Pólverjar beittu Rússa neitunarvaldi hjá ESB 13. nóvember 2006 14:19
Pólverjar beittu í dag neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að Evrópusambandið hæfi viðræður við Rússa um breiðari samvinnu, sérstaklega í orkumálum. Vonast var til að viðræðurnar gætu hafist á fundi í Helsinki hinn 24. þessa mánaðar. Pólverjar létu ekki undan þrábeiðni annarra aðildarríkja um að beita ekki neitunarvaldi í þessu máli. Þeir bera fyrir sig að Rússar hafi bannað innflutning á pólsku kjöti og matjurtum, án tilefnis. Rússar segja bannið vera af heilbrigðisástæðum, en sérfræðingar Evrópusambandsins hafa oftar en einusinni vottað að pólskar matvörur uppfylli öll skilyrði. Bæði Pólverjar og aðrar þjóðir í Austur-Evrópu hafa sakað Rússa um að nota orkusölu sína sem pólitískt vopn, enda hafa Rússar ekki vílað fyrir sér að hækka verð eða jafnvel skrúfa fyrir gas og olíu til landa sem þeir hafa lent upp á kant við. Orkumálin eru einmitt eitt af því sem Evrópusambandið vill semja við Rússa um, enda er það upp á Rússa komið með þrjátíu prósent af þeirri orku sem notuð er í aðildarríkjunum. Sambandið vill fá Rússa til þess að undirgangast skuldbindingar sem tryggi öryggi landa sem kaupa orku frá þeim, en Rússar eru ófúsir til þess.
Erlent Fréttir Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Sjá meira