

NBA körfuboltamaðurinn Jalen Brunson lét verkin tala í gær þegar kom að því að hjálpa New York Knicks að vera betra. Brunson var tilbúinn að fá mun lægri laun fyrir vinnu sína en hann var búinn að vinna sér inn.
Valsmenn hafa samið við nýjan erlendan leikmann fyrir kvennakörfuboltalið félagsins. Leikmaðurinn er kanadíski-ítalski framherjinn Alyssa Cerino.
Knattspyrnusamband Evrópu segir að sex leikmenn muni deila gullskó Evrópumótsins í fótbolta nái enginn að skora sitt fjórða mark í úrslitaleiknum á morgun.
Caitlin Clark fór enn á ný á kostum í WNBA deildinni í körfubolta í nótt og leiddi að þessu sinni Indiana Fever liðið til sigurs.
Knattspyrnusamband Íslands hefur fundið nýja þjálfara fyrir tvö yngri landsliðs karla í knattspyrnu. Þetta eru 19 ára landsliðið og 21 árs landsliðið.
Margir hafa áhyggjur af bakteríum og óhreinindum í ánni Signu í París en þar mun meðal annars Guðlaug Edda Hannesdóttir keppa í þríþraut á Ólympíuleikunum í París.
Gary Lineker, knattspyrnusérfræðingur og fyrrum landsliðsmaður Englendinga, vill alls ekki heyra ákveðin orð í aðdraganda úrslitaleik Englands og Spánar um Evrópumeistaratitilinn.
Karlalið Íslands tryggði sér sæti í efstu deild Evrópumótsins í golfi með glæsilegum sigri gegn Belgíu.
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann einn stærsta sigur sinn í sögunni þegar Þjóðverjum var skellt 3-0 á Laugardalsvellinum í gær.
Myndirnar af Lionel Messi að baða spænska undrabarnið, þegar Lamine Yamal var aðeins sex mánaða, fóru eins og eldur í sinu um alnetið í vikunni. Strákurinn var sjálfur spurður út í myndirnar í viðtali fyrir úrslitaleik Evrópumótsins í Þýskalandi.
Blaðamenn The Athletic hafa áhyggjur af rekstrarstöðu Manchester United og segja að félagið gæti lent í vandræðum með að vera réttum megin við strikið þegar kemur að rekstrarreglum ensku úrvalsdeildarinnar.
Mosfellingurinn Erna Sóley Gunnarsdóttir verður fyrsti kvenkyns kúluvarpari sem keppir fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum en hún er á leið til Parísar seinna í þessum mánuði.
Marcelo Bielsa, þjálfari Úrúgvæ, kom leikmönnum sínum til varnar á skrautlegum blaðamannafundi í gær.
Guðmundur Einar er svo hugfanginn af vítaspyrnukeppnum að hann ákvað að halda myndlistarsýningu tileinkaða þeim. Örlög Gareths Southgate, landsliðsþjálfara Englands, eru listamanninum sérstaklega hugleikin.
Íslensku stelpurnar tryggðu sér sæti á Evrópumótinu í Sviss næsta sumar með glæsilegum 3-0 sigri á Þjóðverjum á Laugardalsvellinum í gær. Aðeins þrjár þjóðir höfðu þá náð að tryggja sér sæti í lokakeppninni af þeim sextán sem taka þátt.
Alþjóðaólympíusambandið hefur gert samkomulag við Sádi-Arabíu um að Ólympíuleikarnir í rafíþróttum verði haldnir þar í landi næstu tólf árin. Stefnt er að því að fyrstu leikarnir fari fram á næsta ári.
Það er fjölbreytt dagskrá á íþróttarásum Stöðvar 2 og Vodafone í dag.
Declan Rice mun fá sér sinn fyrsta „almennilega bjór“ ef England verður Evrópumeistari næsta sunnudag.
Hinn 36 ára gamli Jonny Evans hefur framlengt samning sinn við Manchester United um eitt ár.
Spænski miðjumaðurinn Dani Olmo segir tvö bestu lið Evrópumótsins leika til úrslita á sunnudaginn þegar Spánn mætir Englandi. Það sé mikilvægt að halda einbeitingu sama hver staðan er því enska liðið getur snúið leikjum við.
Patrice Evra hlaut eins árs skilorðsbundinn fangelsisdóm í Frakklandi fyrir að yfirgefa og vanrækja eiginkonu sína og börn.
ÍR vann 3-0 gegn Grindavík í Lengjudeild karla í kvöld. Þetta var fimmti leikur ÍR í röð án taps, þeir tóku fram úr Grindavík með sigrinum og færðu sig upp í fjórða sæti.
Ríkjandi heimsmeistarar í kvennafótbolta, Spánn, töpuðu mjög svo óvænt gegn Tékklandi í dag. Þetta var fyrsta tap Spánverjanna og fyrsta sigur Tékkanna í undankeppni Evrópumótsins.
Glódís Perla Viggósdóttir var afar ánægð eftir ævintýralegan 3-0 sigur gegn Þýskalandi á Laugardalsvelli. Með sigri tryggði íslenska kvennalandsliðið í fótbolta sér þátttökurétt á EM í fimmta skipti í röð.
Ingibjörg Sigurðardóttir, varnarmaðurinn öflugi, valdi aldeilis tímann til þess að skora sitt fyrsta landsliðsmark. Ingibjörg kom íslenska liðinu á bragðið í sögulegum sigri gegn Þýskalandi. Sigurinn fleytti liðinu í lokaeppni EM sem haldið verður í Sviss árið 2025.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lagði sitt af mörkum og rúmlega það þegar íslenska kvennalandsliðið í fótbolta kvenna tryggði sér sæti í lokakeppni EM 2025 sem fram fer í Sviss með mögnuðum 3-0 sigri gegn Þýskalandi í undankeppni mótsins á Laugardalsvelli í kvöld.
Ísland vann ótrúlegan 3-0 sigur gegn Þýskalandi. Ísland hefur því tryggt sér inn á EM 2025 í Sviss. Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Íslands, fór á kostum og kom að öllum mörkum leiksins.
Alexandra Jóhannsdóttir skoraði eitt marka íslenska sem vann frækinn sigur gegn Þjóðverjum í undankeppni EM 2025 í fótbolta kvenna í Laugardalnum í kvöld. Alexandra er á leið með Íslandi á Evrópumótið en liðið er að fara þangað í fimmta skiptið í röð.
Á fundi með blaðamönnum var farið yfir víðan völl um sigurleik Íslands á Þjóðverjum með Þorsteini Halldórssyni þjálfara liðsins. Umræðan fór út í ferlið á liðinu og gagnrýni á það sem Þorsteinn taldi hafa verið skrýtna á köflum.
Sandra María Jessen stóð sig af stakri prýði þegar Ísland gerði sér lítið fyrir og lagði Þýskaland að velli í undankeppni EM 2025 í fótbolta kvenna á Laugardalsvellinum. Sandra María sagði íslenska liðið hafa haft fulla trú á verkefninu fyrir leikinn og það hafi sýnt sig þegar út í leikinn var komið.