðu í nótt víðtækar drónaárásir á svæði í Rússlandi. Í einni árásinni voru tvær flutningavélar sprengdar í loft upp á Pskov flugvellinum er í mörg hundruð kílómetra fjarlægð frá víglínunni í Úkraínu. Erlent 30.8.2023 07:24
Stjórnmálaflokkur kjörins forseta bannaður Sigur Bernarndo Arévalo í forsetakosningunum í Gvatemala var staðfestur í gær. Stjórnmálaflokkur hans var hins vegar bannaður tímabundið. Arévalo segir úrskurðinn lögleysu og að flokkurinn ætli að kæra hann. Erlent 29.8.2023 15:36
Rannsókn hætt á meintum brotum Rammstein söngvarans Rannsókn á meintum kynferðisbrotum Till Lindemann, söngvara þýsku hljómsveitarinnar Rammstein, hefur verið hætt af saksóknara í Þýskalandi. Ástæðan er að ekki fundust nægilega mikil sönnunargögn fyrir hinum meintu brotum og þá vildi enginn stíga fram sem vitni. Erlent 29.8.2023 15:07
Reiði beinist að DeSantis Eftir að ungur rasisti myrti þrjár svartar manneskjur í Jacksonville í Flórída um helgina hafa margir reiðst Ron DeSantis, ríkisstjóra. Fyrir árásina hafði hann verið sakaður um að skapa andrúmsloft haturs gegn svörtum Bandaríkjamönnum og öðru þeldökku fólki og reiðin hefur aukist eftir árasina. Erlent 29.8.2023 13:29
DiCaprio hvetur Ísland til að banna hvalveiðar alfarið Bandaríski stórleikarinn Leonardo DiCaprio hvetur íslensk stjórnvöld til þess að banna hvalveiðar til frambúðar í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem fleiri en sextíu milljónir manna fylgja honum. Tímabundið bann við hvalveiðum rennur út á föstudag. Erlent 29.8.2023 09:02
Þrír hengdir vegna hryðjuverkarárásar í Baghdad árið 2016 Þrír voru hengdir í Írak í gær vegna hryðjuverkaárásar í Baghdad árið 2016. Um 300 létu lífið í árásinni, sem var sú mannskæðasta frá innrás Bandaríkjanna og bandamanna árið 2003. Erlent 29.8.2023 08:44
Fyrrverandi ritari Verkamannaflokksins lést á Íslandi í gær Lávarðurinn Alan Haworth, fyrrverandi ritari breska Verkamannaflokksins, lést á ferðalagi til Íslands í gær. Hann var 75 ára. Erlent 29.8.2023 08:08
Átta sentímetra ormur úr pýtonslöngu fjarlægður úr heila konu Taugaskurðlækninum Hari Priya Bandi brá heldur betur í brún þegar hún fann átta sentímetra langan hringorm í framheila konu á sjúkrahúsi í Canberra í Ástralíu. Erlent 29.8.2023 07:15
Áfram einhverjar tafir vegna bilunar á Heathrow Flugmálayfirvöld í Bretlandi vara við því að enn kunni að verða einhverjar tafir á flugi til og frá Heathrow flugvelli í Lundúnum í dag en flugáætlanir fóru verulega úr skorðum í gær vegna bilunar í tölvukerfi. Erlent 29.8.2023 06:47
Kettir Ásu fjarlægðir og komið fyrir í „dauðaathvarfi“ Lögreglan í New York-ríki Bandaríkjanna tók tvo ketti Ásu Ellerup, eiginkonu Rex Heuermann, og kom þeim fyrir á dýraathverfi þar sem dýrin eru drepin finni þau ekki nýjan eiganda. Heuermann er grunaður raðmorðingi, en það var í húsleit lögreglu á heimili hans og Ásu þar sem kettirnir voru fjarlægðir. Erlent 28.8.2023 17:31
„Almenningur á rétt á að þetta mál sé tekið fyrir hratt og örugglega“ Réttarhöldin í máli sérstaks saksóknara dómsmálaráðuneytisins gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, munu hefjast þann 4. mars á næsta ári. Þetta er eitt af fjórum dómsmálum gegn Trump og tveimur sem Jack Smith, áðurnefndur saksóknari, hefur höfðað gegn honum. Erlent 28.8.2023 16:06
Sendir herforingjastjórn Níger tóninn Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir að sendiherra landsins í Níger verði ekki kallaður heim, þó herforingjar sem tóku nýverið völd í landinu hafi krafist þess. Macron segir herforingjana ekki hafa umboð til að setja slíkar kröfur fram. Erlent 28.8.2023 13:53
Síðustu dagar Prígósjíns: Kepptist við að halda veldi sínu saman Rússneski auðjöfurinn Jevgení Prígósjín, sem stofnaði og fjármagnaði meðal annars málaliðahópinn Wagner Group, varði sínum síðustu dögum á flakki um heiminn og reyndi að halda lífi í viðskiptaveldi sínu í Afríku og Mið-Austurlöndum. Varnarmálaráðuneyti Rússlands beitti hann miklum þrýstingi og var að bola Wagner út. Erlent 28.8.2023 11:19
Banna skósíða kyrtla í skólum landsins Gabriel Attal, menntamálaráðherra Frakklands, segist hafa ákveðið að banna stúlkum og konum að klæðast „abaya“, víðum skósíðum kyrtlum í ríkisreknum skólum landsins. Erlent 28.8.2023 08:21