Sverre á leiðinni til Grosswallstadt Henry Birgir Gunnarsson skrifar 17. júní 2009 19:13 Sverre fer aftur í atvinnumennsku.
Landsliðsmaðurinn Sverre Andreas Jakobsson staðfesti við Vísi eftir landsleikinn í dag að hann væri kominn með annan fótinn til Þýskalands en fátt virðist geta komið í veg fyrir að hann geri tveggja ára samning við þýska úrvalsdeildarfélagið Grosswallstadt. „Það eru allar líkur á að ég semji við félagið. Það á eftir að ganga frá lausum endum en það má segja að ég sé kominn með annan fótinn til Þýskalands," sagði Sverre. Grosswallstadt vildi í upphafi semja við Sverre frá og með árinu 2010 en á dögunum skiptu þeir um skoðun og vildu fá Sverre strax til félagsins. „Ég hef rætt við mína vinnuveitendur og fæ ótrúlegan skilning þar eins og venjulega," sagði Sverre en fjölskylda hans er einnig tilbúinn að leggjast aftur í víking - aðeins ári eftir að hún kom heim frá Þýskalandi þar sem Sverre lék síðast með Gummersbach. „Staðan er öðruvísi í dag en þegar við komum heim. Svo er þetta gaman og forréttindi að fá að spila í bestu deild í heimi. Miðað við allt og allt fannst okkur plúsarnir vera fleiri við að fara aftur út." Hjá Grosswallstadt hittir Sverre fyrir annan landsliðsmann, Einar Hólmgeirsson. „Hann var til í að borga mér tíund af laununum sínum fyrir að koma," sagði Sverre léttur. „Það er alltaf gaman að hafa Íslendinga í kringum sig."
Íslenski handboltinn Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira