Viðskipti erlent
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 334 ›
Gamall iPhone seldist á tugi milljóna Fyrsta kynslóðin af iPhone símum kom út árið 2007 og var mjög vinsæl á sínum tíma. Alls seldust um sex milljón eintök af símanum. Einn þessara síma var settur á uppboð sem lauk á dögunum með því að hann seldist á rúmlega 190 þúsund dollara. Það samsvarar um tuttugu og sjö milljónum í íslenskum krónum. Viðskipti erlent 17.7.2023 17:08
Ætla ekki að leyfa útflutning korns lengur Yfirvöld í Rússlandi ætla ekki að framlengja kornsamkomulagið svokallaða, sem gert hefur Úkraínumönnum kleift að flytja út korn. Talsmaður Valdimírs Pútín, forseta Rússlands, segir ákvörðunina ekki tengjast árásinni á brúnna yfir Kerch-sund. Viðskipti erlent 17.7.2023 11:08
Microsoft og Sony semja um Call of Duty Forstjóri leikjadeildar Microsoft tilkynnti í gær að samkomulag hefði náðst við forsvarsmenn Sony um Call of duty, leikina vinsælu. PlayStation eigendum verður áfram tryggður aðgangur að leikjunum, jafnvel þó Microsoft, sem framleiðir xBox leikjavélarnar, kaupir Activision Blizzard, eins og í stefnir. Viðskipti erlent 17.7.2023 09:02
Rússar sölsa undir sig dótturfyrirtæki Carlsberg og Danone Stjórnvöld í Rússlandi hafa gert eignarnám í dótturfyrirtækjum bjórframleiðandans Carlsberg og jógúrtframleiðandanum Danone. Vladimir Pútín Rússlandsforseti undirritaði umrædda tilskipun, sem hefur fært félög fyrirtækjanna í Rússlandi undir eignaumsjónastofnunina Rosimushchestvo. Viðskipti erlent 17.7.2023 08:53
Reyna aftur að stöðva samruna Microsoft og Activision Samkeppniseftirlit Bandaríkjanna áfrýjaði í gær úrskurði dómara um að Microsoft mætti kaupa leikjafyrirtækið Activision Blizzard. Samruninn yrði sá stærsti í sögu leikjaiðnaðarins. Viðskipti erlent 13.7.2023 11:59
Fá grænt ljós á stærsta samruna leikjaiðnaðarins Microsoft fékk í gær grænt ljós á að ganga frá 69 milljarða dala kaupum fyrirtækisins á leikjarisanum Activision Blizzard. Samruninn verður sá stærsti í sögu leikjaiðnaðarins og með kaupunum mun Microsoft koma höndum yfir vinsæla tölvuleiki eins og Call of Duty seríuna, Diablo, Overwatch, World of Warcraft og Candy Crush. Viðskipti erlent 12.7.2023 10:40
Twitter hótar lögsókn Samfélagsmiðillinn Twitter hefur hótað samfélagsmiðlafyrirtækinu Meta lögsókn vegna nýs forrits sem kallast Threads eða „Þræðir“. Segir Twitter að uppbygging miðilsins gangi í berhögg við höfundarrétt þess. Viðskipti erlent 7.7.2023 07:39
Elstu börn Berlusconi fá viðskiptaveldið í arf Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu og einn auðugasti maður landsins, eftirlét elstu börnum sínum tveimur forræði yfir viðskiptaveldi hans. Kærasta Berlusconi sem var meira en hálfri öld yngri en hann fær milljarða samkvæmt erfðaskrá hans sem hefur nú verið gerð opinber. Viðskipti erlent 6.7.2023 12:31
Twitter-líki Meta ekki aðgengilegt í Evrópu Nýja samfélagsmiðlaforritið Threads sem á að keppa við Twitter verður ekki aðgengilegt í Evrópu í fyrirsjáanlegri framtíð. Ástæðan er strangar persónuverndarreglur sem gilda í Evrópusambandinu en Threads safnar alls kyns persónuupplýsingum um notendur sína. Viðskipti erlent 6.7.2023 09:09
Facebook hyggst setja Twitter klón í loftið á fimmtudag Bandaríska samfélagsmiðlafyrirtækið Meta sem rekur Facebook og Instagram hefur tilkynnt að það muni setja nýjan samfélagsmiðil sinn, Threads, í loftið næsta fimmtudag. Miðlinum er ætlað að eiga í beinni samkeppni við samfélagsmiðilinn Twitter. Viðskipti erlent 4.7.2023 08:30
Fyrsta sakfelling stjórnarmanns VW í útblásturshneykslinu Rupert Stadler, fyrrverandi forstjóri bílaframleiðandans Audi, varð fyrsti stjórnarmaður Volkswagen til þess að hljóta dóm í útblásturshneykslinu sem skók þýskan bílaiðnað þegar hann var fundinn sekur um svik í dag. Hann hlaut skilorðbundinn fangelsisdóm og dæmdur til að greiða háa sekt. Viðskipti erlent 27.6.2023 14:10
Amazon sakað um bellibrögð með Prime-áskriftir Alríkisviðskiptastofnun Bandaríkjanna (FTC) stefndi tæknirisanum Amazon fyrir að blekkja viðskiptavini sína til þess að skrá sig í áskriftarþjónustu og gera þeim erfitt fyrir að segja henni upp. Fyrirtækið hafnar ásökununum alfarið. Viðskipti erlent 22.6.2023 11:34
Spotify segir upp hlaðvarpssamningnum við Harry og Meghan Spotify hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við hertogann og hertogaynjuna af Sussex, Harry og Meghan. Síðustu misserin hefur parið framleitt hlaðvarpið Archetypes fyrir streymisveituna. Viðskipti erlent 16.6.2023 07:50
Draumurinn úti hjá Domino's í Danmörku Öllum 27 veitingastöðum alþjóðlegu pitsukeðjunnar Domino's í Danmörku hefur verið lokað. Viðskipti erlent 13.6.2023 21:47
Koks hélt tveimur Michelin-stjörnum eftir flutninginn til Grænlands Færeyski veitingastaðurinn Koks, sem starfræktur er tímabundið í Ilimanaq, suður af Ilulissat á Grænlandi, heldur tveimur Michelin-stjörnum sínum. Viðskipti erlent 13.6.2023 10:39
Soros felur syni sínum stjórn á viðskiptaveldinu Milljarðamæringurinn George Soros ætlar að láta yngri syni sínum eftir stjórn á viðskiptaveldi sínu. Hægrihreyfingar um allan heim haf gert Soros að sérstakri grýlu en sonurinn segist „pólitískari“ en faðir sinn. Viðskipti erlent 12.6.2023 09:25
Íþróttaþvottavél Sáda á fullum snúningi Sprengju var varpað inn í golfheiminn í vikunni þegar tilkynnt var um samstarf tveggja stærstu golfmótaraða heims við þjóðarsjóð Sádi-Arabíu sem höfðu eldað grátt silfur saman í á annað ár. Samstarfið er nýjasta útspilið í viðleitni Sáda til þess að kaupa sér áhrif og fegra ímynd sína í gegnum íþróttir. Viðskipti erlent 10.6.2023 08:01
Framkvæmdastjóri Diageo er látinn Sir Ivan Menezes, framkvæmdastjóri Diageo, stærsta áfengisfyrirtækis heims, er látinn, 63 ára að aldri. Viðskipti erlent 8.6.2023 08:04
Forstjóri CNN rekinn eftir ár í brúnni Chris Licht, forstjóri CNN, hefur verið rekinn. Hann hefur stýrt sjónvarpsstöðinni í rúmt ár en nýverið birtist ítarleg grein um að hann hefði valdið miklum usla innan CNN. Stjórnartíð hans hefur beðið hnekki vegna óreiðu og lítils áhorfs. Viðskipti erlent 7.6.2023 14:15
Önnur rafmyntamiðlun í sigti bandarískra yfirvalda Coinbase, stærsta rafmyntamiðlun Bandaríkjanna, er sakað um ólöglega starfsemi í kæru bandarískrar verðbréfaeftirlitsstofnunar. Sama stofnun stefndi Binance, stærstu rafmyntakauphöll heims, fyrir aragrúa brota og blekkinga í gær. Viðskipti erlent 6.6.2023 15:40
Apple blandar veruleikum Forsvarsmenn tæknirisans Apple héldu í gær kynningu þar sem nýjar tölvur, nýtt stýrikerfi og fleira var opinberað. Ein vara hefur þó notið mun meiri athygli en aðra en það eru gleraugun Apple Vision Pro. Viðskipti erlent 6.6.2023 13:33
Stærsta rafmyntakauphöll heims sögð hafa óhreint mjöl í pokahorninu Bandarísk eftirlitsstofnun sakar Binance, stærstu rafmyntakauphöll heims, og stofnanda hennar um misferli með fjármuni fjárfesta, að starfa án tilskilinna leyfa og brot á aragrúa reglna um verðbréf. Brotunum svipar til þeirra sem komu ljós í rekstri keppinautarins FTX sem varð gjaldþrota í haust. Viðskipti erlent 6.6.2023 08:58
Starfsmaður Amazon Ring njósnaði um konur með dyrabjöllumyndavél Fyrrverandi starfsmaður dyrabjöllumyndavéladeildar tæknirisans Amazon njósnaði um konur með myndavélum í bað- og svefnherbergjum um nokkurra mánaða skeið árið 2017. Þetta kemur fram í sátt sem bandarísk yfirvöld gerðu við fyrirtækið vegna brota á persónuverndarlögum. Viðskipti erlent 1.6.2023 10:41
Viðskiptataflið snúist við milli ESB og Rússa Rússar kaupa nú meira af Evrópusambandslöndum en öfugt. Evrópa kaupir mun minna af olíu og gasi frá Rússlandi en áður. Viðskipti erlent 1.6.2023 09:15
Sackler-fjölskyldan kemst undan ábyrgð á ópíóíðafaraldrinum Niðurstaða bandarísks áfrýjunardómstóls þýðir að Sackler-fjölskyldan, eigandi framleiðanda lyfsins OxiContins, kemst hjá persónulegri ábyrgð á ópíóíðafaraldrinum. Fjölskyldan þarf þó að sleppa takinu á lyfjafyrirtækinu og greiða milljarða dollara til að gera sátt um lyktir málaferla gegn því. Viðskipti erlent 30.5.2023 15:35
Lækka laxeldisskatt í von um að ná þingmeirihluta Fyrirhugaður auðlindaskattur á laxeldi í Noregi lækkar úr 35 prósentum niður í 25 prósent, samkvæmt samkomulagi sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa náð við tvo smáflokka í því skyni að tryggja meirihlutastuðning við málið í Stórþinginu. Upphafleg tillaga gerði ráð fyrir að skatturinn yrði 40 prósent af hreinum hagnaði. Viðskipti erlent 29.5.2023 23:44
Draumar Branson úti og starfseminni hætt að fullu Virgin Orbit, geimferðafyrirtækið sem breski auðkýfingurinn Richard Branson stofnaði árið 2017, er hætt starfsemi. Forsvarsmenn fyrirtækisins óskuðu eftir gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum í síðasta mánuði og er því ferli nú lokið. Viðskipti erlent 24.5.2023 11:17
ESB sektar Meta um 183 milljarða króna Evrópusambandið hefur sektað Meta, móðurfélag Facebook, um 1,3 milljarða bandaríkjadala, um 183 milljarða króna, fyrir að hafa sent persónuupplýsingar evrópskra notenda til Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 22.5.2023 10:09
Meta í samkeppni við Twitter Útlit er fyrir að Meta ætli í samkeppni við Twitter. Fregnir hafa borist af því að fyrirtækið muni gefa út í sumar forrit, sem tengist Instagram, þar sem notendur geta varpað fram stuttum textaskilaboðum til fylgjenda sinna og annarra. Til stendur að taka miðilinn í notkun í sumar. Viðskipti erlent 21.5.2023 10:29
Ná saman um regluverk um rafmyntir Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkja lögðu blessun sína yfir reglugerð um rafmyntir sem verður það fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Starfsemi rafmyntarfyrirtækja verður leyfisskyld með reglunum sem eru sagðar setja þrýsting á bandarísk og bresk stjórnvöld að setja sér sambærileg lög. Viðskipti erlent 17.5.2023 15:38