NBA-deildin: Óvænt tap hjá Boston gegn botnliði New Jersey Ómar Þorgeirsson skrifar 28. febrúar 2010 11:00 Kevin Garnett hjá Boston. Nordic photos/AFP
Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í gærkvöldi og nótt þar sem hæst bar óvæntur 96-104 sigur New Jersey á útivelli gegn Boston. New Jersey situr sem fastast á botni deildarinnar með lélegast árangur allra liða en þetta var aðeins sjötti sigur liðsins á tímabilinu í fimmtíu og átta leikjum. Brook Lopez var stigahæstur hjá gestunum með 25 stig en Kevin Garnett var stighæstur heimamanna í Boston með 26 stig og hann var vitanlega allt annað en sáttur í leikslok. „Ég hef nákvæmlega ekkert að segja. Mér líður bara ömurlega ef ég á að segja eins og er," sagði Garnett svekktur í leikslok. Utah hélt uppteknum hætti með 133-110 stórsigri gegn Houston en Deron Williams var stigahæstur hjá Utah með 35 stig en Kevin Martin var með 32 stig fyrir Houston. Þá hélt sigurganga Milwaukee áfram þegar liðið vann 71-94 sigur gegn Miami en þetta var sjötti sigur Milwaukee í röð og liðið klifrar nú hægt og bítandi upp töfluna í Austurdeildinni. John Salmons var stigahæstur hjá Milwaukee með 18 en hjá Miami, sem lék enn án hins meidda Dwayne Wade, var Jermaine O'Neal stigahæstur með 14 stig.Úrslitin í gærkvöldi og nótt: Boston-New Jersey 96-104 Miami-Milwaukee 71-94 Indiana-Chicago 100-90 New York-Memphis 109-120 Minnesota-Portland 91-110 Utah-Houston 133-110 Golden State-Detroit 95-88
NBA Mest lesið Messi laumaðist inn á leikvang Barcelona og lét engan vita Fótbolti Kominn með einkaleyfi á kaldasta fagnið í bransanum Enski boltinn Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Körfubolti Liverpool kvartar í dómarasamtökunum Enski boltinn Rúmlega þúsund leikmenn til rannsóknar: Liðsfélagi Loga settur í bann Fótbolti Sesko ekki með sjálfstraust og dregur sig úr landsliðshópnum Fótbolti Blikarnir taplausir á toppnum Körfubolti Bjarni og Guðbjörg endurheimtu bæði Íslandsmeistaratitilinn í CrossFit Sport Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Alexandra lagði upp og María fór á kostum í Íslendingaslag Fótbolti Fleiri fréttir Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Blikarnir taplausir á toppnum Sonur Dominique Wilkins með vindmyllutroðsluna í blóðinu Kári og Kristó eru skemmtilegasta kombóið í þessari deild NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Martin stigahæstur með tvöfalda tvennu Keflvíkingar bæta framherja frá Slóveníu í hópinn NBA vill koma deild í Evrópu á koppinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Uppgjör: Grindavík - Keflavík 104-92 | Ekkert stöðvar Grindvíkinga Óli Óla: Við getum alveg eins hrokkið upp af á morgun Uppgjörið: Ármann - Tindastóll 77-110 | Tindastóll of stór biti fyrir Ármann Varð sá hávaxnasti í sögunni Tvítug körfuboltakona með tímamótafjárfestingu Ingibergur hættir sem formaður: „Miklar tilfinningar innra með mér“ „Verður kannski mest krefjandi fyrir börnin mín“ „Þarf ekki að láta aðra segja mér hvort að liðið sé nógu gott“ Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 101-105 | Langþráður sigur Íslandsmeistarana ÍA - Valur 81-83 | Grátlegt tveggja stiga tap á nýjum heimavelli Þór Þ. - ÍR 100 - 98 | Fyrsta sigrinum fagnað í Þorlákshöfn Uppgjörið: Álftanes - KR 108-89 | Stórsigur gegn vængbrotnu liði Banninu aflétt og Bretland mun mæta Íslandi Sá húsið sitt brenna til kaldra kola „Ha, átti ég metið?“ Rebekka Rut nýliði í fyrsta landsliðshóp Salminen Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjá meira