Óvæntur sigur Fram - frábær seinni hálfleikur Safamýrarpilta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2009 19:48 Rúnar Kárason skoraði 9 mörk fyrir Fram í kvöld. Mynd/Srefán
Fram gerði sér lítið fyrir og lagði Íslands- og deildarmeistara Hauka, 32-28, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum N1 úrslitakeppninnar að Ásvöllum. Fram lék frábærlega í síðari hálfleik og var betri á öllum sviðum leiksins. Liðið lék frábæra vörn og átti í litlum vandræðum með að finna glufur á vörn Hauka í síðari hálfleik. Davíð Svansson varði frábærlega í síðari hálfleik en markvarslan hjá Haukum var engin í seinni hálfleiknum eftir frábæran fyrri hálfleik. Rúnar Kárason skoraði mest fyrir Fram, 9 mörk, og Magnús Stefánsson 6. Hjá Haukum var Andri Stefan atkvæðamestur með 8 mörk en þeir Sigurbergur Sveinsson og Kári Kristján Kristjánsson skoruðu 5 mörk hvor. Haukar voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 16-11, eftir fjörugan og harðan fyrri hálfleik. Fram mætti mjög ákveðið til leiks og skoraði þrjú fyrstu mörkin og héldu undirtökunum í leiknum þar til tíu mínútur voru til leikhlés. Þá skoraði Sigurbergur Sveinsson sitt fyrsta mark. Það kveikti í leikmönnum Hauka sem keyrðu yfir Fram lokaspretti fyrri hálfleiks. Birkir Ívar Guðmundsson sá til þess að Fram myndi ekki stinga af í fyrri hluta hálfleiksins en Birkir hefur varið 54,5% skota Fram í hálfleiknum. Andri Stefan hélt sóknarleik Hauka uppi framan af þar til sóknarleikur liðsins small síðustu mínúturnar. Hjá Fram er Rúnar Kárason atkvæðamestur með fimm mörk en flest þeirra komu snemma leiks en liðið hefur lítið ráðið við varnarleik Hauka eftir góðar upphafsmínútur þegar liðið virtist hafa fundið lausnina á 5-1 vörn deildarmeistaranna.
Olís-deild karla Mest lesið Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf Myndavélin hreyfðist ekki og því engin snerting Fótbolti Langar að taka pásu frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira