Lakers og Orlando komin í 3-0 Henry Birgir Gunnarsson skrifar 9. maí 2010 11:24
Los Angeles Lakers og Orlando Magic eru svo gott sem komin í úrslitarimmu sinna deilda eftir sigur á andstæðingum sínum í nótt. Bæði lið leiða sína seríu, 3-0. Lakers vann afar nauman sigur á Utah í nótt, 110-111. Sú ákvörðun Utah Jazz að sleppa Derek Fisher fyrir þremur árum kom heldur betur í bakið á þeim í nótt er Fisher setti niður þrist þegar 28,6 sekúndur voru eftir af leiknum en það reyndist vera sigurkarfa leiksins. „Ég lifi fyrir svona," sagði brosmildur Fisher eftir leikinn en hann skoraði 20 stig í leiknum. Kobe Bryant var annars stigahæstur með 35 stig en Deron Williams skoraði 28 fyrir Utah. Orlando flengdi Atlanta enn eina ferðina í nótt en sú rimma er fyrir löngu orðinn einn stór brandari. Sigur Orlando í nótt var versta tap Atlanta á heimavelli fyrr og síðar í úrslitakeppninni. Magic er búið að vinna alla sjö leiki sína í úrslitakeppninni og hafa unnið Atlanta með 29 stigum að meðaltali. Stuðningsmenn Atlanta bauluðu á sitt lið í leikhléi en þá var staðan 52-33. Rashard Lewis var stigahæstur hjá Orlando með 22 stig og Jamal Crawford skoraði jafn mikið fyrir Atlanta. Úrslit næturinnar: Atlanta-Orlando 75-105 Utah-LA Lakers 110-111
NBA Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Leik lokið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira