Erlent

Ólöglega bruggað áfengi varð 28 að bana
Að minnsta kosti 28 eru látin og um sextíu alvarlega veik eftir að hafa drukkið ólöglega bruggað áfengi sem búið var að blanda með óþekktum efnum í Gujarat-fylki.

Nóbelsverðlaunahafinn David Trimble er látinn
Norður-Írinn David Trimble er látinn. Trimble hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1998 ásamt John Hume fyrir þeirra þátttöku í gerð Good Friday-sáttmálans.

Sprengjum rigndi í Odesa, Kharkiv og Mykolaiv í nótt
Rússar hafa látið sprengjum rigna víða í Úkraínu í nótt. Fregnir hafa borist af árásum á Kharkiv, Mykolaiv og hafnarborgina Odesa. Árásir á Odessa hafa sérstaklega verið gagnrýndar en ekki liðu nema nokkrir klukkutímar frá samkomulagi um kornútflutning frá Úkraínu uns sprengjum var skotið á borgina, þvert á hið nýgerða samkomulag.

Reglulegir lúrar tengdir við aukna hættu á heilablóðfalli og háum blóðþrýstingi
Fólk sem fær sér oft lúr er líklegra til þess að þróa með sér háan blóðþrýsting og fá heilablóðfall, ef marka má niðurstöður nýrrar umfangsmikillar rannsóknar. Aðstandendur hennar segja niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að horfa til svefns þegar kemur að því að leggja mat á áhættuna.

Þrjú látin eftir skotárás í Langley í Kanada
Þrjú eru látin eftir skotárás í borginni Langley í Bresku-Kólumbíu, árásarmaðurinn með talinn.

Sveppahringur slær heimsmet
Indverska fyrirtækið SWA Diamonds hefur skráð sig í heimsmetabók Guinness fyrir flesta demanta á einum hring. Á nýjasta hring þeirra eru 24.679 demantar.

Minnst einn látinn í röð skotárása í Kanada
Skotið var á nokkurn fjölda einstaklinga í röð skotárása í borginni Langley í Bresku-Kólumbíu í morgun að sögn kanadísku lögreglunnar. Minnst einn lést í árásunum og hefur karlmaður verið handtekinn grunaður um aðild að þeim. Langley er staðsett rétt utan við Vancouver, um 40 kílómetra suðaustur af borginni.

Árásargjarni innbrotsapinn hættir ekki og gæti átt sér vitorðsapa
Árásargjarn api sem hefur brotist inn til fólks í borginni Yamaguchi í Japan hefur ekki enn náðst og halda árásir hans áfram. Alls hafa 42 lent í klóm apans á síðustu vikum.

Lavrov ferðast um Afríku til að styrkja tengslin
Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands flaug til Kongó-Brazzaville í morgun en hann er á ferðalagi um álfuna í von um að styrkja tengslin við önnur ríki en í Evrópu. Afríkuríki hafa ekki tekið þátt í viðskiptaþvingunum gegn Rússum vegna Úkraínustríðsins og vonast Rússar til að góðvilji sé til staðar til að styrkja tengslin enn frekar.

Stjórnarandstæðingur handtekinn í Rússlandi
Rússneski stjórnmálamaðurinn Leonid Gozman var í dag handtekinn af lögregluþjónum í Moskvu. Gozman er leiðtogi stjórmálaflokksins Bandalag hægriafla.

Sex ára stúlka og foreldrar hennar skotin til bana á tjaldstæði
Sex ára gömul stúlka var skotin til bana ásamt foreldrum sínum í Iowa í Bandaríkjunum fyrir helgi. Fjölskyldan var í útilegu í Maquoketa Caves þjóðgarðinum þegar voðaverkið átti sér stað.

Framkvæmdastjórn ESB gefur notkun bólusóttarbóluefni gegn apabólu grænt ljós
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur samþykkt að bóluefni fyrir bólusótt verði notað gegn apabólunni. Von er á 1.400 slíkum skömmtum til Íslands í haust.

Björguðu fjórtán ára strák frá drukknun með aðstoð dróna
Lífvörðum á strönd borgarinnar Gandia á Spáni tókst að bjarga fjórtán ára strák frá drukknun með því að notast við dróna. Drengurinn var sendur á spítala eftir atvikið en var útskrifaður þaðan innan við sólarhring seinna.

Seglfiskur stakk konu í Flórída
Kona var stungin af kyrrahafsseglfisk við strendur Flórída-ríkis í Bandaríkjunum í síðustu viku. Konan var stunginn í nárann er hún stóð við hliðina á veiðimanni sem var með fiskinn á línunni. Líðan konunnar er stöðug.

Þrír skotnir til bana við útskriftarathöfn í Filippseyjum
Þrír voru skotnir til bana við úrskriftarathöfn úr háskólanum Ateneo de Manila á höfuðborgarsvæði Filippseyja í gær. Árásarmaðurinn var handtekinn eftir eftirför lögreglu en hann hafði reynt að flýja vettvang.

Stjórnlausir eldar í Kaliforníu
Slökkviliðsmönnum í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur ekkert gengið í baráttunni við skógareldinn sem brennur í Mariposa sýslu

Baráttufólk dæmt til dauða í Mjanmar
Herforingjastjórnin í Mjanmar hefur tekið fjóra baráttumenn fyrir auknu lýðræði af lífi en dauðarefsingum hefur ekki verið beitt í landinu í rúma fjóra áratugi, opinberlega í það minnsta. Þeir dauðadæmdu voru fyrrverandi þingmaður, rithöfundur og tveir aðgerðasinnar.

Bolsonaro sækist eftir endurkjöri en fylgið dvínar
Jair Bolsonaro forseti Brasilíu hóf kosningabaráttu sína fyrir endurkjöri í gær á kosningafundi Frjálslynda flokksins í Rio de Janeiro. Í ræðu sinni lagði Bolsonaro áherslu á guð, byssur og fjölskylduna. Hann freistar nú þess að höggva á forskot helsta keppinautar síns, sósíalistann og forsetann fyrrverandi Lula da Silva sem nýtur mun meira fylgis.

Vesturlönd sníði reglur sínar eftir hentugleika
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, þvertekur fyrir það að Rússar hafi valdið hungursneyð um allan heim. Hann segir Vesturlönd vera að reyna að sýna fram á að þau séu sterkari en aðrar þjóðir.

Tekinn af lífi fyrir að kveikja í fyrrverandi eiginkonu sinni í beinu streymi
Kínverskur karlmaður var í gær tekinn af lífi í heimalandi sínu fyrir að myrða fyrrverandi eiginkonu sína með því að hella yfir hana bensíni og kveikja í henni. Konan var í beinu streymi þegar morðið átti sér stað.

Eldgos hafið í Japan
Eldfjallið Sakurajima hóf að gjósa í dag en fjallið er sunnarlega á eyjunni Kyusu sem tilheyrir Japan. Búið er að rýma nærliggjandi byggð og hæsta viðbúnaðarstig sett á.

Skákvélmenni fingurbraut sjö ára barn
Skákvélmenni fingurbraut sjö ára dreng í Moskvu í síðustu viku. Sergey Lazarev, formaður rússneska skáksambandsins, segir atvikið ekki vera gott.

Dularfull dauðsföll rússneskra auðmanna
Tæpur tugur rússneskra milljarðamæringa hefur látist við grunsamlegar aðstæður frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Í sumum tilfellum hefur öll fjölskylda milljarðamæringanna verið myrt.

Úkraínski herinn sækir fram í hernumdu héraði
Úkraínuforseti segir hersveitum sínum hafa orðið ágengt í Kherson héraði „skref fyrir skref“.

Tækluð vegna umhverfisgjörnings
Umhverfissinnar á Ítalíu gerðu tilraun til þess að líma hendur sínar við málverkið „Primavera“ eftir Botticelli.

Neyðarástand vegna skógarelda í Kaliforníu
Neyðarstigi hefur verið lýst yfir vegna skógarelda í Kaliforníu en eldarnir nálgast nú Yosemite þjóðgarðinn.

Árásirnar sýni að Rússum sé ekki treystandi
Selenskí Úkraínuforseti sakar Rússa um villimennsku í kjölfar árása á hafnir Odessa, sem gerðar voru örfáum klukkutímum eftir undirritun samnings um útflutning á korni frá landinu.

Handtekinn fyrir að hjálpa gyðingi að komast til Mecca
Sádiarabískur karlmaður var í dag handtekinn fyrir að aðstoða ísraelskan fréttamann við að komast inn í heilögu borgina Mecca. Einungis múslimar mega fara inn í borgina.

Leyfa norðurkóreskt sjónvarp í Suður-Kóreu
Yfirvöld í Suður-Kóreu stefna á að afnema bann við almenningsaðgengi að norðurkóreskum sjónvarpsstöðvum, dagblöðum og öðrum fjölmiðlum. Vonast þeir eftir því að nágrannar þeirra geri slíkt hið sama.

Lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna apabólu
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur lýst yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna útbreiðslu apabólu. Þetta var tilkynnt í dag í kjölfar annars fundar neyðarnefndar vegna málsins.