LeBron spilar með Miami Heat Henry Birgir Gunnarsson skrifar 9. júlí 2010 09:07 LeBron er hér með Jim Gray í sjónvarpsþættinum í gær.
Körfuboltaheimurinn stóð á öndinni í nótt þegar LeBron James tilkynnti með hvaða liði hann ætlar að leika á næstu árum. Hann gerði það með stæl og dugði ekkert minna en sérstakur klukkutíma sjónvarpsþáttur á ESPN undir herlegheitin. Þátturinn hét "The Decision" eða Ákvörðunin. Valmöguleikarnir voru nokkrir. Hann gat haldið áfram að spila með Cleveland þar sem hann hefur verið í sjö ár. Chicago og Carlos Boozer biðu einnig með opin faðminn og svo var það Miami. Þar beið sól og tvær stórstjörnur. Einnig var þar auðveldasta leiðin til þess að næla sér í meistarahring. LeBron ákvað að fara til Miami og mun mynda þar sögulegt ofurtríó með Dwayne Wade og Chris Bosh. Er óhætt að segja að Miami sé nú þegar orðið sigurstranglegast á næstu leiktíð. "Ég get ekki sagt að þetta hafi alltaf verið í kortunum því mér datt aldrei í hug að þetta gæti gengið upp," sagði James sem tók sér margar vikur í að ákveða sig. "Miami Heat hefur lagt mikið á sig til þess að búa til pláss undir launaþakinu og komst um leið í stöðu til þess að hafa okkur þrjá á sama stað. Það var erfitt að hafna þessu. Þarna bíða tveir af bestu leikmönnum deildarinnar eftir mér. Þarna er besta tækifærið til þess að verða meistari. Við verðum með frábært lið."
NBA Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira