Hamas hikar við árásir á Ísrael 9. nóvember 2006 14:09 Frá vettangi árásar Ísraela í gærnótt. MYND/AP
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, ræddi í dag í síma við Khaled Mashaal, hinn útlæga leiðtoga Hamas-samtakanna. Embættismenn segja að þetta sé vísbending um að þeir séu nálægt því að ná samkomulagi um þjóðstjórn. Þetta samtal er einnig talið benda til þess að Hamas séu hikandi við að standa við þá hótun sína að hefja aftur árásir á Ísrael eftir mannskæða árás Ísraela á íbúðahverfi á Gaza fyrr í vikunni. Það myndi mjög skaða samtökin á alþjóðavettvangi, þar sem þau standa höllum fæti fyrir. Þótt embættismenn segist bjartsýnir hafa tilraunir til þess að mynda þjóðstjórn hvað eftir annað farið út um þúfur undanfarna mánuði. Mashaal hefur ekki getað fallist á þá kröfu Abbas að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis. Þar að auki er persónuleg óvinátta milli Abbas og Mashaals eftir að sá síðarnefndi gagnrýndi forsetann í ræðu síðastliðið vor. Síðan hafa þeir ekki talað saman. Það munu hafa verið ráðgjafar Abbas sem hvöttu hann til þess að hringja í Mashaal þar sem þeir telja engar líkur á árangri nema leiðtogarnir byrji aftur að tala saman. Ekki er vitað hvort Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, var látinn vita af símtalinu fyrir fram. Í gær sleit Haniyeh viðræðum um þjóðstjórn við samningamenn Abbasar eftir árás Ísraela. Viðræðurnar voru þó fljótlega hafnar á nýjan leik.
Erlent Fréttir Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira