Franskir sósíalistar velja sér forsetaefni 16. nóvember 2006 17:18 Segolene Royal eftir fundinn í Nantes í gær. MYND/AP
Franski sósíalistaflokkurinn hélt prófkjör í dag fyrir forsetakosningarnar sem að fara þar fram á næsta ári. Talið er líklegt að konan Segolene Royal eigi þar eftir að vinna sigur á tveimur mótframbjóðendum úr röðum reyndari sósíalista. Aðeins þeir sem skráðir eru í flokkinn mega kjósa en þetta er aðeins í annað sinn sem að flokkurinn heldur prófkjör til þess að ákveða forsetaefni sitt. Búist er við fyrstu tölum á morgun. Royal leitaði á sögulegar slóðir þegar hún hélt sinn síðasta kosningafund í gær í borginni Nantes, en þar hélt síðasti foresti sósíalista, Francois Mitterand, sinn síðasta kosningafund áður en hann náði kjöri árið 1981. Ef Royal nær ekki helmingi atkvæða í fyrstu umferð verður önnur umferð á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fá. Andstæðingar hennar í prófkjörinu eru fyrrum fjármálaráðherra Frakka, Dominique Strauss-Kahn, og fyrrum forsætisráðherrann Laurent Fabius en talið er að hann eigi eftir að reka lestina í prófkjörinu. Sigurvegarinn í prófkjörinu mun síðan fara í forsetakosningarnar í apríl á næsta ári og mun þar væntanlega mæta innanlandsráðherra Frakka, Nicolas Sarkozy, en hann er líklegasti frambjóðandi hægrimanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Fleiri fréttir Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Sjá meira