Boston komið í 1-0 Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. maí 2010 09:20 Ray Allen í leiknum í nótt. Mynd/AP
Boston Celtics er komið í 1-0 í einvígi sínu gegn Orlando Magic í úrslitum Austurdeildarinnar í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Boston vann, 92-88, þó svo að þau fjögur stig sem Paul Pierce og Ray Allen skoruðu úr vítaköstum á lokasekúndum leiksins voru þau einu sem Boston skoraði síðustu fimm og hálfa mínútu leiksins. Þeir fóru á kostum í leiknum og skoruðu samtals 47 stig fyrir Boston sem vann þar með sinn fjórða leik í röð í úrslitakeppninni. Varnarleikur Boston var gríðarlega öflugur en Orlando náði aðeins að skora fjórtán stig á fyrstu sextán mínútum leiksins. Boston náði þar með forystu sem Orlando náði aldrei að ógna fyrr en undir lok leiksins. Þetta var fyrsta tap Orlando í úrslitakeppninni en liðið vann bæði Charlotte og Orlando í fyrstu tveimur umferðunum 4-0. Allen var með 25 stig, Pierce 22 og Rasheed Wallace þrettán. Hjá Orlando var Vince Carter með 23 stig, Jameer Nelson 20 og Dwight Howard þrettán. LA Lakers og Phoenix Suns eigast við í úrslitum Vesturdeildarinnar og verður fyrsti leikurinn í þeirri rimmu í Los Angeles í nótt.
NBA Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira