NBA: Denver lagði Utah Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. apríl 2010 09:00 Carmelo Anthony í leiknum í nótt. Mynd/AP
Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Denver minnkaði muninn í rimmu sinni gegn Utah og Milwaukee tók forystuna í einvíginu gegn Atlanta. Denver vann Utah, 116-102, í fimmta leik liðanna í nótt og minnkaði þar með muninn í 3-2. Utah getur þó tryggt sér sæti í undanúrslitunum í Vesturdeildinni með sigri á heimavelli á morgun. Leikurinn var jafn framan af en Denver náði að síga fram úr í fjórða leikhluta. Carmelo Anthony var með 26 stig og ellefu fráköst og Chauncey Billups með 21 stig. Kenyon Martin var með átján stig og níu fráköst. Hjá Utah voru þeir Deron Williams og Carlos Boozer atkvæðamiklir. Williams var með 34 stig og tíu stoðsendingar og Boozer með 25 stig og sextán fráköst. Mestu munaði í leiknum að aðrir leikmenn Utah náðu sér ekki á strik. Paul Millsap var eini varamaður Utah sem skoraði í leiknum en hann var með sextán stig. Kyle Korver lék til að mynda í 20 mínútur án þess að skora. Bekkurinn hjá Denver skilaði 37 stigum. Denver varð reyndar fyrir áfalli þegar að Nene virtist meiðast illa á hné í öðrum leikhluta. Hann kom ekki meira við sögu í leiknum og óvíst hversu alvarleg meiðsli hans eru. Milwaukee getur tryggt sér sigur í rimmu sinni gegn Atlanta með sigri á heimavelli á morgun. Það varð ljóst eftir að Milwaukee vann óvæntan sigur á Atlanta á útivelli í nótt, 91-87. Atlanta komst í 2-0 í einvíginu og hafði reyndar unnið fjórtán leiki í röð á heimavelli fyrir leikinn í nótt. Atlanta komst í tíu stiga forystu í upphafi fjórða leikhluta en Milwaukee minnkaði muninn hægt og rólega. Vendipunkturinn kom svo þegar rúmar tvær mínútur voru eftir og Kurt Thomas fiskaði ruðningsvillu á Joe Johnson. Milwaukee skoraði næstu sex stig í leiknum og tryggði sér þar með sigurinn. Brandon Jennings var stigahæstur hjá gestunum með 25 stig og John Salmons var með nítján. Varamaðurinn Primoz Brezec skoraði fimmtán stig. Hjá Atlanta var Al Horford stigahæstur með 25 stig auk þess sem hann tók ellefu fráköst. Marvin Williams var með 22 stig og Johnson þrettán.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira